Hoppa yfir valmynd
9. desember 2019

Eftirlitsmaður í lyfjaöryggisdeild á eftirlitssviði

 
Eftirlitsmaður í lyfjaöryggisdeild á eftirlitssviði 

Lyfjastofnun auglýsir laust starf eftirlitsmanns í lyfjaöryggisdeild á eftirlitssviði. Leitað er að öflugum einstaklingi sem er reiðubúinn að vinna krefjandi og fjölbreytt starf sem felur m.a. í sér ferðir innanlands sem og erlendis á vegum stofnunarinnar. Starfshlutfall er 100%. 

Helstu verkefni:
Eftirlit með lyfjaframleiðendum og lyfjaheildsölum (GMP/GDP).
Eftirlit með blóðhlutaframleiðslu og starfsemi vefjamiðstöðva.
Þáttaka í eftirliti með markaðsleyfishöfum, þ.m.t. lyfjagátarkerfum (GVP). 
Þáttaka í eftirliti með klínískum lyfjarannsóknum (GCP).
Þátttaka í erlendu samstarfi Lyfjastofnunar.
Meðhöndlun gátar- og váboða.
Meðhöndlun og eftirfylgni innkallana, kvartana og tilkynninga.

Menntunar- og hæfniskröfur:
Meistaragráða í lyfjafræði, lífefnafræði, líffræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
Þekking og reynsla á sviði lyfjaframleiðslu og/eða lyfjadreifingar.
Reynsla af eftirliti og/eða gæðamálum. 
Mjög gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli. 
Kunnátta í einu Norðurlandamáli er æskileg.
Mjög góð tölvufærni.
Mjög góð teymisvitund, samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum sem og frumkvæði og faglegur metnaður.
Góð greiningar og skipulagshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi. 
Hæfni í að miðla upplýsingum með skipulögðum og skýrum hætti

Umsóknarfrestur er til og með 2. janúar 2020

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Æskilegt er að umsækjandinn geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Lyfjastofnun hvetur bæði karla og konur til að sækja um störfin. 

Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent, www.capacent.is. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Dagsdóttir ([email protected]).

Lyfjastofnun er ríkisstofnun sem heyrir undir heilbrigðisráðherra. Helstu hlutverk hennar eru að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit  með lyfjafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna um 60 starfsmenn. Lyfjastofnun leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, starfsþróun og framfylgir stefnu um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta. Sjá nánari upplýsingar um Lyfjastofnun á vef stofnunarinnar www.lyfjastofnun.is

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum