Hoppa yfir valmynd
15. febrúar 2018

Lektor í sjúkraþjálfun - Háskóli Íslands, Heilbrigðisvísindasvið - Reykjavík - 201802/371


 
 
Lektor í sjúkraþjálfun – Heilbrigðisvísindasvið – Háskóla Íslands – Reykjavík

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í sjúkraþjálfun við Námsbraut í sjúkraþjálfun innan Læknadeildar á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands. Er starfið á sviði heilsueflingar, lýðheilsu, forvarna og velferðar innan sjúkraþjálfunar.

Menntunar- og hæfniskröfur:
Doktorspróf á fræðasviðinu eða próf sem jafnað verður til doktorsprófs, eða jafngild hæfni að mati dómnefndar
Klínísk reynsla innan sjúkraþjálfunar
Þekking á sviði heilsueflingar, forvarna og velferðar
Góð rannsóknarvirkni á sviði sjúkraþjálfunar
Reynsla af kennslu og leiðbeiningu á háskólastigi
Reynsla af stjórnun er æskileg
Hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg

Helstu verkefni:
Hafa umsjón með og kenna námskeið um heilsueflingu, forvarnir og velferð
Byggja upp rannsóknir við Námsbrautina á sviði heilsueflingar og forvarna
Leiðbeining meistaraverkefna á sviði heilsueflingar, forvarna, velferðar og sjúkraþjálfunar
Taka þátt í stjórnun námsbrautarinnar

Umsækjendur þurfa að geta kennt og átt í samskiptum við starfsmenn og nemendur Námsbrautarinnar á íslensku eða ensku.

Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum námsbrautarinnar.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Rektor er heimilt að veita framgang í starfi strax við nýráðningu uppfylli viðkomandi þau skilyrði sem kveðið er á um í reglum nr. 263/2010 um framgang og tímabundna ráðningu akademískra starfsmanna við Háskóla Íslands.
 
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.

Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2018.

Sótt er um starfið á vefsíðu Háskóla Íslands undir laus störf

Umsækjendur skulu láta fylgja með umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og rannsóknaráætlun ef til ráðningar kemur. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. Ef ekki er unnt að skila fylgigögnum með umsókn á rafrænu formi skal skila þeim í þríriti til vísindasviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík. 

Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Æskilegt er að viðkomandi hefji störf eigi síðar en 1. október 2018.

Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands


Nánari upplýsingar veitir Kristín Briem, prófessor og formaður Námsbrautar í sjúkraþjálfun ([email protected] / s. 525 4096).

Háskóli Íslands er stærsta mennta-, rannsókna- og vísindastofnun Íslands og er á meðal 300 bestu háskóla heimsins samkvæmt lista Times Higher Education. Hann er ríkisháskóli sem staðsettur er í miðbæ Reykjavíkur. Fjölbreyttur, nútímavæddur og hratt vaxandi, býður Háskóli Íslands upp tækifæri á nær 300 brautum til náms og rannsókna innan flestra sviða vísinda og menntunar, þ.e. innan félagsvísinda, heilbrigðisvísinda, hugvísinda, menntavísinda og verk- og raunvísinda.

Námsbraut í sjúkraþjálfun tilheyrir Læknadeild sem er ein af sex deildum Heilbrigðisvísindasviðs við Háskóla Íslands. Frá þeim tíma er Námsbrautin var stofnuð 1976, bauð hún upp á fjögurra ára BS nám til starfsréttinda í sjúkraþjálfun. Þessu var breytt frá og með haustinu 2014 en síðan þá hefur verið boðið upp á fimm ára nám til starfsréttinda í sjúkraþjálfun; þriggja ára BS nám í sjúkraþjálfunarfræðum og tveggja ára MS nám í sjúkraþjálfun. Námsbrautin býður því núna upp bæði BS og MS gráður tengdar sjúkraþjálfun þar sem 35 nemendur eru teknir inn á fyrsta ár í BS náminu. Það er stefna Námsbrautar í sjúkraþjálfun að mennta sjúkraþjálfara sem eru gagnrýnir í hugsun, byggja starf sitt á gagnreyndri þekkingu, skila árangri, fylgja siðareglum og eru virkir í símenntun. Við útskrift eiga nemendur að hafa þróað með sér fagmennsku og samfélagslega ábyrgð. Við Námsbrautina starfa núna sex akademískir starfsmenn sem allir stunda metnaðarfullar rannsóknir á ýmsum sviðum innan sjúkraþjálfunar og tengdra sviða, í samvinnu við erlenda og innlenda aðila. Ætlast verður til að sá sem hlýtur umrætt starf breikki og styrki enn frekar rannsóknarsvið Námsbrautarinnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum