Hoppa yfir valmynd
1. nóvember 2018

Framhaldsskólakennari í tréiðngreinum



Framhaldsskólakennari – Fjölbrautaskóli Vesturlands

Við Fjölbrautaskóla Vesturlands Akranesi er laus til umsóknar 50% staða framhaldsskólakennara í tréiðngreinum.

Ráðning og kjör:
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi KÍ og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans. Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en í umsókn þarf að greina frá menntun, fyrri störfum og öðru því sem umsækjandi telur að máli skipti. 

Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti til Ágústu Elínar Ingþórsdóttur, skólameistara, [email protected], fyrir 26. nóvember 2018. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 

Jafnt konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Sakavottorð fylgi umsókn.

Á heimasíðu skólans, www.fva.is, eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans.

Skólameistari




Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum