Hoppa yfir valmynd
10. mars 2017 Dómsmálaráðuneytið

Dómsmálaráðherra heimsótti embætti héraðssaksóknara

Dómsmálaráðherra heimsótti héraðssaksóknara á dögunum. - mynd

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra heimsótti embætti héraðssaksóknara í vikunni. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari tók á móti ráðherra og fylgdarliði ásamt nokkrum samstarfsmönnum sínum og kynntu þau ráðherra starfsemina.

Í kynningu sinni fór Ólafur Þór yfir aðdraganda að stofnsetningu embættis héraðssaksóknara en undanfari þess var embætti sérstaks saksóknara. Meðal helstu verkefna héraðssaksóknara er að saksókn í málum sem ríkissaksóknari hefur til þessa ákært í flyst til héraðssaksóknara og lögreglustjóra.

Ólafur sagði brýnustu úrlausnarefni embættisins vera þau að ljúka málum er varða hrunið og afleiðingar þess, klára vinnu við eldri mál á saksóknarsviði sem fluttust til embættisins frá ríkissaksóknara, standast kröfur sem gerðar eru til embættisins vegna verkefna á sviði peningaþvættis og að koma á legg sérstakri einingu sem annast upptöku ólögmæts ávinnings og umsýslu kyrrsettra eigna.

Sigríður Á. Andersen sagði heimsóknina hafa verið bæði gagnlega og fræðandi en þetta er í fyrsta skipti sem hún heimsækir embættið. „Ég fékk þarna mikilvæga innsýn inn í verklag þeirra og stöðu mála ásamt því hvað embættinu þætti brýnast að takast á við á þessum tímapunkti.“

Hjá héraðssaksóknara, frá vinstri: Ólafur Þór Hauksson, Sveinn Ingiberg Magnússon, Kolbrún Benediktsdóttir, Björn Þorvaldsson, á bak við hann Guðrún Árnadóttir, Ásdís Ingibjargardóttir, öll frá héraðssaksóknara og frá ráðuneytinu þau Guðrún Sveinsdóttir, Laufey Rún Ketilsdóttir, Sigríður Á. Andersen, Ragnhildur Hjaltadóttir og Hildur Dungal.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum