Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0ir%20f%C3%A9lagsm%C3%A1lar%C3%A1%C3%B0uneytis

Úrskurður félagsmálaráðuneytisins 4/2021

Fimmtudaginn 25. mars 2021 var í félagsmálaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

 

ú r s k u r ð u r:

 

Með erindi til félagsmálaráðuneytisins, dags. 10. ágúst 2019, kærðu Ixplorer ehf., kt. 491013-0600, og […], sem er rússneskur ríkisborgari, fd. […], ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. júlí 2019, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […] í því skyni að ráða sig til starfa hjá Ixplorer ehf.

I. Málavextir og málsástæður.

Mál þetta varðar ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […], sem er rússneskur ríkisborgari, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Ixplorer ehf. Sótt hafði verið um umrætt atvinnuleyfi á grundvelli 8. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga.

Fyrrnefndri ákvörðun Vinnumálastofnunar vildu kærendur ekki una og kærðu þeir ákvörðunina til ráðuneytisins með bréfi, dags. 10. ágúst 2019, þar sem kærendur krefjast þess að ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 12. júlí 2019 um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar, verði felld úr gildi. Jafnframt kemur fram að kærendur telji málsmeðferð Vinnumálastofnunar haldna verulegum annmörkum og að ákvörðun stofnunarinnar hafi ekki verið í samræmi við ákvæði laga um atvinnuréttindi útlendinga og stjórnsýslulaga.

Í erindi kærenda kemur fram að kærendur telji ákvörðun Vinnumálastofnunar byggða á röngum grundvelli þar sem Vinnumálastofnun hafi byggt ákvörðun sína á því að skilyrði a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga hafi ekki verið uppfyllt. Fram kemur að kærendur séu ósammála því mati Vinnumálastofnunar.

Í erindi kærenda kemur jafnframt fram að í ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi stofnunin bent á að fjölmiðlafræði sé kennd meðal annars í Háskóla Íslands en að misjafnt sé hvort gerð sé krafa um fjölmiðlafræðimenntun á háskólastigi hér á landi þegar um störf fjölmiðlafulltrúa sé að ræða. Í erindi kærenda er fallist á framangreint en kærendur benda aftur á móti á að í c- og d- lið 1. mgr. 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga sé það eitt af skilyrðum þess að heimilt sé að veita tímabundið atvinnuleyfi á grundvelli sérfræðiþekkingar að sérfræðiþekkingin sé hlutaðeigandi atvinnurekanda nauðsynleg og að sérfræðiþekkingin feli í sér háskólamenntun sem viðurkennd sé hér á landi.

Þá er rakið í erindi kærenda að hlutaðeigandi atvinnurekandi sé lítið félag sem meðal annars sinni leit að skipsflökum á hafsbotni og björgun verðmæta úr þeim. Telja kærendur að rökstuðningur Vinnumálastofnunar, þess efnis að atvinnurekanda beri að leita að starfsfólki með aðstoð stofnunarinnar nema slík leit sé fyrirsjáanlega árangurslaus, sé mjög almennur og að ekki hafi verið sýnt fram á að leit að starfsfólki með menntun og reynslu viðkomandi útlendings myndi skila árangri. Það sé aftur á móti mat kærenda að leit að fjölmiðlafræðingi með sömu menntun, starfsreynslu og hæfni og hlutaðeigandi atvinnurekandi leiti eftir meðal einstaklinga sem þegar hafi aðgengi að innlendum vinnumarkaði yrði árangurslaus. Í því sambandi telja kærendur ekki fullnægjandi að Vinnumálastofnun vísi til þess að á Íslandi séu 102 fjölmiðlafræðimenntaðir einstaklingar skráðir án atvinnu hjá stofnuninni, enda verði ekki séð hvernig íslenskur fjölmiðlafræðingur sem lokið hefur námi í fjölmiðlafræði frá íslenskum háskóla geti uppfyllt þær kröfur sem gerðar séu til þess sem ráðinn verður til að gegna umræddu starfi hvað varðar þekkingu á rússnesku stofnana-, fjölmiðla- og dómstólakerfi. Þá telji kærendur með öllu ófullnægjandi að Vinnumálastofnun vísi til þess að umtalsverður fjöldi ríkja sem áður hafi verið hluti Sovétríkjanna sé nú innan Evrópska efnahagssvæðisins.

Í erindi kærenda kemur enn fremur fram að í samræmi við meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar sé rétt nálgun að mati kærenda að beita heimild 3. mgr. 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga í máli þessu og víkja frá skilyrði a- liðar 1. mgr. 7. gr. laganna. Í því sambandi taka kærendur fram að hlutaðeigandi atvinnurekandi sé lítið félag sem hafi ekki tök á því að fara í kostnaðarsama og tímafreka leit að einstaklingi sem hafi þá eiginleika sem viðkomandi útlendingur hefur og því hafi ákvörðun Vinnumálastofnunar að mati kærenda verið ómálefnaleg auk þess sem hún hafi falið í sér brot á meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar, sbr. stjórnsýslulög nr. 37/1993.

Erindi kærenda var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags 29. ágúst 2019. Í fyrrnefndu bréfi óskaði ráðuneytið meðal annars eftir upplýsingum um hvaða sjónarmið hafi legið til grundvallar mati Vinnumálastofnunar á því hvort umrætt starf krefjist sérfræðiþekkingar í skilningi 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga. Var þess óskað að umbeðin umsögn og upplýsingar bærust ráðuneytinu fyrir 13. september 2019. Með tölvubréfi dags. 16. september 2019 óskaði Vinnumálastofnun eftir frekari fresti til þess að veita ráðuneytinu umsögn og var umbeðinn frestur veittur til 24. september 2019 með tölvubréfi ráðuneytisins, dags. 17. september 2019.

Með bréfum ráðuneytisins til Vinnumálastofnunar, dags. 27. september, 11. október, og 24. október 2019 ítrekaði ráðuneytið erindi sitt til Vinnumálastofnunar, dags. 29. ágúst 2019, þar sem óskað var eftir umsögn stofnunarinnar og frekari upplýsingum.

Í umsögn Vinnumálastofnunar, dags. 1. nóvember 2019, ítrekar stofnunin afstöðu sína sem fram kemur í ákvörðun stofnunarinnar, dags. 12. júlí 2019, þar sem synjað er um veitingu umrædds atvinnuleyfis. Fram kemur í umsögninni að samkvæmt umsóknargögnum í tengslum við umsókn um umrætt atvinnuleyfi og málatilbúnaði kærenda hafi verið ljóst að sótt hafi verið um atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar og hafi meðferð umsóknarinnar hjá stofnuninni verið hagað í samræmi við það. Jafnframt kemur fram að umrætt starf hafi verið tilgreint í ráðningarsamningi sem „fjölmiðlafulltrúi – almannatengill“. Enn fremur kemur fram að óumdeilt sé að mati Vinnumálastofnunar að viðkomandi útlendingur hafi lokið háskólamenntun í blaðamennsku eða fjölmiðlun (e. journalism) og hafi stofnuninni borist afrit af þýðingu prófskírteinis útlendingsins en samkvæmt skírteininu hafi hann lokið menntun á sviði blaðamennsku eða fjölmiðlun árið 2000 frá Moscow State University.

Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur jafnframt fram að samkvæmt umsóknargögnum starfi hlutaðeigandi atvinnurekandi meðal annars við leit að skipsflökum á hafsbotni og við björgun verðmæta úr þeim auk þess sem tekið hafi verið fram í gögnunum að einhver skipsflakanna sem hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi fundið hafi verið rússnesk að uppruna. Enn fremur tekur Vinnumálastofnun fram í umsögn sinni að við afgreiðslu málsins hafi stofnunin óskað eftir upplýsingum frá hlutaðeigandi atvinnurekanda um ástæður þess að fyrirtækið teldi nauðsynlegt að viðkomandi útlendingur hafi starfstöð hér á landi til að sinna þeim verkefnum sem tilgreind hafi verið í umsóknargögnunum. Þá hafi Vinnumálastofnun jafnframt óskað eftir frekari rökstuðningi fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis með hliðsjón af aðstæðum á innlendum vinnumarkaði, meðal annars aukins atvinnuleysis,  sem og innan Evrópska efnahagssvæðisins. Að mati Vinnumálastofnunar falli það í hlut stofnunarinnar að meta hvort skilyrði a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga séu uppfyllt í hverju máli fyrir sig. Í máli þessu hafi það verið mat atvinnuráðgjafa Vinnumálastofnunar að leit að starfsmanni innanlands og innan Evrópska efnahagssvæðisins yrði ekki árangurslaus og að ekki hafi verið til staðar sérstakar ástæður sem hafi réttlætt að vikið væri frá meginreglu 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga hvað varðar forgangsrétt ríkisborgara aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði en í mars 2019 hafi skráð atvinnuleysi innanlands ekki mælst hærra frá því í apríl 2014.

Þá kemur fram í umsögn Vinnumálastofnunar að samkvæmt umsóknargögnum í tengslum við umrætt atvinnuleyfi og rökstuðningi hlutaðeigandi atvinnurekanda fyrir veitingu leyfisins hafi það verið mat kærenda að sérstaða viðkomandi útlendings fælist í menntun hans sem og færni hans í rússnesku og þekkingu á rússnesku samfélagi og rússnesku fjölmiðlaumhverfi. Vegna verkefna hlutaðeigandi atvinnurekanda í Eystrasalti og tengslum verkefnanna við Rússland og rússnesk yfirvöld telji hlutaðeigandi atvinnurekandi viðkomandi útlending sérstaklega til þess fallinn að gegna því starfi sem hér um ræðir. Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur fram að það hafi verið mat stofnunarinnar að sérfræðiþekking viðkomandi útlendings felist einkum í sérstöðu hans sem ríkisborgara Rússlands en almennt telji stofnunin að tungumálaþekking einstaklings vegna uppruna hans geti ein og sér ekki skapað grundvöll fyrir veitingu atvinnuleyfis skv. 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga. Í umsögninni kemur jafnframt fram að það hafi verið mat Vinnumálastofnunar að ekki hafi verið sýnt fram á að hvaða marki viðvera og sérfræðiþekking viðkomandi útlendings sé nauðsynleg hlutaðeigandi atvinnurekanda umfram þann tíma sem viðkomandi útlendingi sé þegar heimilt að starfa hér á landi á grundvelli undanþágu d-liðar 23. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga eða í allt að 90 daga á ári. Það hafi því verið afstaða Vinnumálastofnunar að stofnuninni bæri að synja um veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa viðkomandi útlendingi á grundvelli 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga.

Með bréfi ráðuneytisins til kærenda, dags. 14. nóvember 2019, var kærendum gefinn kostur á að gera athugasemdir við umsögn Vinnumálastofnunar, dags. 1. nóvember 2019 og var frestur veittur til 29. nóvember 2019. Með tölvubréfi kærenda til ráðuneytisins dags. 29. nóvember 2019, var óskað eftir fresti til 2. desember 2019 til að veita ráðuneytinu umbeðnar athugasemdir og var umbeðinn frestur veittur með tölvubréfi ráðuneytisins til kærenda, dags. 29. nóvember 2019.

Í svarbréfi kærenda, dags. 2. desember 2019, ítreka kærendur áður fram komin sjónarmið sín í málinu, meðal annars þess efnis að sú málsmeðferð sem umsókn þeirra hafi fengið hjá Vinnumálastofnun hafi ekki verið í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar, einkum meðalhófsreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Í svarbréfi kærenda kemur meðal annars fram að kærendur telji umsögn Vinnumálastofnunar benda til þess að stofnunin hafi ekki skoðað efnisatriði málsins ítarlega. Í því sambandi benda kærendur á að í umsögn sinni hafi Vinnumálastofnun byggt á því að umsókn kærenda hafi byggst á þjóðerni og tungumálakunnáttu viðkomandi útlendings. Hafna kærendur þeirri nálgun Vinnumálastofnunar og benda á að umrædd umsókn um tímabundið atvinnuleyfi hafi byggt á því að hlutaðeigandi atvinnurekandi þurfi að ráða fjölmiðlafulltrúa til þess að hafa umsjón með fjölmiðlaumfjöllun í Rússlandi vegna rússnesk kafbáts og hafi það verið rakið ítarlega í umsóknargögnum í tengslum við umrædda umsókn um atvinnuleyfi. Umræddur fjölmiðlafulltrúi verði því að mati kærenda að hafa þekkingu og reynslu af fjölmiðla- og stofnanaumhverfi í Rússlandi og að þar hafi menntun og starfsreynsla viðkomandi útlendings haft úrslitaáhrif. Jafnframt kemur fram að kærendur telji útilokað að finna megi íslenskan blaðamann með sömu menntun og starfsreynslu og umræddur útlendingur sem jafnframt tali rússnesku. Í því sambandi telja kærendur ótækt að Vinnumálastofnun vísi til skráðs atvinnuleysis á innlendum vinnumarkaði meðal blaðamanna. Þá telja kærendur ekki málefnalegan grundvöll fyrir umræddri ákvörðun Vinnumálastofnunar að vísa til þess að skráð atvinnuleysi hafi numið 6,3% innan Evrópska efnahagssvæðisins og 3,7% á innlendum vinnumarkaði við mat á því hvort leit eftir starfsmanni í umrætt starf, sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði, hafi verið fyrirsjáanlega árangurslaus. Að mati kærenda megi skilja vísanir Vinnumálastofnunar til tölulegra upplýsinga um skráð atvinnuleysi á þann veg að stofnunin búi ekki yfir upplýsingum um starfsfólk með þá sérfræðiþekkingu sem hafi verið grundvöllur umsóknar kærenda um umrætt atvinnuleyfi og hafi jafnframt engin ráð til þess að leita eftir starfsfólki með slíka sérfræðiþekkingu. Að mati kærenda er það mat Vinnumálastofnunar ekki í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar, einkum rannsóknarreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Þá mótmæla kærendur í svarbréfi sínu athugasemdum Vinnumálastofnunar hvað varðar þörf hlutaðeigandi atvinnurekanda til þess að sá sem ráðinn verði til að gegna starfinu verði með starfstöð á Akureyri. Fram kemur að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi þörf fyrir fjölmiðlafulltrúa og þar sem atvinnurekandinn sé með starfstöð á Akureyri þurfi sá sem ráðinn verði til að gegna starfinu eðli málsins samkvæmt einnig að hafa starfsstöð þar með öðrum starfsmönnum atvinnurekandans. Þá telja kærendur ekki þörf á að rökstyðja frekar hvers vegna hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi þörf fyrir að ráða umræddan útlending til starfa umfram þá 90 daga sem honum er þegar heimilt að stafa hér á landi án atvinnuleyfis á grundvelli 23. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga þar sem hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi í hyggju að ráða til starfa fjölmiðlafulltrúa með umrædda menntun og þekkingu í fullt starf allt árið.

II. Niðurstaða.

Samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, er atvinnurekanda og útlendingi sameiginlega heimilt að kæra til félagsmálaráðuneytisins ákvarðanir Vinnumálastofnunar á grundvelli laganna. Í máli þessu er kærð ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. júlí 2019, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar, sbr. 8. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga.

Atvinnuleyfi vegna starfa útlendinga á innlendum vinnumarkaði eru veitt í samræmi við lög um atvinnuréttindi útlendinga, reglugerðir sem settar eru með heimild í þeim lögum og stefnu íslenskra stjórnvalda hverju sinni að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga þeirra.

Samkvæmt 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga er heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna starfs hér á landi sem krefst sérfræðiþekkingar. Skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis samkvæmt ákvæðinu eru meðal annars að starfið sé samkvæmt lögum eða venju hér á landi þess eðlis að það krefjist þess að sá sem gegnir því búi yfir tiltekinni sérfræðiþekkingu sem og að sérfræðiþekking þess útlendings sem í hlut á hverju sinni sé nauðsynleg hlutaðeigandi fyrirtæki og feli í sér háskóla-, iðn-, list- eða tæknimenntun sem viðurkennd er hér á landi, sbr. b-, c- og d-lið 1. mgr. ákvæðisins. Samkvæmt ákvæðinu er Vinnumálastofnun ætlað að óska staðfestingar á menntun útlendingsins með viðeigandi skilríkjum í samræmi við íslenskar reglur telji stofnunin slíkt nauðsynlegt.

Í athugasemdum við 6. gr. frumvarps þess er varð að 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, kemur meðal annars fram að ákvæðið fjalli um veitingu atvinnuleyfa sem heimila atvinnurekendum að ráða til sín útlendinga sem ætlað er að gegna störfum sem krefjast sérfræðiþekkingar. Sé við það miðað „að tiltekinn útlendingur hafi til að bera sérfræðiþekkingu sem er nauðsynleg hlutaðeigandi fyrirtæki. Með ákvæði þessu eru leitast við að koma til móts við þarfir atvinnulífsins um sérfræðiþekkingu sem ekki er fáanleg meðal þeirra sem þegar hafa aðgengi að innlendum vinnumarkaði. Lagt er til að meginreglan verði að sérfræðiþekking hlutaðeigandi útlendinga takmarkist við háskóla-, iðn-, list- eða tæknimenntun sem viðurkennd er hérlendis auk þess að fullnægja þeim menntunarkröfum sem gerðar eru til starfsins hér á landi og að laun og önnur starfskjör séu til jafns við heimamenn í sömu störfum.“

Með 4. tölul. 122. gr. laga nr. 60/2016, um útlendinga, var 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga breytt, meðal annars í því skyni að skýra nánar til hvaða sjónarmiða skuli líta við mat á því hvaða störf það séu sem geti talist til starfa sem krefjast sérfræðiþekkingar þeirra sem þeim gegna. Í athugasemdum við umrætt ákvæði í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 60/2016, um útlendinga, segir að við framangreint mat skuli líta til gildandi laga á hverjum tíma sem og venju hér á landi þar sem miðað skuli við að um sé að ræða starf sem krefst sérfræðiþekkingar þegar það starf sem um ræðir er þess eðlis að aðrir en þeir sem hafa tiltekna sérfræðiþekkingu geti ekki gegnt því. Er því ekki gert ráð fyrir að starf teljist starf sem krefst sérfræðiþekkingar af þeirri ástæðu einni að atvinnurekandi óski eftir að starfsmaður með tiltekna sérfræðiþekkingu gegni því þegar um er að ræða starf þar sem almennt eru ekki gerðar slíkar kröfur til þeirra sem slíkum störfum gegna samkvæmt íslenskum lögum eða venju á innlendum vinnumarkaði.“ Þá segir enn fremur að þetta sé lagt til þar sem mikilvægt þykir að kveða skýrt á um í 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga til hvaða sjónarmiða Vinnumálastofnun skuli líta við mat á því hvort tiltekið starf sé þess eðlis að það krefjist sérfræðiþekkingar þess sem ráðinn verður til að gegna því. Á þetta ekki síst við svo Vinnumálastofnun verði unnt að leggja mat á hvort skilyrði ákvæðisins hvað varðar eðli starfsins sem um ræðir sé uppfyllt áður en lagt er mat á hvort þau skilyrði sem fram koma í ákvæðinu og lúta að sérþekkingu viðkomandi útlendings sem ætlað er að gegna starfinu séu uppfyllt.“

Af efni ákvæðis 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga má því ráða að tilgangur ákvæðisins sé að koma til móts við þarfir atvinnulífsins hvað varðar sérfræðiþekkingu sem ekki er fáanleg meðal þeirra sem þegar hafa aðgengi að innlendum vinnumarkaði í þeim tilvikum þegar starf er þess eðlis að ekki er unnt að gegna því nema hlutaðeigandi starfsmaður hafi til að bera tiltekna sérfræðiþekkingu í formi menntunar sem tilgreind er í d-lið 1. mgr. ákvæðisins. Líkt og ákvæðið kveður á um er við það miðað að það starf sem um ræðir sé þess eðlis að sá sem því gegnir þurfi að búa yfir tiltekinni háskóla-, iðn-, list- eða tæknimenntun sem viðurkennd er hér á landi til að geta gegnt starfinu.

Samkvæmt 2. mgr. 8. gr. laganna er Vinnumálastofnun í undantekningartilvikum heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi á grundvelli ákvæðisins ef viðkomandi útlendingur hefur yfir að ráða sérþekkingu sem jafna má við þá menntun sem tilgreind er í d-lið 1. mgr. ákvæðisins. Í slíkum tilvikum er Vinnumálastofnun ætlað að óska staðfestingar á sérþekkingu þess útlendings sem í hlut á hverju sinni í samræmi við íslenskar reglur ef stofnunin telur slíkt nauðsynlegt. Í athugasemdum við 6. gr. frumvarps þess er varð að 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, kemur meðal annars fram að með þessu sé „átt við sérþekkingu útlendings sem byggist á langri starfsreynslu við tiltekið starf sem leiðir til sérhæfðrar fagþekkingar hans og að sú sérþekking verði ekki fengin með öðrum hætti. Mikilvægt er að unnt sé að sýna fram á starfsreynslu útlendings við tiltekin störf en hér er ekki átt við þekkingu sem útlendingur kann að afla sér með þátttöku í einstökum námskeiðum.“ Af framangreindu má að mati ráðuneytisins ráða að undantekning 2. mgr. 8. gr. laganna lúti að þeirri sérþekkingu sem sá sem ráðinn er til að gegna starfi sem krefst sérfræðiþekkingar í skilningi laganna býr yfir og jafna má við þá menntun sem talin er upp í d-lið 1. mgr. 8. gr. laganna.

Það er því lögbundið skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis á grundvelli 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar, að um sé að ræða starf sem krefst sérfræðiþekkingar. Það er jafnframt lögbundið skilyrði fyrir veitingu framangreinds atvinnuleyfis á grundvelli 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga að sá útlendingur sem í hlut á hverju sinni hafi lokið tiltekinni háskóla-, iðn-, list- eða tæknimenntun sem viðurkennd er hér á landi eða í undantekningartilvikum hefur yfir að ráða sérfræðiþekkingu sem jafna má við fyrrnefnda menntun að öðrum skilyrðum ákvæðisins uppfylltum, sbr. einnig b- og d-lið 1. mgr. ákvæðisins. Þá er það skilyrði að sérfræðiþekking útlendingsins sem í hlut á sé nauðsynleg hlutaðeigandi fyrirtæki, sbr. c-lið 1. mgr. sama ákvæðis.

Í ljósi framangreinds ber Vinnumálastofnun að meta hvort það starf sem um ræðir hverju sinni sé þess eðlis að það krefjist þess að sá sem því gegnir búi yfir tiltekinni sérfræðiþekkingu, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga áður en tímabundið atvinnuleyfi er veitt á grundvelli ákvæðisins. Við framangreint mat ber Vinnumálastofnun jafnframt að líta til þess hvort hér á landi séu gerðar sérstakar kröfur til þeirra sem gegna sambærilegum störfum án tillits til þess hvaða reglur gilda um sambærileg störf í öðrum ríkjum. Er í því sambandi meðal annars átt við kröfur um að þeir sem gegna umræddu starfi hér á landi búi yfir tiltekinni háskóla-, iðn-, list- eða tæknimenntun eða í undantekningartilvikum langri starfsreynslu við tiltekið starf sem leiðir til sérhæfðrar fagþekkingar sem nauðsynleg er til að viðkomandi starfsmanni sé unnt að gegna starfinu og jafna má við fyrrgreinda menntun. Er því að mati ráðuneytisins ekki átt við hvers konar kröfur um þekkingu eða hæfni sem vinnuveitandi kýs að gera til þeirra einstaklinga sem hann ræður til starfa sem krefjast ekki sérfræðiþekkingar í skilningi 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga. Enda þótt ætla verði atvinnurekendum ákveðið svigrúm í því sambandi eiga slíkar kröfur að mati ráðuneytisins ekki undir 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga.

Mál þetta lýtur að umsókn um tímabundið atvinnuleyfi til handa útlendingi sem er ríkisborgari í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins vegna starfa hér á landi hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda sem meðal annars leitar að skipsflökum á hafsbotni og sinnir björgun verðmæta úr þeim.

Af gögnum málsins má ráða að um sé að ræða starf fjölmiðlafulltrúa og að sá sem ráðinn verður til að gegna starfinu þurfi að tala rússnesku og hafa sérþekkingu á rússnesku fjölmiðla- og stofnanaumhverfi þar sem honum sé meðal annars ætlað að starfa sem fjölmiðlafulltrúi hlutaðeigandi atvinnurekanda gagnvart yfirvöldum og fjölmiðlum í Rússlandi auk þess að sinna kynningarstarfi. Enn fremur kemur fram í gögnum málsins að þeim sem ráðinn verður til að gegna umræddu starfi sé einnig ætlað að koma að því að samræma aðgerðir og móta stefnu hlutaðeigandi atvinnurekanda í samstarfi við aðra starfsmenn hans. Auk þess sem að framan greinir kemur fram í gögnum málsins að ein meginástæða þess að sótt hafi verið um umrætt atvinnuleyfi sé að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi fundið rússneskan kafbát sem sökk í Eystrasalti árið 1916 en eftirmálar fundarins sé verkefni sem muni taka mörg ár en meðal annars þurfi að leysa úr ágreiningi um aðkomu hlutaðeigandi atvinnurekanda sem og sænskra og rússneskra yfirvalda að fundinum.

Að mati ráðuneytisins verður ekki annað ráðið af gögnum málsins en að um sé að ræða starf fjölmiðla- og/eða upplýsingafulltrúa en samkvæmt lögum eða venju hér á landi eru ekki gerðar sérstakar menntunarkröfur til þeirra sem gegna slíku starfi. Að mati ráðuneytisins verður því í máli þessu að líta til þess að almennt eru ekki gerðar sérstakar kröfur hér á landi um að þeir sem ráðnir eru til starfa sem fjölmiðla- og/eða upplýsingafulltrúar búi yfir tiltekinni sérfræðiþekkingu í formi háskóla-, iðn-, list- eða tæknimenntunar í skilningi 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga. Þvert á móti virðist sem kröfur um menntun og reynslu einstaklinga sem gegna slíkum störfum og þar með sambærilegum störfum og um ræðir í máli þessu séu afar mismunandi og hafa kærendur meðal annars tekið undir þau sjónarmið í gögnum málsins. Það er því jafnframt mat ráðuneytisins að í máli þessu sé ekki um að ræða starf sem sé þess eðlis að einungis þeim sem búi yfir tiltekinni sérfræðiþekkingu í skilningi 1. mgr. 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, sé unnt að gegna því. Verður því að mati ráðuneytisins ekki annað ráðið af gögnum málsins en að ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi byggst á málefnalegum sjónarmiðum.

Í ljósi framangreinds er það mat ráðuneytisins að starf það sem um ræðir í máli þessu falli ekki undir starf sem krefst sérfræðiþekkingar í skilningi 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga þar sem það sé ekki þess eðlis að til að geta gegnt því sé nauðsynlegt að sá sem ráðinn verði búi yfir tiltekinni háskóla- iðn-, list- eða tæknimenntun sem viðurkennd er hér á landi. Þegar af þeirri ástæðu er það jafnframt mat ráðuneytisins að undanþáguheimild 2. mgr. 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum, komi ekki til álita í máli þessu. Þrátt fyrir framangreint dregur ráðuneytið það ekki í efa að það kunni að vera kostur að sá sem ráðinn verður til að gegna umræddu starfi búi yfir tiltekinni tungumálaþekkingu en að mati ráðuneytisins gerir krafa um slíka þekkingu starfsmanna, sem gegna sambærilegum störfum og um ræðir í máli þessu, það almennt ekki að verkum að um sé að ræða starf sem krefst sérfræðiþekkingar í skilningi 8. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga.

Með vísan til alls framangreinds er það niðurstaða ráðuneytisins að skilyrði 1. mgr. 8. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, séu ekki uppfyllt í máli þessu þar sem ekki sé um að ræða starf sem krefst sérfræðiþekkingar í skilningi ákvæðisins.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. júlí 2019, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […], í því skyni að ráða sig til starfa hjá Ixplorer ehf., skal standa.

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum