Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 90/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 25. janúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 90/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23110142

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 29. nóvember 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. nóvember 2023, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 23. október 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir sex daga dvöl frá 18. til 23. desember 2023. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. nóvember 2023. Hinn 29. nóvember 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda. Frekari fylgigögn voru lögð fram með tölvubréfi, dags. 1. desember 2023.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Kærandi lagði ekki fram sérstaka greinargerð vegna málsins. Í kæru sinni vísar hann til tiltekinna fylgigagna sem hann hafði ekki lagt fram samhliða umsókn sinni en kveðst hafa lagt þau fram með tölvubréfi til utanríkisþjónustunnar nokkrum dögum síðar. Í ákvörðun í máli hans er vísað til tiltekinna fylgigagna sem skort hafi með umsókn en hann kveðst hafa lagt hin umbeðnu gögn fram.

Meðal fylgigagna sem lögð voru fram á kærustigi eru bankayfirlit, yfirlit yfir áætluð flug, ferðasjúkratrygging, og skjal sem greinir frá aðgöngu hans í háskóla í Bandaríkjunum (I-20).

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reiti 2 og 16, þ.e. að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, auk þess að ekki voru færðar sönnur á handhöfn viðeigandi og gildrar ferðasjúkratryggingar. Í ákvörðun kæranda má líka finna frekari athugasemdir, þar sem vísað er til þess að tiltekin fylgigögn hafi skort með umsókn. Nánar til tekið hafi kærandi hvorki lagt fram eyðublöðin I-20 og I-94, né flugáætlun. Þá væru bankayfirlit og ferðasjúkratrygging kæranda ófullnægjandi. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá íslenska sendiráðinu í Washington D.C., en hún var lögð fram hjá VFS global skrifstofunni í New York, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Líkt og þegar hefur komið fram lagði kærandi fram ný fylgigögn á kærustigi og bar fyrir sig að hafa lagt þau fram með tölvupósti til utanríkisþjónustunnar á meðan mál hans var til meðferðar þar. Kærandi hefur ekki lagt fram nein haldbær gögn til sönnunar á fyrrgreindum tölvupósti og telur kærunefnd því ekki forsendur til þess að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi með vísan til þess. Meðal nýrra fylgigagna á kærustigi er eyðublaðið I-20, yfirlit yfir flugferðir kæranda, ný bankayfirlit og ný ferðasjúkratrygging. Kærunefnd hefur yfirfarið hin framlögðu fylgigögn kæranda og lítur m.a. til þess að kærandi lagði ekki fram I-94 eyðublaðið, sem honum bar að gera sem þriðjaríkisborgari í Bandaríkjunum. Þá lítur kærunefnd einnig til þess að yfirlit yfir flugferðir kæranda inniheldur ekki flug inn á Schengen-svæðið heldur eingöngu áætluð flug kæranda frá Íslandi til Svíþjóðar, þaðan út af Schengen-svæðinu 23. desember 2023, til annarra ríkja, og loks aftur til Bandaríkjanna 16. janúar 2024. Loks lítur kærunefnd til bankayfirlits kæranda en samkvæmt skjalinu er það útgefið 2. desember 2023, en á að tilgreina fjármagnsstöðu kæranda 31. desember 2023, en var þó lagt fyrir kærunefnd með tölvubréfi, dags. 1. desember 2023. Telur kærunefnd því ekki unnt að taka umrætt skjal til greina.

Líkt og fram kemur í hinni kærðu ákvörðun réðist niðurstaða máls kæranda hjá Útlendingastofnun hvort tveggja á ófullnægjandi sjúkratryggingu, en einnig öðrum fylgigögnum sem skorti sem olli því að rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar væru ekki færð fram. Hvort um sig væru nægjanleg ástæða til þess að synja umsókn kæranda um vegabréfsáritun, sbr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Er það mat kærunefndar að kærandi hafi hnekkt synjunarástæðu er lýtur að ferðasjúkratryggingu en hin forsenda ákvörðunar Útlendingastofnunar stendur óhögguð. Um það vísast einkum til flugáætlunar, I-94 eyðublaðs, og bankayfirlits kæranda. Að mati kærunefndar eru því framkomin gögn og málsástæður kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hans um vegabréfsáritun.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að ekki væru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sbr. ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum