Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 424/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 424/2021

Fimmtudaginn 4. nóvember 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 18. ágúst 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. ágúst 2021, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun í júlí 2020 og var umsóknin samþykkt 26. ágúst 2020. Þann 12. júlí 2021 fékk kærandi tölvupóst frá Vinnumálastofnun þar sem hann var boðaður í símaviðtal sem fara átti fram daginn eftir. Tekið var fram að ef ekki næðist í atvinnuleitanda þá teldist hann ekki í virkri atvinnuleit og að það gæti haft þær afleiðingar að greiðslur bóta yrðu felldar niður. Kærandi svaraði ekki þegar hringt var í hann á áður boðuðum tíma. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 21. júlí 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna þessa. Skýringar bárust frá kæranda 25. júlí 2021. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. ágúst 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006. 

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 18. ágúst 2021. Með bréfi, dags. 23. ágúst 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 16. september 2021. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. september 2021, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi ekki vitað að Vinnumálastofnun væri að reyna að ná í sig. Kærandi skoði ekki tölvupóstinn á hverju degi til að vita það. Í hinni kærðu ákvörðun komi fram að hann hafi fengið send smáskilaboð en það sé ekki satt. Kærandi hafi aðeins fengið smáskilaboð um að staðfesta atvinnuleit og um fjölda nýrra starfa á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Kærandi hafi beðist afsökunar á að hafa ekki svarað símtölum og tekið fram að það myndi ekki gerast aftur.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að ráðgjafi stofnunarinnar hafi hringt í kæranda þann 7. júlí 2021 til þess að biðja hann um að senda stofnuninni ferilskrá sína. Kærandi hafi ekki svarað símtali stofnunarinnar. Þann 8. og 12. júlí 2021 hafi aftur verið reynt að ná í kæranda. Þann 12. júlí 2021 hafi kærandi fengið tilkynningu frá ráðgjafa Vinnumálastofnunar sem hafi verið send með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboði í símanúmer hans. Í umræddri tilkynningu hafi kæranda verið tjáð að reynt hafi verið að hringja í hann undanfarið en hann ekki svarað. Þá hafi kæranda einnig verið tjáð að þann 13. júlí 2021 ætti hann von á símtali frá ráðgjafa stofnunarinnar og að lokatilraun yrði gerð til að ná í hann. Stofnunin hafi einnig bent kæranda á að ef ekki myndi nást í hann teldist hann ekki í virkri atvinnuleit sem gæti leitt til þess að greiðslur bóta myndu falla niður. Þann 13. júlí 2021 hafi ráðgjafi stofnunarinnar hringt í kæranda en hann hafi ekki svarað í símann. Með erindi, dags. 21. júlí 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að afgreiðslu umsóknar hans um greiðslur atvinnuleysistrygginga hefði verið frestað. Kæranda hafi verið tjáð að þar sem hann hafi ekki svarað símtölum stofnunarinnar í fjórgang væri óljóst hvort hann teldist vera í virkri atvinnuleit í skilningi laga nr. 54/2006. Óskað hafi verið eftir skriflegri afstöðu kæranda um hvers vegna hann svaraði ekki síma. Þann 25. júlí 2021 hafi Vinnumálastofnun borist skýringar frá kæranda þar sem eftirfarandi hafi komið fram: ,,Afsaka að hafa ekki svarað, mun passa mig á að gera það næst. Er kominn með vinnu og byrja á næstu dögum.“ Með erindi, dags. 18. ágúst 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem ekki hafi tekist að ná í hann vegna umrædds símaviðtals, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, væri bótaréttur hans felldur niður í tvo mánuði. Sú ákvörðun væri tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006. Skýringar kæranda hafi ekki verið metnar gildar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Mál þetta lúti að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sem sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt g-lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun bjóði upp á. Ákvæðið sé svo hljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Það liggi fyrir að kærandi hafi ekki svarað í síma þegar Vinnumálastofnun hafi haft samband við hann í fjórgang líkt og rakið sé að framan. Þann 12. júlí 2021, þegar ráðgjafi stofnunarinnar hafi verið búinn að reyna að ná í kæranda í þrígang, hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti og í smáskilaboðum um að hann ætti von á símtali klukkan 9:30 þann 13. júlí 2021 og að þá yrði gerð lokatilraun til að ná í kæranda símleiðis. Sú tilraun hafi ekki borið árangur.

Af framangreindri málsatvikalýsingu sé ljóst að einkar erfiðlega hafi gengið að ná sambandi við kæranda í gegnum síma. Ráðgjafi stofnunarinnar hafi þó leitað margra leiða til að ná sambandi við kæranda líkt og fram hafi komið. Í heildina hafi kærandi ekki svarað fjórum símtölum frá ráðgjafa stofnunarinnar. Skýringar kæranda hafi ekki verið metnar gildar, einkum í ljósi þess að ráðgjafi stofnunarinnar hafi hringt í það símanúmer sem kærandi hafi gefið upp ásamt því að láta kæranda vita fyrir lokasímtalið með smáskilaboðum og tölvupósti að hann ætti von á símtali frá ráðgjafa klukkan 9:30 þann 13. júlí 2021.

Vinnumálastofnun hafi óskað eftir afstöðu kæranda til samskiptamáta við stofnunina þegar hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur. Þegar atvinnuleitandi óski eftir rafrænum samskiptum við stofnunina hafi Vinnumálastofnun komið upplýsingum og boðum til þeirra atvinnuleitenda með tölvupósti, smáskilaboðum og tilkynningu á „Mínum síðum“. Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að með því að svara ekki símtölum frá stofnuninni hafi hann brugðist skyldum sínum samkvæmt 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og að honum beri að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr.,  3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að ráðgjafi Vinnumálastofnunar hugðist taka símaviðtal við kæranda 13. júlí 2021 sem kæranda var tilkynnt um daginn áður með tölvupósti og tilkynningu á „Mínum síðum“ stofnunarinnar. Tekið var fram að ef ekki næðist í hann teldist hann ekki í virkri atvinnuleit og það gæti haft þær afleiðingar að greiðslur bóta yrðu felldar niður. Kærandi svaraði ekki þegar hringt var í hann og hefur borið því við að hann hafi ekki vitað að Vinnumálastofnun væri að reyna að ná í sig, hann skoði ekki tölvupóst á hverjum degi.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var boðaður til Vinnumálastofnunar með sannanlegum hætti, þ.e. með tölvupósti og skilaboðum á „Mínum síðum“. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í boðað símaviðtal hjá Vinnumálastofnun. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Ákvæðið er fortakslaust og því er ekki heimilt að beita vægari úrræðum en þar er kveðið á um.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. ágúst 2021, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum