Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 91/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 25. janúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 91/2024

í stjórnsýslumálum nr. KNU23120032 og KNU23120033

 

Kæra [...] og [...]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 10. desember 2023 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir A) og [...], fd. [...] (hér eftir B), ríkisborgarar Kína, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 5. desember 2023, um að synja þeim um vegabréfsáritanir til Íslands.

Af kæru má ráða að kærendur krefjist þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að þeim verði veittar vegabréfsáritanir til Íslands.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og bárust kærur þeirra fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsóknum, dags. 7. nóvember 2023, óskuðu kærendur eftir vegabréfsáritunum til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 15 daga dvöl, frá 24. febrúar til 9. mars 2024. Umsóknum kærenda var synjað með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 5. desember 2023. Hinn 10. desember 2023 bárust kærunefnd kærur frá kærendum ásamt greinargerðum og fylgigögnum.

III.    Málsástæður og rök kærenda

Kærandi A lagði fram greinargerð fyrir hönd þeirra beggja en þar er vísað til umsókna kærenda og hinna kærðu ákvarðana Útlendingastofnunar. Þau kveðast hafa átt í ástarsambandi í um þrjú ár og hafi ætlað sér að trúlofast á Íslandi. Ferðaáætlunin hafi verið vandlega útbúin en þau hafi notið aðstoðar umboðsskrifstofu varðandi umsóknir um vegabréfsáritanir, en vegna yfirsjónar hafi undirbúningur fylgigagna verið ófullnægjandi. Vísað er til þess að tilgangur ferðarinnar er afar skýr en þau vilji upplifa náttúrufegurð og prófa íslenska matargerð áður en þau halda aftur til heimaríkis.

Hvað atvinnumálin varða benda kærendur á að þau hafi lagt fram gögn tengd atvinnu þeirra, en þau starfi bæði sjálfstætt (e. freelance) Kærandi A sem ráðgjafi í rekstri veitingahúsa og almannatengslum, en kærandi B sem bloggari og áhrifavaldur. Kærendur telja að umsóknir sínar, eftir nánari undirbúning á kærustigi, uppfylli öll skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana. Bendir kærandi A á að hann verði að fara aftur til heimaríkis vegna verkefnis sem honum beri að sinna 15. mars 2024. Þá þarf kærandi B að annast einstæða móður sína og köttinn hennar.

Meðal fylgigagna sem lögð voru fram á kærustigi eru yfirlit yfir væntanlegar flugferðir kærenda auk skjala til nánari útskýringa á atvinnumálum þeirra.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu. 

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðunum kærenda er merkt í reiti 2 og 13 vegna synjunar á umsóknum þeirra, þ.e. að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, auk þess sem rökstudd ástæða væri til að draga í efa ásetning kærenda um að yfirgefa Schengen-svæðið áður en umbeðnar áritanir renna út. Í ákvörðunum kærenda eru frekari athugasemdir en í tilvikum beggja er vísað til þess að ekki hafi tekist að sannreyna atvinnu þeirra. Uppfylltu kærendur þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kærendum jafnframt leiðbeint um að þau gætu óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvarðana í máli kærenda.

Meðferð umsókna kærenda fór fram hjá íslenska sendiráðinu í Peking, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Líkt og þegar hefur komið fram lögðu kærendur fram frekari gögn til skýringa á atvinnumálum sínum á kærustigi. Við meðferð málanna hjá utanríkisþjónustunni og Útlendingastofnun greindu þau bæði frá sjálfstæðu störfum sínum í greinargerðum, dags. 26. október 2023, en í málaskrá Útlendingastofnunar er vísað til þess að ekki hafi verið færðar sönnur á atvinnu né fastar tekjur. Þau fylgigögn sem kærendur leggja fram á kærustigi sýna skjáskot af samfélagsmiðlum, skjáskot af excel-skjölum, og skjáskot af millifærslum í netbanka. Þá eru gögnin ekki vottuð með neinum sérstökum hætti sem staðfest gæti uppruna þeirra. Er það því mat kærunefndar að kærendur hafi ekki fært sönnur á að þau hafi stöðuga atvinnu né fastar tekjur. Í því samhengi lítur nefndin sérstaklega til þess að stöðug atvinna sé meðal undirstöðuatriða til sönnunar á ásetningi um að yfirgefa Schengen-svæðið að ferð lokinni, sbr. d-lið 1. mgr. 14. gr. auk viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, sbr. ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir auk þess sem rökstudd ástæða er til að draga í efa ásetning kærenda til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkja Schengen-samstarfsins fyrir lok gildistíma áritunar, sbr. b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kærenda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verða hinar kærðu ákvarðanir um að synja kærendum um vegabréfsáritanir til landsins því staðfestar.

Loks bendir kærunefnd á að kærendur geti sótt um vegabréfsáritanir að nýju, telji þau sig uppfylla skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritunar.

 

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

 

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum