19 Fjölmiðlun
Skilgreining málefnasviðs
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð menningar- og viðskiptaráðherra. Einn málaflokkur heyrir undir málefnasviðið sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
Útgjaldarammi - heildaryfirlit og breytingar eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 19 Fjölmiðlun árið 2024 eru áætluð 6.950,4 m.kr. og aukast um 661,6 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2023, eða sem svarar til 10,5%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 668,6 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 10,6 %.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.
Útgjaldarammi - hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2021 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
19.10 Fjölmiðlun
Málaflokkurinn nær yfir starfsemi Fjölmiðlanefndar, Ríkisútvarpsins ohf. og starfsumhverfi einkarekinna fjölmiðla. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
Helstu verkefni 2024 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
Markmið 1: Auka sjálfstætt unnið efni í fjölmiðlum |
||
Aukin áhersla á leikið íslenskt efni til að auka framboð og gæði á leiknu íslensku sjónvarpsefni skv. þjónustusamningi. |
RÚV |
Innan ramma |
Sjónvarpsþátta-, kvikmynda- og heimildamyndagerð styrkt með kaupum á efni frá sjálfstæðum framleiðendum og meðframleiðsla að slíku efni, skv. þjónustusamningi. |
RÚV |
Innan ramma |
Markmið 2: Greiða aðgengi almennings að fjölbreyttum, ábyrgum og sjálfstæðum fjölmiðlum |
||
Styrkja stöðu einkarekinna fjölmiðla, sbr. innleiddir nýir hvatar til aukinnar áskriftar á fjölmiðla, til að tryggja fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði í samræmi við stjórnarsáttmála og nýja fjölmiðlastefnu. |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
360 m.kr. |
Innleiðing fjölmiðlastefnu, sbr. þingsályktunartillögu um fjölmiðlastefnu (stefnumótun og aðgerðaáætlun). |
Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
Innan ramma |
Markmið 3: Efla miðlalæsi fyrir lýðræðislega umræðu og þátttöku |
||
Áframhald samanburðarrannsókna á miðlalæsiskönnunum þannig að mælanlegur árangur sjáist og hægt sé að bregðast við. |
Fjölmiðlanefnd |
Innan ramma |
Ekki er um neinar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er aukin um 415 m.kr. til samræmis við tekjuáætlun af útvarpsgjaldi.
- Í samræmi við stjórnarsáttmála er fjárheimild málaflokksins varanlega aukin um 360 m.kr. í formi aukins framlags til stuðnings einkareknum fjölmiðlum á Íslandi til að tryggja fjölbreytni á þeim markaði.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 100 m.kr. vegna tímabundins framlags til stuðnings einkareknum fjölmiðlum sem er að falla niður.
- Aðhaldskrafa málaflokksins nemur 53,4 m.kr. og er skipt hlutfallslega á Fjölmiðlanefnd og stuðning til einkarekinna fjölmiðla.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.