Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 210/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 28. febrúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 210/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24020018

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 2. febrúar 2024 kærði  [...], fd.  [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. janúar 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022,  Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 10. janúar 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir átta daga dvöl frá 13. til 20. apríl 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. janúar 2024. Hinn 2. febrúar 2024 barst kærunefnd kæra ásamt fylgigögnum frá kæranda. Frekari gögn voru lögð fram með tölvubréfi, dags. 4. febrúar 2024.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru vísar kærandi til þess að hún hafi lagt fram ferðaáætlun með umsókn sinni um vegabréfsáritun. Á kærustigi leggi kærandi fram nýja ferðaáætlun sem hún telji skýrari og gefi betri mynd af fyrirhugaðri ferð hennar. Kærandi hafi bókað ferð hjá íslensku ferðaþjónustufyrirtæki sem innihaldi samgöngur, gistingu, og leiðsögn. Kærandi hafi þó beðið með greiðslu ferðarinnar, sem hún hyggst gera eftir að hafa fengið samþykkta vegabréfsáritun. Í greinargerð, dags. 4. febrúar 2024, vísar kærandi til hinnar kærðu ákvörðunar. Kærandi sé mjög áhugasöm um íslenska náttúrufegurð og yrði þakklát fengi hún tækifæri til þess að heimsækja landið. Kærandi starfi sem handritshöfundur sem krefjist innblásturs og því hafi kærandi mikinn áhuga á ferðalögum.

Á kærustigi lagði kærandi fram skjal sem innihélt ferðaáætlun frá ferðaþjónustufyrirtækinu [...].

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 11, þ.e. að upplýsingar um skilyrði og tilgang fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika yfirlýsinga varðandi ferðaáætlun. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að vafi væri um fyrirætlanir kæranda að ferðast til Íslands. Þá hefði hótelbókun hennar verið afbókuð. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá íslenska sendiráðinu í Peking, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Á kærustigi lagði kærandi fram ferðaáætlun frá fyrirtækinu [...] en af gögnum málsins verður ekki ráðið að kærandi hafi bókað umrædda ferð, og þá tilgreinir hún sérstaklega í kæru sinni að hún hafi ekki greitt fyrir ferðina. Þá kemur einnig fram í gögnum málsins að fulltrúi sendiráðsins í Peking hafi tekið símaviðtal við kæranda, sem hafi leitt í ljós takmarkaða þekkingu kæranda á Íslandi. Kærunefnd hefur nú yfirfarið gögn málsins og ákvörðun Útlendingastofnunar. Að mati nefndarinnar hefur kærandi ekki lagt fram gögn eða málsástæður sem eru til þess fallnar að hnekkja mati stofnunarinnar. Í því samhengi lítur kærunefnd einkum til þess að hótelbókanir kæranda hafi verið afbókaðar, og að ekki liggi fyrir staðfesting fyrir bókun á meintri ferð hjá [...], líkt og málatilbúnaður kæranda vísar til. Er því óhjákvæmilegt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að upplýsingar kæranda um tilgang og skilyrði dvalar, ásamt yfirlýsingum um ferðaáætlun væru óáreiðanlegar, sbr. b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum