Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2017

Rannsóknamaður - Háskóli Íslands, lyfja- og eiturefnafræði - Reykjavík - 201711/1782

 

Rannsóknamaður – Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði – Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands – Reykjavík 

Á réttarefnafræðideild/eiturefnafræðideild Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands er laust til umsóknar 100% starf rannsóknamanns.

Starfið felst einkum í sérhæfðri vinnu við réttarefnafræðilegar rannsóknir og mælingum á lyfjum í efnis- og líkamssýnum. Starfsmaðurinn ber ábyrgð á verkefnum og verkþáttum er krefjast faglegrar hæfni og sérþekkingar.

Menntunar- og hæfniskröfur: 
Meistarapróf í líf- og/eða efnafræði ásamt réttarefnafræði.
Viðkomandi hafi reynslu af vinnu með LC-MSMS og GC-MS.
Viðkomandi hafi reynslu af réttarefnafræðilegum rannsóknum, góða tölfræðikunnáttu, þekkingu á gæðastjórnunarkerfi (ISO 9001 og 17025) og gott vald á íslensku. 
Færni í mannlegum samskiptum. 
Áreiðanleiki, nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur, falli sem best að aðstæðum og þörfum
Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.

UMSÓKNARFERLI
Sótt er um starfið á vefsíðu Háskóla Íslands undir laus störf.

Umsóknarfrestur er til og með 4. desember 2017.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
I. Ferilskrá
II. Bréf þar sem áhuga á starfinu er lýst og fjallað um hvað umsækjandi telur sig geta lagt af mörkum til þess
III. Staðfest afrit af prófskírteinum
IV. Upplýsingar um umsagnaraðila
Umsækjendur verða beðnir um að framvísa sakavottorði, komi þeir til álita í starfið. 

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Magnúsdóttir, sviðsstjóri ([email protected] / s. 525 5146).

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum