Hoppa yfir valmynd
7. nóvember 2018

Ráðgjafi í snemmtækri atferlisíhlutun

Ráðgjafi í snemmtækri atferlisíhlutun

Ráðgjafi óskast til starfa á fagsviði yngri barna á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Um er að ræða afleysingastöðu til eins árs.

Starfssvið
• Ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna barna á leikskólaaldri með alvarleg þroskafrávik.
• Vinna í þverfaglegu teymi. 
• Þátttaka í fræðslustarfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af snemmtækri atferlisíhlutun
• Reynsla af vinnu með leikskólabörnum
• Reynsla af vinnu með börnum með þroskafrávik
• Hæfni í mannlegum samskiptum og til þátttöku í þverfaglegu samstarfi

Um er að ræða 80% starfshlutfall og gott að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Laun greiðast skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við ríkissjóð.

Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Digranesvegi  5, 200 Kópavogi, eða í tölvupósti á [email protected] fyrir  26. nóvember.  Öllum umsóknum verður svarað.

Vegna kynjasamsetningar á vinnustaðnum eru karlmenn hvattir til að sækja um.

Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur.

Upplýsingar um starfið veitir Helga Kristinsdóttir sviðstjóri í síma 5108400 eða á netfang: [email protected].

Hlutverk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaraskanir sem geta leitt til fötlunar síðar á ævinni, fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem bæta lífsgæði þeirra, svo og sinna langtímaeftirfylgd með einstaklingum sem búa við óvenjuflóknar eða sjaldgæfar þroskaraskanir. Jafnframt að afla og miðla fræðilegri þekkingu á sviði fötlunar svo og þróun, rannsóknir og dreifing á aðferðum og gögnum til greiningar á fötlunum og þroskaröskunum og mismunandi meðferðaraðferðum.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma.  Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum