Hoppa yfir valmynd
28. ágúst 2020

Forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands - Umsóknarfrestur framlengdur til 21. september


Forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands


Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir laust embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands. 


Leitað er eftir leiðtoga með kraft og metnað til að vinna að markmiðum stofnunarinnar.  Náttúrufræðistofnun Íslands stundar m.a. undirstöðurannsóknir í dýrafræði, grasafræði og jarðfræði landsins og  annast skipulega heimildasöfnun um náttúru Íslands. Stofnunin hefur víðtækt vöktunar- og fræðsluhlutverk.


Umhverfis- og auðlindaráðherra skipar forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands til fimm ára í senn. Forstjóri stýrir stofnuninni, mótar stefnu í störfum hennar og ber ábyrgð á rekstri hennar. Hjá stofnuninni starfa um 55 starfsmenn.


Helstu verkefni stofnunarinnar eru:
Stunda vísindalegar rannsóknir á náttúru Íslands
Varðveita náttúrugripi og vísindaleg heimildasöfn
Skrá kerfisbundið einstaka þætti íslenskrar náttúru
Vöktun lykilþátta íslenskrar náttúru
Öflun og miðlun upplýsinga og þekkingar sem varða íslenska náttúru


Menntunar- og hæfniskröfur: 
Háskólamenntun með meistaragráðu sem nýtist í starfi 
Þekking á verksviði stofnunarinnar
Reynsla af  stjórnun- og rekstri
Reynsla af vinnu við stefnumótun og áætlanagerð
Leiðtogahæfileikar og hæfni til að leiða fólk til samvinnu og árangurs
Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Gott vald á íslensku og góð kunnátta í ensku

Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og stutt kynningarbréf um ástæðu umsóknar auk upplýsinga um árangur sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist í embættið. Þriggja manna valnefnd skipuð af umhverfis- og auðlindaráðherra metur hæfni og hæfi umsækjenda og skilar greinargerð til ráðherra. 

Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 21. september nk. 
Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið [email protected].

Fjármála- og efnahagsráðherra ákveður föst laun fyrir dagvinnu í samræmi við grunnmat embættis forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands og önnur laun er embættinu fylgja.

Ráðuneytið hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið.


Upplýsingar um embættið veitir Sigríður Auður Arnardóttir, ráðuneytisstjóri í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu ([email protected]).

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum