Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 82/2022-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 82/2022

Miðvikudaginn 22. júní 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 2. febrúar 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála afgreiðslu Vinnumálastofnunar vegna útreiknings á tekjutengdum atvinnuleysisbótum.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 11. janúar 2022 og var umsóknin samþykkt 2. febrúar 2022. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann sama dag og vísað til þess að útreikningur á tekjutengdum atvinnuleysisbótum tæki ekki mið af hans launum. Því til stuðnings lagði kærandi fram launaseðla fyrir tímabilið júlí til desember 2021. Með bréfi, dags. 23. febrúar 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 23. mars 2022, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að kærandi hefði ekki óskað eftir endurmati á fjárhæð atvinnuleysisbóta hjá stofnuninni. Vinnumálastofnun hefði kannað hvort endurmat á rétti til atvinnuleysisbóta samkvæmt 38. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar myndi leiða til betri niðurstöðu fyrir kæranda. Sú athugun hafi leitt í ljós að endurmat á grundvelli ákvæðisins myndi færa kæranda hámarksgreiðslur tekjutengdra atvinnuleysisbóta. Vinnumálastofnun hefði þegar afgreitt mál kæranda í samræmi við framangreint og leiðréttar greiðslur myndu taka mið af nýjum útreikningi við næstu útborgun. Með vísan til þess teldi Vinnumálastofnun að ekki væri uppi ágreiningur í málinu. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 24. mars 2022, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Svar barst frá kæranda 28. mars 2022. Í kjölfar samskipta úrskurðarnefndarinnar við kæranda var óskað eftir nánari skýringum, gögnum og formlegri umsögn frá Vinnumálastofnun. Þann 19. maí 2022 barst greinargerð Vinnumálastofnunar og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. maí 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð er afgreiðsla Vinnumálastofnunar vegna útreiknings á tekjutengdum atvinnuleysisbótum til kæranda. Kærandi vísaði til þess að útreikningur tæki ekki mið af hans launum og lagði fram launaseðla því til stuðnings. Í greinargerð Vinnumálastofnunar, dags. 23. mars 2022, til úrskurðarnefndarinnar, kom fram að endurmat á rétti til atvinnuleysisbóta samkvæmt 38. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar myndi færa kæranda hámarksgreiðslur tekjutengdra atvinnuleysisbóta. Þá var í greinargerð Vinnumálastofnunar frá 19. maí 2022 vísað til þess að stofnunin hefði þegar leiðrétt greiðslur til kæranda, þ.e. hann hefði þegar fengið greiddar atvinnuleysisbætur sem næmu hámarki tekjutengdra atvinnuleysisbóta þann tíma sem hann hafi verið skráður atvinnulaus hjá stofnuninni árið 2022. 

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum