Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 197/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 27. febrúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 197/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24020013

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 31. janúar 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. janúar 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 7. desember 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 24 daga dvöl frá 9. febrúar til 4. mars 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. janúar 2024. Hinn 31. janúar 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 1. febrúar 2024, var kæranda gefinn frestur til 7. febrúar 2024 til þess að leggja fram frekari athugasemdir, skýringar eða fylgigögn vegna málsins. Frekari gögn voru ekki lögð fram af hálfu kæranda vegna málsins.  

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í rökstuðningi með kæru sinni vísar kærandi til fyrirliggjandi ákvörðunar Útlendingastofnunar. Hún kveðst vilja sækja um vegabréfsáritun að nýju og kveðst staðfesta að ferðaáætlun sín sé sannleikanum samkvæm. Að öðru leyti lagði kærandi ekki fram sérstakar málsástæður samhliða stjórnsýslukæru sinni.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 2, þ.e. að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kom að kæranda bæri að sækja um dvalarleyfi vegna eðli vinnunnar sem hún hygðist sinna hér á landi. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsókna kærenda fór fram hjá íslenska sendiráðinu í Peking, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Líkt og fram kemur í hinni kærðu ákvörðun hafi kæranda borið að sækja um dvalarleyfi vegna eðli vinnunnar sem hún hygðist sinna hér á landi. Hin fyrirhugaða sjálfboðavinna felst einkum í garðyrkju í gróðurhúsum fyrir [...] í [...]. Í málaskrá Útlendingastofnunar er vísað til samráðs við Vinnumálastofnun sem telji fyrirhugaða sjálfboðavinnu ólaunaða vinnu við það sem kalla megi efnahagslega starfsemi, þ.e. störfin skapi verðmæti á markaði. Kærunefnd hefur nú yfirfarið gögn málsins og tekur undir með Útlendingastofnun að kæranda beri að sækja um dvalarleyfi vegna hinnar fyrirhuguðu dvalar, svo sem á grundvelli 67. gr. laga um útlendinga eða eftir ákvæðum VI. kafla laganna. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

Kærunefnd bendir kæranda á að hún geti sótt um dvalarleyfi á grundvelli framangreindra lagaákvæða. Með þessum athugasemdum hefur kærunefnd þó ekki tekið afstöðu til skilyrða fyrir útgáfu slíkra dvalarleyfa.   

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að ekki væru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, sbr. ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. og d-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum