Hoppa yfir valmynd
27. janúar 2020

Hjúkrunarfræðingar / hjúkrunarnemar - Selfoss - Sumarafleysingar

Hjúkrunarfræðingar / hjúkrunarnemar - sumarafleysingar

Hjúkrunarfræðingar/3ja árs hjúkrunarnemar óskast til starfa á Lyflækningadeild á Selfossi í sumarafleysingar

Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki. 

Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.

Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á þrískiptum vöktum og þriðju hverja helgi. 

Á deildinni eru 18 sjúkrarúm sem ætluð eru fyrir lyflæknissjúklinga. 

Hjúkrunarfræðingar deildarinnar sinna einnig dagdeildarsjúklingum sem koma reglulega í lyfjagjafir. 

Hæfnikröfur
Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun
Starfsleyfi landlæknis
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal skilað rafrænt á vef HSU - www.hsu.is undir flipanum lausar stöður. 

Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf.

Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Kormáksdóttir - [email protected] - 432-2211
Anna María Snorradóttir - [email protected]  


Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Lyflækningadeild, bráðamóttaka og göngudeild
Árvegi
800 Selfoss


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum