Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 463/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 17. nóvember 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 463/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22100022

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 5. október 2022 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. september 2022, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa henni frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir stofnunina að taka umsókn hennar til efnismeðferðar, aðallega með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 en til vara með vísan til 42. gr. sömu laga, sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna. Til þrautavara krefst kærandi þess að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar og henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 76. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 21. mars 2022. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann sama dag kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Hinn 25. apríl 2022 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 6. maí 2022, kom fram að kæranda hefði verið veitt réttarstaða flóttamanns þar í landi 3. mars 2017 og hefði gilt dvalarleyfi til 16. mars 2023. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 9. maí 2022, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 26. september 2022 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að henni skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 26. september 2022 og kærði kærandi ákvörðunina 5. október 2022 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 19. október 2022, ásamt fylgigögnum.

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hennar um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hún flutt til Grikklands.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hún hafi lagt á flótta frá heimaríki þar sem hún hafi óttast um líf sitt. Kærandi hafi hitt konu sem hafi boðist til að hjálpa henni að komast frá heimaríki til Grikklands þar sem hennar biði öryggi og m.a. starf á veitingastað. Kærandi hafi átt þrjú börn en eitt þeirra hafi látist árið 2018. Konan hafi sannfært hana um að börnin gætu fylgt í kjölfarið til Grikklands. Kærandi hafi komið til Grikklands með báti árið 2016 og dvalið fyrstu átta mánuðina í flóttamannabúðum. Á árinu 2017 hafi umrædd kona sótt hana í flóttamannabúðirnar og þvingað hana í vændi. Kærandi hafi starfað við vændi í Grikklandi frá árinu 2017 þangað til í janúar 2022. Hún hafi þá verið orðin heilsulítil vegna stöðugra verkja í móðurlífi sem hafi verið afleiðing vændisins. Þá hafi hún orðið fyrir ofbeldi af hálfu útsendara konunnar sem hafi ráðist á hana með hnífi. Kærandi hafi greint frá því að grísk yfirvöld hafi vísað konunni frá Grikklandi til Nígeríu en þrátt fyrir það hafi hún enn þurft að greiða henni.

Kærandi hafi ekki getað leitað til lögreglu í Grikklandi til að leggja fram kæru á hendur konunni. Ástæða þess sé sú að konan hafi lagt vúdú álög á kæranda með því að merkja sérstaklega á líkama hennar að ef hún myndi ljóstra upp um athæfi konunnar færi illa fyrir börnum hennar. Þann tíma sem kærandi hafi dvalið í Grikklandi hafi hún engrar aðstoðar notið frá grískum yfirvöldum. Allan tímann hafi hún verið þolandi mansals og þvinguð til vændis. Hafi kærandi haft þörf á að leita til læknis hafi konan komið henni til læknis. Kærandi hafi upplifað mikla fordóma í Grikklandi og vændiskaupendur hafi beitt hana ofbeldi, barið hana og nauðgað henni. Kærandi geti ekki farið aftur til Grikklands þar sem lífi hennar sé ógnað. Verði hún send aftur til Grikklands verði hún myrt eða eigi á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð en grísk stjórnvöld muni ekki veita henni viðeigandi vernd. Þá sé andleg og líkamleg heilsa kæranda bágborin.

Kærandi byggir kröfu sína á því að óheimilt sé að senda hana til svæðis þar sem hún hafi ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Þegar aðstæður séu með slíkum hætti beri íslenskum stjórnvöldum að taka mál til efnismeðferðar samkvæmt 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar í því sambandi til þess sem greinir í athugasemdum með 42. gr. í frumvarpi til laga um útlendinga en þar komi fram að ákvæðið um bann við endursendingum þangað sem líf fólks eða frelsi sé í hættu (non-refoulement) komi sjálfstætt til skoðunar þegar taka eigi ákvörðun um frávísun eða brottvísun til annars lands en heimalands útlendings, sbr. orðalag 2. mgr. 37. gr. frumvarpsins. Grundvallarreglan sem lögfest sé í 42. gr. laga um útlendinga byggist á skuldbindingum í alþjóðlegum mannréttindasamningum og viðurkenndum grundvallarreglum þjóðaréttar. Kærandi vísar til tilkynningar sem birtist á heimasíðu Útlendingastofnunar 11. nóvember 2019. Þar komi m.a. fram að endursendingum þeirra sem fengið hafi alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi ekki verið hætt en þær eigi sér þó aðeins stað að undangengnu einstaklingsbundnu mati á aðstæðum umsækjanda. Jafnframt komi fram að fólk sé ekki sent í hættu og sé ástæða til að ætla að umsækjandi verði í hættu eða hans bíði á annan hátt óviðunandi aðstæður í því landi sem hann skuli endursendur til, eða ef ekki sé talið öruggt að hann verði sendur áfram þaðan í slíkar aðstæður, komi ekki til greina að vísa umsækjanda til viðkomandi ríkis. Kærandi telji að með því að hún verði endursend til Grikklands fari íslensk stjórnvöld á svig við framangreinda yfirlýsingu. Kærandi telji einsýnt að verði hún send til Grikklands muni hennar bíða hörmuleg örlög.

Kærandi gerir athugasemdir við það sem fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar um að grísk stjórnvöld skorti hvorki vilja né getu til að taka á mansalsmálum með viðeigandi hætti. Kærandi vísar til þess að hún sé kona sem tilheyri minnihlutahópi sem mæti miklum fordómum í Grikklandi. Kærandi hafi verið eins konar þræll konunnar sem hafi látið hana stunda vændi og vegna þeirra álaga sem hún hafi lagt á kæranda hafi hún verið föst í mansalsánauð. Þá verði að líta til þess að kæranda hafi ekki verið unnt að leita sér aðstoðar og verndar lögreglunnar í Grikklandi. Skoða verði mál kæranda út frá þeirri staðreynd að hún sé frá Nígeríu þar sem máttur vúdú trúar sé mikill. Kærandi hafi ekki leitað ásjár lögreglunnar í Grikklandi af ótta við að töfrar/galdrar myndu rætast og börnin hennar myndu deyja. Þá gerir kærandi einnig athugasemd við þá fullyrðingu Útlendingastofnunar að hún hafi getað sótt um fjölskyldusameiningu fyrir börnin sín. Kærandi hafi ekki getað sótt um fjölskyldusameiningu þar sem hún hafi ekki greint frá því að eiga börn þegar hún kom til Grikklands árið 2016. Konan hafi gefið henni þau fyrirmæli að hún ætti að segjast einhleyp og barnlaus. Þá hafi kærandi ekki getað boðið börnum sínum upp á þær aðstæður sem hún hafi búið við í Grikklandi. Kærandi sé í mjög viðkvæmri stöðu vegna þess ofbeldis og fjárkúgunar sem hún hafi verið beitt. Kæranda hafi staðið raunveruleg ógn af konunni og hafi ekki getað um frjálst höfuð strokið allan þann tíma sem hún hafi búið í Grikklandi.

Kærandi byggir einnig á því að taka skuli mál hennar til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi vísar kærandi til þess að taka beri mið af viðmiðunarreglum 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Kærandi byggir á því að hún megi vænta þess að eiga erfitt uppdráttar vegna alvarlegrar mismununar. Kærandi telur engan vafa leika á því að endursending hennar til Grikklands muni sjálfkrafa leiða til þess að hún muni eiga verulega erfitt uppdráttar þar í landi sem flóttakona frá Nígeríu. Hún muni sæta alvarlegri mismunun á grundvelli kynþáttar og geti vænst þess að staða hennar verði verulega síðri en staða almennings í landinu. Af þeim sökum beri að taka mál hennar til efnismeðferðar hér á landi.

Kærandi byggir á því að miklar líkur séu á því að réttur hennar til menntunar verði fyrir borð borinn í Grikklandi. Þá telji hún að aðgengi hennar að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu verði síðra en almennings í Grikklandi. Kærandi vísar til þess að flóttafólk njóti ekki fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi og vísar til alþjóðlegrar skýrslu máli sínu til stuðnings. Það sé einskisvert að tala um að kærandi hafi átt rétt á heilbrigðisþjónustu í Grikklandi þar sem hún hafi vart á það reynt í ljósi þeirra aðstæðna sem hún hafi búið við. Kærandi muni auk þess ekki hafa aðgengi að húsnæði í Grikklandi eða félagslegri aðstoð og framfærslu. Þá séu möguleikar hennar til atvinnu verulega takmarkaðir. Kærandi hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafa verið með skattnúmer í Grikklandi og hafi haft heimild til atvinnu. Hún hafi þó ekki getað staðfest að svo væri. Það sé varhugavert að senda kæranda á ný út í það óvissuástand sem hún hafi búið við í Grikklandi þar sem hún búi ekki yfir fullnægjandi vissu um hvort hún hafi haft skattnúmer. Til viðbótar við framangreint hafi kærandi orðið fyrir fordómum í Grikklandi, henni verið nauðgað og hún barin af grískum vændiskaupendum.

Kærandi gerir þá kröfu til vara að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar og að henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 76. gr. laga um útlendinga sem þolanda mansals. Ákvæðið kveði á um að heimilt sé að veita þolanda mansals sem statt sé hér á landi endurnýjanlegt dvalarleyfi til eins árs þegar sérstaklega standi á vegna persónulegra aðstæðna viðkomandi. Verði kærandi endursend til Grikklands muni harmleikurinn endurtaka sig og hún verði á ný þolandi mansals. Kærandi vísar til þess að Útlendingastofnun hafi hvorki lagt mat á raunverulega stöðu kvenna og þolenda mansals af nígerískum uppruna í Grikklandi né að fram hafi farið einstaklingsbundið mat á stöðu kæranda sem glími við andlega erfiðleika og líkamlega heilsubresti vegna þess. Með vísan til þess telji kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki fullnægt rannsóknarskyldu sinni, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Kærandi gerir þá kröfu að lagt verði heilstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður hennar og metið hvort hún sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Aðstæður kæranda

Kærandi er kona á [...] sem stödd er einsömul hér á landi. Við meðferð málsins greindi kærandi frá því að hafa lagt á flótta frá heimaríki vegna ótta við hryðjuverkamenn sem hafi viljað henni mein. Hún hafi hitt konu í heimaríki sem hafi boðist til að hjálpa henni að komast frá heimaríki til Grikklands þar sem hennar biði öryggi og starf á veitingastað. Kærandi hafi farið með báti til Grikklands árið 2016, búið í flóttamannabúðum fyrstu átta mánuðina og hlotið alþjóðlega vernd þar í landi 3. mars 2017. Umrædd kona hafi sótt hana í flóttamannabúðirnar og í kjölfarið hafi kærandi verið neydd í vændi. Kærandi hafi fengið þau skilaboð frá konunni að ef hún hlýddi ekki myndu börnin hennar deyja. Kærandi hafi starfað við vændi frá árinu 2017 þar til í janúar árið 2022. Kærandi hafi í kjölfarið komið hingað til lands og sótt um alþjóðlega vernd. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera með verki í mjöðminni, hún hafi fengið verkjalyf vegna þeirra bæði í Grikklandi og hér á landi. Hún hugsi mikið, glími við minnisleysi, svefnvandmál og fái höfuðverk. Kærandi greindi frá því að hafa leitað til læknis í Grikklandi. Hún hafi enga aðstoð fengið frá grískum yfirvöldum en hafi atvinnuleyfi. Hún hafi upplifað mikið ofbeldi og fordóma í Grikklandi. Kærandi greindi frá því að hafa almannatrygginganúmer í Grikklandi en væri ekki viss hvort hún væri með skattnúmer.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi 3. mars 2017 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 16. mars 2023. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2021 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2021 – Report on International Religious Freedom: Greece (United States Department of State, 2. júní 2022);
  • 2022 – Trafficking in Persons Report – Greece (United States Department of State, 20. júlí 2022);
  • Amnesty International Report 2021/22 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 29. mars 2022);

  • Annual report 2020 (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2020);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 30. maí 2022);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 22. mars 2022);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • Country of Origin Information Report 2021 – Nigeria Trafficking in Human Beings (European Asylum Support Office, apríl 2021);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);

  • Freedom in the World 2021 – Greece (Freedom House, 26. febrúar 2021);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;

  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingar af vefsíðu RENATE samtakanna (http://www.renate-europe.net/contact-renate-in-greece);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 17. nóvember 2022);
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 3. nóvember 2022);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 17. nóvember 2022) og
  • World Report 2022 – European Union (Human Rights Watch, 10. janúar 2022).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslum European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá maí 2022 og Passerell frá nóvember 2020 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir flóttafólk þurfa einstaklingar sem hyggist nýta sér úrræðið að uppfylla ýmis skilyrði; þeir þurfi m.a. að hafa almannatrygginganúmer, skattnúmer (AFM), gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfi þeir að leggja fram ýmis gögn, m.a. framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búi í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfi þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búi. Samkvæmt skýrslu ECRE er erfitt að uppfylla skilyrðin. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.

Samkvæmt skýrslum ECRE og Passerell hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fari einungis fram á grísku en umsækjendur geti leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í framangreindri skýrslu að rómafólk og aðrir minnihlutahópar hafi orðið fyrir mismunun og fordómum í Grikklandi en gríska stjórnarskráin og þarlend lög leggi bann við slíkri mismunun. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Í fyrrnefndri skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa réttarstöðu flóttamanns í Grikklandi geti sótt um fjölskyldusameiningu. Þá má einnig ráða af framangreindum skýrslum að grísk stjórnvöld hafi verið gagnrýnd fyrir skorður á möguleikum einstaklinga sem hlotið hafi alþjóðlega vernd til fjölskyldusameiningar í Grikklandi. Kemur þar m.a. fram að samkvæmt grískum lögum eigi einstaklingar sem hlotið hafi viðbótarvernd í Grikklandi ekki rétt á fjölskyldusameiningu og þá séu ýmsar hömlur fyrir þá sem séu með réttarstöðu flóttamanns, m.a. vegna langs afgreiðslutíma umsókna, kröfu stjórnvalda til framlagningar gagna og erfiðleika við útgáfu vegabréfsáritana fyrir fjölskyldumeðlimi þegar umsókn hafi verið samþykkt.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mansal frá árinu 2022 kemur fram að grísk yfirvöld hafi sýnt aukna viðleitni í baráttunni gegn mansali. Þetta lýsi sér m.a. í aukinni viðleitni yfirvalda til að lögsækja og sakfella gerendur í fleiri mansalsmálum en áður. Þá hafi verið gerðar breytingar á lögum um mansal og stöðluðum verklagsreglum breytt. Áhersla hafi verið lögð á aukna þjálfun viðbragðsaðila sem feli meðal annars í sér greiningar á þolendum mansals og að þekkja einkenni slíkra brota. Þá hafi grísk yfirvöld kveðið á um fjárhagslega hvata fyrir fyrirtæki til að ráða til sín viðkvæma einstaklinga í atvinnuleit, þ. á m. þolendur mansals. Skipaður hafi verið vinnuhópur til að einfalda málsmeðferð og gera þolendum auðveldara með að sækja sér skaðabætur og forvarnarstarf aukið til muna. Þrátt fyrir framangreint hafi það reynst erfiðleikum bundið í einhverjum tilvikum fyrir þolendur mansals að fá nauðsynlegan stuðning, m.a. vegna skorts á fjármunum og plássi vegna aukins álags meðan heimsfaraldur stóð yfir.

Stjórnvöld, í samvinnu við frjáls félagasamtök, veita þolendum mansals m.a. skjól, sálfélagslegan stuðning, heilbrigðisþjónustu, lögfræðiaðstoð og aðstoð við aðlögun að samfélaginu. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi greint frá og tekið ákvörðun um framangreinda aðstoð hafi skort fjármagn til að slík aðstoð geti gengið eftir að fullu. Tvær stofnanir, EKKA (National Social Solidarity Center) og GSFPGE (General Secretariat for Family Policy and Gender Equality) veiti þolendum mansals almennt skjól og stuðning og haldi úti fjölda athvarfa og ráðgjafarmiðstöðva. Þrátt fyrir það þurfi í einhverjum tilvikum að vísa þolendum frá vegna skorts á getu, fjármagni og plássi. Þá geta þolendur mansals jafnframt haft beint samband við sérfræðinga hjálparsamtakanna A21 í gegnum neyðarnúmer allan sólarhringinn á öllum tungumálum. Þar geta þolendur mansals m.a. fengið upplýsingar um hvert eigi að leita eftir viðeigandi aðstoð.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Kærandi er kona á [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að líkamleg heilsa hennar væri ekki góð. Hún sé með verki í mjöðmum sem hún hafi fengið verkjalyf við bæði hér á landi og í Grikklandi. Hún hugsi mikið og eigi það til að missa minnið. Þá sofi hún illa og fái höfuðverk. Í læknabréfi frá Göngudeild sóttvarna, dags. 5. apríl 2022, kemur fram að kærandi hafi greint frá verkjum neðarlega í kviðarholi og með blæðingum. Kærandi telji sig heilbrigða en líði illa andlega. Í komunótu frá sálfræðingi á Göngudeild sóttvarna, dags. 23. maí 2022, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að vera með höfuðverk og hafa enga matarlyst. Hún eigi í erfiðleikum með svefn og hafi stöðugt áhyggjur af börnum sínum í Nígeríu. Í komunótu sálfræðings á Göngudeild sóttvarna, dags. 27. júní 2022, kemur fram að kæranda hafi verið mikið niðri fyrir. Hún sé með stöðugar áhyggjur, og geti ekki borðað og fái martraðir. Kærandi hafi fengið leiðbeiningar um að leita til bráðamóttöku geðdeildar ef andlegri heilsu hennar hrakar.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 9. maí 2022, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 6. október 2022, um frekari framlagningu gagna í málinu. Frekari heilsufarsgögn bárust með greinargerð 19. október 2022. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hennar. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hennar geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hún teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum, og ríkisborgarar Grikklands þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa leitað til læknis í Grikklandi í nokkur skipti.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hafa ekki fengið félagslega framfærslu eða húsnæði í Grikklandi en hafi haft atvinnuleyfi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, eins og áður sagði. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hún geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hún á að lögum rétt á og þarf á að halda í Grikklandi. Líkt og komið hefur fram eiga handhafar alþjóðlegar verndar í Grikklandi sem búa undir fátæktarmörkum m.a. rétt á fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna.

Í úrskurðum kærunefndar frá 25. mars 2020 í málum nr. KNU19090042 og KNU20020034, KNU19110022 og KNU19110023 og KNU19110050 og KNU19110051 er fjallað um skattnúmer í Grikklandi. Skattnúmer er nauðsynlegt til þess að starfa löglega í landinu, sækja um félagslegar bætur og gera leigusamning um húsnæði. Það er því grunnforsenda þess að geta framfleytt sér löglega í Grikklandi. Í því máli sem hér er til meðferðar er kærandi að mestu heilbrigð og vinnufær. Þá hefur kærandi greint frá því að hún hafi almannatrygginganúmer í Grikklandi og hafi mögulega skattnúmer. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi sé fær um að sækja sér þá þjónustu sem hún þarf á að halda í viðtökuríki, þrátt fyrir þær aðgangshindranir sem geti verið til staðar.

Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hún hafi orðið fyrir fordómum og mismunun í Grikklandi. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda verði hún fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Þá greindi kærandi einnig frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafa orðið fyrir ofbeldi, nauðgun og hafa verið þvinguð til að stunda vændi í Grikklandi. Þá óttist hún konuna sem neyddi hana í vændi og samverkamenn hennar. Í greinargerð kæranda greindi hún frá því að hafa ekki getað leitað til lögreglu vegna vúdú álaga sem umrædd kona hafi lagt á hana. Kærandi hefur greint stjórnvöldum, þ.m.t. talið lögreglu hér á landi, frá aðstæðum sínum sem gefur til kynna að umrædd vúdú álög hafi ekki afgerandi áhrif á vilja eða getu kæranda til að leita sér aðstoðar stjórnvalda. Kærunefnd tekur fram að þrátt fyrir að vúdú álög geti vissulega verið skýring á tregðu þolenda til að leita sér aðstoðar þá er ekki hægt að fallast á það með kæranda að ótti við slík álög útiloki eða komi í veg fyrir að hún geti leitað aðstoðar stjórnvalda í Grikklandi.

Þá má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hún leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Í greinargerð sinni og í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að umrædd kona sem hafi þvingað hana í vændi hafi verið send aftur til Nígeríu en lögreglan hafi verið á eftir henni. Af fyrirliggjandi gögnum verður ráðið að grísk yfirvöld hafi á síðustu árum lagt áherslu á að draga úr tíðni mansals í landinu og auka stuðning við þolendur. Þá geta þolendur mansals haft beint samband við sérfræðinga í gegnum neyðarnúmer allan sólarhringinn á öllum tungumálum. Þá veita alþjóðleg hjálparsamtök þolendum mansals í Grikklandi ýmsa aðstoð, m.a. húsnæðis- og lögfræðiaðstoð.

Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hún geti vænst þess að staða hennar, í ljósi sömu aðstæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðstæður hennar í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hennar til efnismeðferðar hér á landi.

Kærandi hefur borið fyrir sig að geta ekki sameinast börnum sínum í viðtökuríki. Samkvæmt gögnum málsins hafa einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns í Grikklandi möguleika á fjölskyldusameiningu þar í landi að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Ekki verður séð að það skipti máli í þessu sambandi þó kærandi hafi ekki greint frá börnum sínum er hún óskaði alþjóðlegrar verndar í Grikklandi. Þar má nefna að hafi umsókn um fjölskyldusameiningu ekki verið lögð fram innan þriggja mánaða eftir að einstaklingur fær réttarstöðu flóttamanns þarf hann að sýna fram á að hann geti framfleytt fjölskyldu sinni. Þessi skilyrði eru í samræmi við 1. mgr. 12. gr. tilskipunar nr. 2003/86/EC frá 22. september 2003 um fjölskyldusameiningu og kærunefnd telur ekkert benda til annars en að skilyrðin fyrir fjölskyldusameiningu í Grikklandi séu að öðru leyti í samræmi við regluverk Evrópusambandsins. Af framangreindum gögnum verður ráðið að kærandi geti sótt um fjölskyldusameiningu á grundvelli alþjóðlegrar verndar sinnar í Grikklandi, þó svo að kærandi þurfi að yfirstíga ákveðnar hindranir til þess. Að mati kærunefndar er ekki unnt að líta svo á að reglur um fjölskyldusameiningu í Grikklandi eða framkvæmd þeirra séu þess eðlis að litið verði svo á að kærandi eigi erfitt uppdráttar af þeim sökum þannig að það hafi þýðingu fyrir beitingu 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísaði þá einnig til þess að þrátt fyrir að geta fengið fjölskyldusameiningu í Grikklandi þá geti hún ekki boðið börnum sínum upp á þær aðstæður sem hún hafi þurft að búa við í Grikklandi. Kærunefnd vísar til þess að í Grikklandi geti einstæðar mæður sótt um fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Þá eru ýmis hjálparsamtök í landinu sem veita einstæðum mæðrum aðstoð m.a. húsnæðisaðstoð og aðstoð við að aðlagast samfélaginu.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Með vísan til framangreinds, þ.m.t. þeirra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, telur nefndin ljóst að verulega hafi dregið úr þeirri óvissu sem til staðar var í upphafi Covid-19 faraldursins og að ekkert bendi til þess að þjónusta til handhafa alþjóðlegrar verndar í Grikklandi hafi skerst á síðustu mánuðum þannig að það geti leitt til þess að taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi. Þá er bólusetning langt á veg komin í flestum aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu. Jafnframt kemur fram í gögnum málsins að kærandi hafi fengið bólusetningar gegn Covid-19.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 9. maí 2022 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hún lagði fram umsókn sína 21. mars 2022.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.

Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur hennar til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að hún verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf hennar eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við umfjöllun stofnunarinnar um aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi.

Vegna umfjöllunar kæranda um mat Útlendingastofnunar á sérstaklega viðkvæmri stöðu hennar, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 25. gr. sömu laga, vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu samkvæmt 1. mgr. Skilgreining á stöðu samkvæmt 1. mgr. hefur ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð.

Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda tekur kærunefnd fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali hennar var henni leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hún teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Þá fjallaði stofnunin um stöðu þolenda mansals og úrræði til handa þeim í Grikkland. Er það mat kærunefndar að mál kæranda hafi verið nægjanlega upplýst er varðar heilsufar hennar og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hennar. Þegar litið er til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga setur er ljóst að þau gögn sem liggja fyrir í málinu benda ekki til þess að frekari gagnaöflun geti haft áhrif á niðurstöðu málsins. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat og rannsókn Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda sem horfa beri til við mat á því hvort rétt sé að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi og telur rannsókn stofnunarinnar í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga.

Í greinargerð gerir kærandi athugasemdir við þá fullyrðingu Útlendingastofnunar að grísk stjórnvöld skorti hvorki getu né vilja til að taka á mansalsmálum með viðeigandi hætti innan refsivörslukerfis landsins. Líkt og fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar um mansal í Grikklandi og umfjöllun kærunefndar hér að framan hafa grísk stjórnvöld, samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 20. júní 2022, lagt áherslu á það síðustu ár að sporna gegn mansali í auknum mæli. Í grísku hegningarlögunum er kveðið á um tíu ára fangelsisrefsingu og sektir fyrir mansal. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi saksótt 342 sakborninga árið 2021 samanborið við sextán árið 2020 og dómstólar hafi sakfellt 116 gerendur árið 2021 samanborið við nítján árið 2020. Grísk yfirvöld hafi þá gripið til ýmissa aðgerða og sett á fót herferðir m.a. til að stuðla að vitundarvakningu í samfélaginu, auka sérfræðiþekkingu viðbragðsaðila og áhersla verið lögð á að rannsaka og ákæra í mansalsmálum. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er fjallað um ýmis úrræði til handa þolendum mansals í Grikklandi og þá hefur kærunefnd hér að framan einnig gert slíkum úrræðum skil. Kærunefnd telur því ekki ástæðu til að gera athugasemdir við umrædda umfjöllun Útlendingastofnunar.

Í greinargerð gerir kærandi þá kröfu til þrautavara að mál hennar verði tekið til efnislegrar meðferðar og að henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 76. gr. laga um útlendinga sem þolandi mansals. Í hinni kærðu ákvörðun var það niðurstaða Útlendingastofnunar að synja kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 76. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar tekur kærunefnd undir mat Útlendingastofnunar og telur að kærandi geti leitað réttar síns í Grikklandi og leitað á náðir þarlendra yfirvalda óttist hún um öryggi sitt. Af þeim sökum er þrautavarakröfu kæranda hafnað.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 21. mars 2022. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hún því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda bendir allt til þess að hún hafi verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hennar hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                            Sandra Hlíf Ocares


 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum