Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2019

Lektor í reikningsskilum


Lektor í reikningsskilum

Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa 100% stöðu lektors í reikningsskilum við viðskiptadeild viðskipta- og raunvísindasviðs

Leitað er að sérfræðingi á sviði reikningsskilum og greinum tengdum rekstri skipulagsheilda. Umsækjendur skulu vera með grunnmenntun í viðskiptafræðum og sterkan grunn í aðferðafræði rannsókna.

Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf ekki síðar en 1. ágúst 2019. Ráðningartími er til fimm ára með möguleika á framlengingu skv. reglum nr. 258/2016 um störf dómnefndar og ráðningar akademískra starfsmanna við Háskólann á Akureyri. Framgangur í stöðu dósents eða prófessors kemur til greina við ráðningu hafi umsækjandi hæfi til þess að mati dómnefndar.

Helstu verkefni eru rannsóknir og kennsla, bæði á grunnstigi og meistarastigi, aðkoma að stjórnun deildarinnar, ásamt því að koma að uppbyggingu framhaldsnáms við deildina. Næsti yfirmaður er deildarformaður viðskiptadeildar. Starfsstöð er á Akureyri.

Við viðskiptadeild háskólans eru rúmlega 400 nemendur og fjórtán akademískir starfsmenn. Allt grunnnám í viðskiptafræðum er kennt  í sveigjanlegu námi og við deildina er boðið upp á rannsóknartengt framhaldsnám ásamt því að deildin hefur heimild til að bjóða upp á doktorsnám.

Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjandi skal hafa þekkingu og reynslu í reikningsskilum í samræmi við alþjóðleg viðmið, staðfest með áliti dómnefndar eða með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla, sbr. 1. mgr. 16. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. 
Kennslureynsla á háskólastigi og reynsla af vísindastörfum teljast nauðsynleg.
Reynsla úr atvinnulífi eða opinberum rekstri er æskileg.
Umsækjandi skal sýna fram á hæfni til að kenna og stunda rannsóknir á sviði reikningsskila. Víðtæk þekking á öðrum sviðum viðskiptafræða er einnig æskileg.
Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli.
Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum, samstarfslipurðar og skipulagshæfni.
Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir stefnu viðskiptadeildar og skólans.

Umsókn skal fylgja:
Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu.
Staðfest afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum.
Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknaáherslur ef til ráðningar kæmi.
Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda eftir því sem við á.
Tilnefna skal þrjá meðmælendur, æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi starfi eða fyrra starfi umsækjanda.
Þær fræðilegu ritsmíðar sem umsækjandi telur sín bestu verk (allt að þremur ritum). Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.

Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskólakennara á Akureyri og fjármálaráðherra.

Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2019. Umsókn og fylgigögn skal senda skrifstofu rektors á netfangið [email protected]. Ekki er notað staðlað umsóknaeyðublað.

Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga um opinbera háskóla nr. 85/2008, reglur fyrir Háskólann á Akureyri. nr. 387/2009 með síðari breytingum og reglur nr. 258/2016 um störf dómnefndar og ráðningar akademískra starfsmanna við Háskólann á Akureyri. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar gefur Rannveig Björnsdóttir, forseti viðskipta- og raunvísindasviðs, sími 460-8515, netfang:  [email protected].

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um laus störf.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum