Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 490/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 1. desember 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 490/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22100062 og KNU22100063

 

Beiðni [...] og [...] um endurupptöku

  1. Málsatvik

    Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 399/2021, dags. 26. ágúst 2021, staðfesti nefndin ákvarðanir Útlendingastofnunar frá 20. apríl 2021 um að taka ekki umsóknir einstaklinga er kveðast heita [...], vera fæddur [...] (hér eftir A) og [...], vera fædd [...] (hér eftir B) og vera ríkisborgarar Bangladess (hér eftir kærendur), um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar og vísa þeim frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt fyrir kærendum 30. ágúst 2021.

    Hinn 6. september 2021 barst beiðni kærenda um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar og var þeirri beiðni synjað af kærunefnd 22. september 2021. Hinn 4. október 2021 barst kærunefnd beiðni kærenda um endurupptöku málsins. Var þeirri beiðni synjað af kærunefnd 4. nóvember 2021. Hinn 14. september 2022 barst kærunefnd önnur beiðni kærenda um endurupptöku sem nefndin synjaði með úrskurði 20. október 2022. Þá barst kærunefnd beiðni kærenda um endurupptöku að nýju 18. október 2022.

    Beiðni kærenda um endurupptöku byggir á 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

     

  2. Málsástæður og rök kæranda

    Kærendur byggja beiðni sína um endurupptöku á tvíþættum grundvelli, annars vegar á því að aðstæður hafi breyst verulega frá því að ákvörðun var tekin í máli þeirra og hins vegar að ákvörðun í málinu hafi byggst á ófullnægjandi upplýsingum. Kærendur vísa til dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-351/2022 frá 13. október 2022. Dómurinn hafi slegið því föstu að ekki hafi verið réttmætt að leggja til grundvallar að umsækjandi í því máli bæri ábyrgð á þeirri töf sem varð á meðferð máls hans og leiddi til þess að ekki varð af flutningi innan 12 mánaðar frestsins sem kveðið sé á um í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

    Kærendur byggja í fyrsta lagi á því að þau hafi ekki verið upplýst með formlegum og sannanlegum hætti á móðurmáli sínu um skyldur sínar gagnvart Útlendingastofnun og afleiðingar þess að mæta ekki í sýnatöku eða framvísa ekki bólusetningarvottorði. Kærendur vísa til þess að í máli þeirra liggi ekki fyrir fullnægjandi upplýsingar um hvernig staðið hafi verið að upplýsingagjöf af hálfu stoðdeildar ríkislögreglustjóra eða hvort túlkað hafi verið frá ensku eða íslensku yfir á móðurmál þeirra.

    Í öðru lagi byggja kærendur á því að það sé ekki í samræmi við 11. gr. laga um útlendinga að birta tilkynningu um frávísun frá Íslandi án nokkurs samráðs við lögmann viðkomandi aðila. Kærendur telja að dómur Héraðsdóms Reykjavíkur feli í sér áfellisdóm hvað varði birtingu og framkvæmd ákvarðana Útlendingastofnunar af hálfu stoðdeildar. Af dómnum megi ráða að það verklag sem hafi verið viðhaft gagnvart aðilum sem hafi ílengst hér vegna heimsfaraldurs, m.t.t. framkvæmdar um brottvísun hafi verið ófullnægjandi. Kærendur telja að endurupptaka þurfi mál þeirra vegna ófullnægjandi verklags. Kærendur telja því óásættanlegt að skella skuldinni á umsækjendur og synja þeim um efnismeðferð vegna ófullnægjandi verklags.

    Kærendur telja skýr og haldgóð rök fyrir því að 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga verði beitt í máli þeirra. Með hliðsjón af rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, meginreglu 11. gr. laga um útlendinga, hagsmunum þeim sem í húfi séu og hvernig nýfallinn dómur Héraðsdóms Reykjavíkur breytir niðurstöðu málsins sé ljóst að fullt tilefni sé til endurupptöku málsins.

  3. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum en ekki við komu til landsins. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærendur lögðu fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 3. október 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti 3. október 2021. Hinn 4. október 2021 barst kærunefnd beiðni kærenda um endurupptöku á þeim grundvelli að meira en 12 mánuðir væru liðnir frá því þau lögðu fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi. Með úrskurði kærunefndar í máli nr. 547/2021, dags. 4. nóvember 2021, var það niðurstaða kærunefndar að tafir á afgreiðslu umsókna kærenda hefðu verið á þeirra ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Var því ekki fallist á beiðni kærenda um endurupptöku máls þeirra.

Við meðferð framangreindrar endurupptökubeiðni kærenda barst kærunefnd tölvubréf frá stoðdeild 5. október 2021, þar sem fram kemur að 23. september 2021 hafi verið haft samband símleiðis við A og útskýrt fyrir honum að mál hans og fjölskyldu hans væri komið á borð stoðdeildar. Honum hafi verið tjáð að starfsmenn stoðdeildar kæmu að ræða við þau daginn eftir. Hann hafi greint frá því að skilja ensku mjög vel og þyrfti ekki túlk. Hinn 24. september 2021 hafi starfsmenn stoðdeildar farið að dvalarstað kærenda í Reykjanesbæ. Kærendum hafi verið birt Tilkynning um framkvæmd ákvörðunar um frávísun frá Íslandi til Ungverjalands. Hafi tilkynningin verið lesin upp fyrir kærendur á ensku. Meðan á birtingunni hafi staðið hafi kærendur verið í símasambandi við lögmann sinn. Kærendur hafi greint frá því að vilja ekki fara sjálfviljug til Ungverjalands. Þau hafi greint frá því að vera bólusett en hafi ekki viljað framvísa bólusetningarvottorði.

Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-351/2022 frá 13. október 2022, var það niðurstaða dómsins að þar sem stefnandi í því máli skildi takmarkaða ensku hefði verið fullt tilefni til að tryggja að hann skildi inntak Tilkynningar um framkvæmd ákvörðunar um frávísun frá Íslandi til Grikklands og mikilvægi þess að mæta til Covid-19 sýnatöku degi síðar. Að mati dómsins stæðist ekki grunnforsenda úrskurðarins um að stefnandi hefði tafið afgreiðslu málsins með því að mæta ekki í sýnatöku nema því yrði slegið föstu að stefnandi hefði áttað sig á því hvar og hvenær sýnatakan ætti að fara fram. Þá hafi neðanmálsgrein í fyrirliggjandi tilkynningu, sem fjallaði m.a. um hugsanlega ábyrgð stefnanda á töfum, einungis verið á íslensku. Samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga sé skylt að veita útlendingum leiðbeiningar um réttindi sín og meðferð máls á tungumáli sem ætla má með sanngirni að þeir geti skilið. Tók dómurinn fram að horfa yrði til íþyngjandi áhrifa þess að tafir á málsmeðferð væru taldar á ábyrgð umsækjanda um alþjóðlega vernd, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Dómurinn taldi því ekki réttmætt að leggja til grundvallar að stefnandi bæri ábyrgð á þeirri töf sem varð á meðferð máls hans og leiddi til þess að ekki varð af flutningi hans innan 12 mánaða frestsins. Hafi því úrskurður kærunefndar að þessu leyti verið byggður á efnisannmarka sem teljist verulegur. Af þeirri ástæðu var fallist á kröfu stefnanda um að ógilda úrskurð nefndarinnar frá 18. nóvember 2021 þar sem beiðni stefnanda var synjað um endurupptöku málsins.

Með tilliti til framangreinds telur kærunefnd að aðstæður kærenda í þessu máli séu ólíkar aðstæðum stefnanda í máli Héraðsdóms Reykjavíkur nr. E-351/2022 frá 13. október 2022. Í máli kærenda liggur fyrir að A hafi greint frá því að tala góða ensku og því afþakkað túlk. Kærendum hafi verið birt eyðublaðið Tilkynning um framkvæmd ákvörðunar um frávísun frá Íslandi til Ungverjalands, þar sem þeim hafi m.a. verið gerð grein fyrir því að neituðu þau að framvísa bólusetningarvottorðum gæti komið til þess að lögregla og stjórnvöld litu þannig á að tafir á framkvæmd og öðrum framgangi málsins væru á ábyrgð kærenda. Eyðublaðið hafi verið lesið upp fyrir kærendur á ensku sem bókað hafi verið í dagbók lögreglu að þau hafi skilið vel og þau skrifað undir það. Telur því kærunefnd að 11. gr. laga um útlendinga hafi verið uppfyllt í máli kærenda. Þá liggur fyrir í gögnum málsins að kærendur hafi verið í sambandi við lögmann sinn á meðan á heimsókn starfsmanna stoðdeildar stóð og þegar framkvæmd ákvörðunarinnar var útskýrð fyrir kærendum.

Í ljósi framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé hægt að fallast á að úrskurður kærunefndar útlendingamála, dags. 26. ágúst 2021, hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða að atvik málsins hafi breyst verulega frá því að fyrrgreindur úrskurður var kveðinn upp, sbr. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga.

Að öllu framangreindu virtu er kröfu kærenda um endurupptöku málsins því hafnað.


 

Úrskurðarorð:

 

Kröfu kærenda um endurupptöku er hafnað.

The appellants‘ request to re-examine the case is denied.

 

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                Gunnar Páll Baldvinsson



Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum