Læknir - Sauðárkrókur - Sumarafleysing
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkróki, Læknir sumarafleysing
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkróki óskar eftir lækni til starfa í sumarafleysingu sumarið 2020.
Læknar sem starfa hjá HSN eru með aðalstarfstöð á heilsugæslustöð og sinna móttöku sjúklinga og heilsuvernd ásamt því að sinna vaktþjónustu í héraði skv. vaktaskema hverju sinni. Starfið felur einnig í sér störf á sjúkra- og hjúkrunarsviði. Störfin fela í sér þverfaglega samvinnu innan sem og út fyrir stöðina.
Næsti yfirmaður er yfirlæknir á starfstöð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennar lækningar og heilsuvernd
- Vaktþjónusta
- Læknisþjónusta á sjúkra- og hjúkrunarsviði
- Kennsla starfsfólks og nema
- Þróun og teymisvinna
Hæfnikröfur
- Íslenskt lækningaleyfi er skilyrði.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni, óskað er meðmæla
- Faglegur metnaður í starfi og árangursmiðuð viðhorf
- Áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla og hæfileiki til að vinna í teymi
- Ökuleyfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt afriti eða staðfestingu á Íslensku lækninaleyfi. Kostur er að stofnuninni berist staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt staðfestu afriti af opinberu starfsleyfi.
Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.02.2020
Nánari upplýsingar veitir
Þorsteinn M Þorsteinsson - [email protected] - 432 4200
Örn Ragnarsson - [email protected] - 432 4200
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Sauðárkrókur Heilsugæsla læknar
Sauðárhæðir
550 Sauðárkrókur
Smelltu hér til að sækja um starfið