Hoppa yfir valmynd
6. desember 2019

Embætti rektors

Embætti rektors Háskóla Íslands er laust til umsóknar.

Í samræmi við 1. mgr. 8. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og 6. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands, auglýsir háskólaráð Háskóla Íslands hér með laust til umsóknar embætti rektors Háskóla Íslands.

Rektor er forseti háskólaráðs. Hann er yfirmaður stjórnsýslu háskólans og æðsti fulltrúi hans og talsmaður gagnvart mönnum og stofnunum innan háskólans og utan hans. Hann stýrir starfsemi háskólans og hefur frumkvæði að því að háskólaráð marki sér heildarstefnu í málefnum háskólans. Hann ber ábyrgð á framkvæmd stefnu háskólans og tengslum háskólans við innlenda og erlenda samstarfsaðila. Rektor ber ábyrgð á og hefur eftirlit með allri starfsemi háskólans, þ.m.t. ráðningar- og fjármálum einstakra fræðasviða og stofnana. Hann ber ábyrgð á gerð starfs- og rekstraráætlana og að þær séu samþykktar af háskólaráði. Á milli funda háskólaráðs fer rektor með ákvörðunarvald í öllum málum háskólans.
Um laun og önnur starfskjör rektors fer samkvæmt ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. 39. gr. a. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.

Mennta- og menningarmálaráðherra skipar háskólarektor til fimm ára samkvæmt tilnefningu háskólaráðs, sbr. 8. gr. laga um opinbera háskóla. Tilnefning háskólaráðs fer fram að undangengnum kosningum í háskólanum, sbr. 6. gr. reglna háskólans. Miðað er við að rektorskjör fari fram 18.-20. febrúar næstkomandi. Skipunartímabil rektors er fimm ár, frá 1. júlí 2020.

Embættisgengir eru þeir einir sem hafa prófessorshæfi á viðurkenndu fræðasviði Háskóla Íslands, leiðtogahæfileika og skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir háskólann, ríka samskiptahæfni og víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun. Háskólaráð ákvarðar hvaða umsækjendur uppfylla skilyrði um embættisgengi, sbr. 2. tl. 6.gr. reglna háskólans. Einungis þeir sem þegar hafa fengið formlegan hæfnisdóm sem prófessor við viðurkenndan háskóla áður en umsóknarfrestur rennur út teljast uppfylla skilyrði um prófessorshæfi. 

Umsóknir skulu hafa borist starfsmannasviði, Aðalbyggingu Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík eða á netfangið [email protected] eigi síðar en 3. janúar 2020.


Háskóla Íslands,
5. desember 2019.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum