Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Nr. 200/2018 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 200/2018

Fimmtudaginn 23. ágúst 2018

A

gegn

Vinnumálastofnun

 

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 8. júní 2018, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. maí 2018, um að fella niður bótarétt hennar í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 17. ágúst 2017. Þann 12. apríl 2018 var kærandi boðuð í stöðupróf hjá Vinnumálastofnun og tekið var fram að um skyldumætingu væri að ræða. Kærandi sendi tölvupóst til Vinnumálastofnunar samdægurs og lét vita að hún þyrfti að taka barn sitt með í prófið þar sem hún væri ekki með gæslu fyrir barnið. Kæranda var þá tjáð að ekki væri heimilt að mæta með barn í próf og að hún fengið úthlutað öðrum tíma. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 30. apríl 2018, var óskað eftir skriflegri afstöðu hennar vegna höfnunar á þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Í bréfinu vakti stofnunin athygli á því að samkvæmt 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar geti sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, án gildra ástæðna, þurft að sæta biðtíma á grundvelli laganna. Skýringar bárust frá kæranda samdægurs með tölvupósti. Með ákvörðun, dags. 16. maí 2018, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 8. júní 2018. Með bréfi, dags. 11. júní 2018, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 22. júní 2018. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 25. júní 2018, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust frá kæranda 11. júlí 2018 og voru þær sendar Vinnumálastofnun til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 16. júlí 2018.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi verið boðuð í próf hjá Vinnumálastofnun með dags fyrirvara. Hún hafi látið vita að hún hefði ekki neinn til að gæta dóttur sinnar á meðan og kæmist því ekki í prófið. Kærandi hafi skrifað tölvupóst til Vinnumálastofnunar samdægurs en ekki fengið neitt svar. Viku síðar hafi hún skrifað annan tölvupóst og þá fengið símtal þar sem því hafi verið haldið fram að hún hefði neitað að mæta í prófið. Kærandi tekur fram að hún hafi aldrei neitað að mæta í prófið. Hún hafi fengið þær upplýsingar að henni yrði úthlutaður annar tími fyrir prófið en ekki hafi verið haft samband við hana til þess að finna nýjan tíma. Vegna athafnaleysis Vinnumálastofnunar hafi henni verið refsað með því að taka af henni bætur í tvo mánuði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar er vísað til þess að í ákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Ákvæðið eigi einnig við ef atvinnuleitandi mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í athugasemdum með 58. gr. frumvarps þess er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega tekið fram að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun. Kærandi hafi gefið þær skýringar að hún hafi ekki getað mætt í úrræðið þar sem hún hafi ekki haft gæslu fyrir barn sitt. Vinnumálastofnun telji að skýringar kæranda geti ekki réttlætt höfnun á starfi. Skortur á dagvistun fyrir börn atvinnuleitanda hafi almennt ekki verið talin gild skýring fyrir því að atvinnuleitandi hafni þátttöku í vinnumarkaðsúrræðum. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með 57. gr. frumvarps þess er varð að lögum nr. 54/2006 segi berum orðum að „það að hafa ekki barnapössun fyrir ung börn á dagvinnutíma telst ekki réttlæta höfnun á starfi samkvæmt því ákvæði.“

Vinnumálastofnun bendir á að samkvæmt a-lið 13. gr. og g-lið 1. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit og í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess tryggða til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé ekki fallist á að atvinnuleitendur geti takmarkað þátttöku sína í úrræðum á vegum stofnunarinnar vegna skorts á barnagæslu. Óvíst sé hvaða úrræði eða atvinnutilboð kærandi hafi verið fær um að sinna á umræddum tíma og þá hvort hún uppfyllti grunnskilyrði um virka atvinnuleit á meðan hún var skráð atvinnulaus. Það sé mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram séu ekki gildar í skilningi laga nr. 54/2006. Þá hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 58. gr. laganna með fjarveru sinni og því skuli hún sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim, sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins, verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi boðuð í stöðupróf hjá Vinnumálastofnun í apríl 2018 og tekið var fram að skyldumæting væri í prófið. Vísað var til þess að ef kærandi gæti ekki mætti þyrfti hún að tilkynna það fyrir fram. Kærandi sendi tölvupóst til Vinnumálastofnunar samdægurs og lét vita að hún þyrfti að taka barn sitt með í prófið þar sem hún væri ekki með gæslu fyrir barnið. Kæranda var þá tjáð að ekki væri heimilt að mæta með barn í próf og að hún myndi fá úthlutað öðrum tíma. Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi ekki nýjan tíma í prófið.

Við mat á því hvort heimilt sé að beita viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laganna kemur til skoðunar hvort kærandi hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum með sannanlegum hætti, enda um íþyngjandi ákvörðun að ræða. Að mati nefndarinnar verður því að gera þær kröfur að fyrirliggjandi gögn bendi eindregið til þess að rétt sé að beita því úrræði. Í ljósi þess að kæranda var tjáð að hún fengi úthlutað öðrum tíma í umrætt próf verður ekki fallist á að hún hafi í reynd hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Hin kærða ákvörðun er því felld úr gildi og lagt fyrir Vinnumálastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

 

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 16. maí 2018, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum