Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 189/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 22. febrúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 189/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24010038

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 12. janúar 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. janúar 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 2. janúar 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 30 daga dvöl frá 29. mars til 27. apríl 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. janúar 2024. Hinn 12. janúar 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda. Frekari fylgigögn voru lögð fram með tölvubréfi, dags. 16. janúar 2024.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru vísar kærandi til fyrirhugaðrar ferðar sinnar til Frakklands, Belgíu og Hollands, ásamt ferð til Íslands á meðan páskafrí stendur í háskólanámi hans. Kærandi kveðst vonsvikinn með ákvörðun Útlendingastofnunar og óskar þess að kærunefnd endurskoði hina kærðu ákvörðun. Kærandi kveðst meðvitaður um mikilvægi þess að hlíta lögum og reglum um dvöl útlendinga en tilgangur hans sé eingöngu ferðamennska. Kærandi kveðst standa sig vel í námi og muni fara aftur til Bretlands að lokinni dvöl á Schengen-svæðinu.

Í greinargerð, sem kærandi sendi með tölvubréfi, dags. 16. janúar 2024, vísar kærandi til fyrirliggjandi ákvörðunar Útlendingastofnunar. Hann vísar til misskilnings vegna símtals við fulltrúa utanríkisþjónustunnar og að ferðaáætlun sín á Íslandi hafi ekki verið nægjanlega skýr. Kærandi kveðst munu ferðast með vini sínum og að þeir ætli sér að gista á hóteli í [...]. Megintilgangur ferðar þeirra sé ferðamennska, þar sem þeir vilji verja páskafríi sínu á Íslandi, og kynnast þar íslenskri menningu og landslagi. Ferðaáætlun þeirra byggist einkum á að heimsækja þekkt kennileiti, kynnast íslenskri matarmenningu og öðrum upplifunum. Kærandi kveðst munu, ásamt ferðafélaga sínum, hlíta íslenskum lögum tengdum dvalarheimild sinni.

Meðal fylgigagna sem lögð voru fram á kærustigi eru nýjar flugáætlanir.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 2, 10, og 11, þ.e. að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar ásamt því að rökstudd ástæða væri til að draga í efa yfirlýsingar varðandi áreiðanleika ferðaáætlunar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kæmi að ekki hafi tekist að sannreyna né staðfesta áætlaðar flugferðir kæranda, hann hafi ekki lagt fram gildar flugbókanir frá Íslandi, né lagt fram bókun fyrir gistingu á Íslandi. Þá hafi kærandi lagt fram bókun fyrir ferjusiglingu frá Bretlandi til Frakklands ásamt hótelbókun í Amsterdam, Hollandi. Væri því vafi um ferðaáætlun hans. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Samkvæmt gögnum málsins dvelst kærandi og stundar nám í Bretlandi, og var umsókn hans lögð fram hjá VFS skrifstofunni í Lundúnum, en meðferð umsóknarinnar var hjá Utanríkisráðuneytinu, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Á kærustigi lagði kærandi fram nýjar flugbókanir en við meðferð málsins hjá Utanríkisráðuneytinu og Útlendingastofnun hafi hann lagt fram bókun um beint flug frá Heathrow flugvelli í Lundúnum til Keflavíkurflugvallar, dags. 2. apríl 2024 og aftur til Heathrow flugvallar 10. apríl 2024. Líkt og fram kemur í hinni kærðu ákvörðun hafi ekki tekist að sannreyna né staðfesta framangreindar bókanir. Fyrir kærunefnd lagði kærandi fram flug frá Heathrow til Keflavíkur, dags. 2. apríl 2024, nema nú með millilendingu í Frankfurt, Þýskalandi. Þá liggja ekki fyrir neinar breytingar á fyrirhugaðri gistingu kæranda, né ferjusiglingu til Frakklands og gistingu í Amsterdam, Hollandi.

Við meðferð málsins hjá Utanríkisráðuneytinu hafi símaviðtal verið tekið við kæranda, þar sem fram hafi komið upplýsingar sem geri ferðaáætlun kæranda óáreiðanlega, einkum með hliðsjón af lítilli þekkingu hans á Íslandi. Hafi kærandi t.a.m. ekki geta greint frá tilteknum fyrirætlunum, ferðum, eða viðburðum á Íslandi, né geta tilgreint ákveðin kennileiti, auk þess sem kærandi hygðist að mestu nota Uber sem samgöngumáta. Kærunefnd hefur yfirfarið framangreint, með hliðsjón af þeim fylgigögnum sem kærandi hefur lagt fram á kærustigi. Af gögnunum má ráða að þekking kæranda af Íslandi og fyrirætlunum hans hér á landi er afar takmörkuð. Þá valda breytingar á flugbókunum kæranda því að eftir stendur aðfaranótt 11. apríl 2024 þar sem hann er ekki með bókaða gistingu neins staðar. Þá lítur kærunefnd einnig til þess að frá Lundúnum til Íslands eru allt að 10 bein farþegaflug á degi hverjum. Í ljósi þess telur kærunefnd að bókanir kæranda, sem gera ráð fyrir um sex og hálfs klukkutíma flugferðum, með millilendingu í Frankfurt, Þýskalandi, í stað um þriggja klukkutíma flugferða með beinu flugi, ótrúverðuga.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að ekki væru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar ásamt rökstuddri ástæðu til þess að draga í efa áreiðanleika yfirlýsinga varðandi ferðaáætlun, sbr. ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum