Hoppa yfir valmynd
25. október 2018

Lektor í félagslyfjafræði

Lektor í félagslyfjafræði  – Heilbrigðisvísindasvið – Háskóli Íslands – Reykjavík

Laust er til umsóknar 37% starf lektors í félagslyfjafræði við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands.

Sem lektor mun sá sem ráðinn verður uppfylla sína kennsluskyldu innan fræðigreinarinnar og stunda rannsóknir í sinni sérgrein. Þá mun viðkomandi m.a. stýra verknámi lyfjafræðinema í grunn- og framhaldsnámi.

Menntunar- og hæfniskröfur:
Doktorspróf í lyfjafræði eða lyfjavísindum.
Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sjálfstæði og frumkvæði í rannsóknum. 
Reynsla af háskólakennslu.
Kostur er ef viðkomandi hefur stundað rannsóknir erlendis og/eða er í erlendu samstarfi.
Stjórnunarreynsla er æskileg.
Gott vald á íslensku og ensku.
Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, ásamt góðri færni í að miðla eigin þekkingu.

Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Lyfjafræðideildar. 

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun árs 2019, enda verði störfum nefnda sem um málið fjalla þá lokið.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Rektor er heimilt að veita framgang í starfi strax við nýráðningu uppfylli viðkomandi þau skilyrði sem kveðið er á um í reglum nr. 263/2010 um framgang og tímabundna ráðningu akademískra starfsmanna við Háskóla Íslands.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.

Nánari upplýsingar veitir Hákon Hrafn Sigurðsson, deildarforseti Lyfjafræðideildar ([email protected]).

Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember 2018.

Sótt er um starfið á vefsíðu Háskóla Íslands undir laus störf

Umsækjendur skulu láta fylgja með umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og rannsóknaráætlun ef til ráðningar kemur. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. Ef ekki er unnt að skila fylgigögnum með umsókn á rafrænu formi skal skila þeim í þríriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum