Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd %C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 484/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 7. október 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 484/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21090010

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.          Málsatvik

Þann 21. janúar 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. október 2021, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda hann til Grikklands. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 25. janúar 2021.

Þann 3. september 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Upplýsingar um málsmeðferð í máli kæranda bárust kærunefnd þann 10. september 2021 frá Útlendingastofnun og þann 13. september 2021 frá stoðdeild ríkislögreglustjóra. Þá bárust frekari upplýsingar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra þann 12. október 2021. Athugasemdir bárust frá talsmanni kæranda dagana 15. september og 13. október 2021.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans byggir á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.            Málsástæður og rök kæranda

Í beiðni kæranda kemur fram að samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga eigi aðili máls rétt á því að fá mál sitt tekið til meðferðar á ný þegar íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem hafi breyst verulega frá því að ákvörðun var tekin. Kærandi hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi þann 26. júlí 2020. Vegna þess tíma sem nú hafi liðið frá því að kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hafi atvik í málinu breyst verulega frá því að kærunefnd kvað upp úrskurð sinn þann 21. janúar 2021, því beri kærunefnd að endurupptaka mál hans. Kærandi fjallar í þessu samhengi um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og vísar til þess að samkvæmt stjórnsýsluframkvæmd hafi afgreiðsla umsókna í skilningi ákvæðisins miðast við umsóknardag annars vegar og hins vegar við endursendingu til viðtökuríkis. Þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir og kærandi sé enn hér á landi beri stjórnvöldum, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á Íslandi.

III.          Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 26. júlí 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti þann 26. júlí 2021. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í upplýsingum sem kærunefnd bárust frá Útlendingastofnun þann 10. september 2021 varðandi fyrirspurnir um tafir á málsmeðferð og flutningi kæranda kom fram að verkbeiðni um flutning hafi verið send frá Útlendingastofnun þann 2. febrúar 2021. Samkvæmt upplýsingum frá stoðdeild hafi kærandi ítrekað neitað að gangast undir bókaða Covid-19 sýnatöku. Með þessu háttalagi sínu líti Útlendingastofnun svo á að kærandi hafi  tafið mál sitt. Í upplýsingum sem kærunefnd bárust frá stoðdeild þann 13. september 2021 kemur fram að kærandi hafi átt tíma í Covid-19 sýnatöku þann 9. apríl 2021 en hann hafi ekki mætt og sent smáskilaboð á fulltrúa stoðdeildar þess efnis að hann hafi ekki viljað fara. Því hafi stoðdeild ekki getað frávísað honum. Í tölvubréfi sem barst kærunefnd frá stoðdeild þann 12. október 2021, kom fram að þann 6. apríl 2021 hafi verið haft samband við kæranda en hann hafi ekki svarað og því hafi honum verið send smáskilaboð á arabísku um að mæta í Bæjarhraun 18, daginn eftir klukkan tíu. Þann 7. apríl 2021 hafi kærandi mætt og rætt hafi verið við hann með aðstoð túlks á arabísku. Kærandi hafi samþykkt að fara til Grikklands þann 10. apríl 2021 og honum tilkynnt að mæta á heilsugæsluna í Mjódd í Covid-19 sýnatöku þann 9. apríl klukkan 8:20. Þá hafi verið gengið frá farmiðapöntun til Grikklands. Þann 9. apríl 2021 hafi stoðdeild mætt fyrir utan heilsugæsluna í Mjódd en lögreglufulltrúinn sem var á staðnum hafi þá fengið smáskilaboð frá kæranda um að hann vildi ekki fara til Grikklands.

Í athugasemdum kæranda, dags. 15. september 2021, kemur fram að í málinu liggi fyrir litlar upplýsingar um til hvaða aðgerða stoðdeild hafi gripið til í máli kæranda. Í ljósi þess að ekki liggi fyrir neitt annað en að kærandi hafi verið boðaður í sýnatöku í apríl en ekki mætt og lýst því yfir í smáskilaboðum til fulltrúa stoðdeildar að hann hafi ekki viljað fara til Grikklands. Með vísan til niðurstöðu kærunefndar í máli nr. KNU21070020 frá 26. ágúst 2021 telur kærandi að ekki sé hægt að fallast á það með Útlendingastofnun að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð. Í athugsemdum kæranda, dags. 13. október 2021, kemur fram að kærandi telji að verklag og framkvæmd fyrirhugaðs flutnings hans úr landi hafi verið tilviljunarkennd og ómarkviss. Í fyrsta lagi hafi liðið tveir og hálfur mánuður frá því að kæranda var birtur úrskurður kærunefndar þangað til stoðdeild hafði samband við hann vegna flutnings úr landi. Þá mætti kærandi til fundar við lögreglu þar sem hann var boðaður í Covid-19 sýnatöku tveimur dögum síðar, en flutningur úr landi var þá fyrirhugaður þremur dögum eftir fyrsta og eina fund stoðdeildar með kæranda. Kærandi hafi ekki mætt í boðaða sýnatöku á umræddum degi og lét vita með smáskilaboðum að hann vildi ekki fara til Grikklands. Eftir þann 9. apríl 2021 hafi lögreglan ekki átt í frekari samskiptum við kæranda. Þá hafi 12 mánaða frestur í málinu runnið út þann 26. júlí 2021 eða tæpum fjórum mánuðum eftir umrædd samskipti og sex mánuðum eftir að kærunefnd birti úrskurð í málinu. Á umræddu sex mánaða tímabili hafi lögreglan hitt kæranda einu sinni vegna fyrirhugaðs flutnings úr landi. Kærandi telji að sú háttsemi að mæta ekki í boðaða sýnatöku í umrætt skipti leiði ekki til þess að hann beri ábyrgð á töfum málsins.

Af svari stoðdeildar má ráða að þau samskipti sem hafi átt sér stað milli kæranda og stoðdeildar hafi snúið að því að kanna afstöðu kæranda til fyrirhugaðs flutnings til Grikklands auk þess sem kærandi var sérstaklega boðaður til sýnatöku á heilsugæsluna í Mjódd þann 9. apríl 2021, klukkan 8:20. Fyrirhugaður flutningur hans úr landi var 10. apríl 2021.

Kærunefnd tekur fram að flutningur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fengið hafa neikvæða niðurstöðu hér á landi í máli sínu er íþyngjandi ákvörðun og því eðlilegt að umsækjendur séu mótfallnir slíkum flutningi. Líkt og að framan greinir leið 12 mánaða fresturinn í máli kæranda þann 26. júlí 2021. Ljóst er að kærandi mætti ekki í fyrirhugaða sýnatöku og lýsti þeirri afstöðu sinni að hann vildi ekki fara til Grikklands. Þannig kom kærandi í veg fyrir flutning sinn úr landi.

Með hliðsjón af framangreindu telur kærunefnd að kærandi hafi tafið afgreiðslu umsóknar sinnar og það hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er ekki uppfyllt.

Í ljósi framangreinds er því ekki fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Endurupptöku á máli hans er þar með hafnað.


 

Úrskurðarorð:

 

Kröfu kæranda er hafnað.

The appellant‘s request is denied.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                     Sandra Hlíf Ocares

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum