Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 508/2022-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 508/2022

Fimmtudaginn 15. desember 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 23. október 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. október 2022, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 9. nóvember 2020 og var umsóknin samþykkt 6. janúar 2021. Þann 10. ágúst 2022 var ferilskrá kæranda send til B vegna starfs hjá fyrirtækinu. Þann 12. ágúst 2022 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar um að kæranda hefði ekki verið boðið starf hjá fyrirtækinu þar sem hann hefði ekki viljað vinna. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 4. október 2022, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á starfi hjá B. Skýringar bárust frá kæranda og í kjölfarið var honum tilkynnt með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. október 2022, að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. október 2022. Með bréfi, dags. 26. október 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 4. nóvember 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa verið settur á tveggja mánaða bið vegna höfnunar á atvinnutilboði. Í fyrsta lagi hafi kærandi ekki fengið neitt atvinnutilboð og í öðru lagi hafi fyrirtækið verið að leita að smiði sem kærandi sé ekki. Viðkomandi hafi einnig fundist skrýtið að Vinnumálastofnun hefði sent umsókn fyrir kæranda. Hann hafi sagst ætla að merkja við hjá Vinnumálastofnun að kærandi væri ekki sá sem hann væri að leita að. Löngu seinna hafi kærandi fengið skilaboð um að hann hefði hafnað vinnunni og boðið að skila inn skýringum sem hann hafi gert. Vinnumálastofnun hafi ekki tekið skýringar kæranda gildar og hann fái ekkert meira um málið að segja. Stofnunin hafi tekið þessa ákvörðun, án þess að kærandi gæti borið hönd fyrir höfuð sér og svipt hann lífsviðurværinu.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 9. nóvember 2020. Með erindi, dags. 6. janúar 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 90%.

Þann 10. ágúst 2022 hafi Greiðslustofu Vinnumálastofnunar borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað starfi hjá B sem smiður/carpenter. Samkvæmt upplýsingum frá atvinnurekanda, sem hafi borist stofnuninni þann 12. ágúst 2022, hafi kærandi ekki viljað vinna. Með erindi, dags. 4. október 2022, hafi kæranda verið veittur frestur til að koma að frekari athugasemdum vegna höfnunar á umræddu starfi. Í framhaldinu hafi borist skýringar frá kæranda þar sem hann hafi upplýst um ástæður þess að hann hefði hafnað starfi hjá B. Í skýringum kæranda segi:

„Vegna atvinnutilboðs B þá fékk ég símtal frá þessum aðila og var hann að leita af manni til að leysa smið af og benti ég honum á að ég hefði enga reynslu í því og sagði hann þá að hann hefði orðið hissa að fá mína umsókn. Sagðist hann ætla að merkja við viðeigandi reit og sanmæltumst við að vinnumálastofnun hefði sent þessa umsókn fyrir mistök.“

Stofnunin hafi metið skýringar kæranda ófullnægjandi og kæranda hafi verið tilkynnt þann 12. október 2022 að bótaréttur hans hefði verið felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Ágreiningur í málinu snúi að því hvort ástæður kæranda vegna umræddrar höfnunar séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virki atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segi orðrétt í 4. mgr. sömu greinar:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Kærandi hafi gefið skýringar á höfnun til Vinnumálastofnunar. Í máli þessu liggi fyrir að kærandi hafi hafnað starfstilboði hjá B. Samkvæmt upplýsingum frá atvinnurekanda sem hafi borist stofnuninni þann 12. ágúst 2022 hafi kærandi ekki viljað vinna. Í skýringum frá kæranda komi meðal annars fram að hann hafi tjáð atvinnurekanda að hann hefði enga reynslu sem smiður. Þeir hafi sammælast um að atvinnurekandi myndi merkja við viðeigandi reit og að umsókn hans hefði verið send fyrir mistök til stofnunarinnar. Þann 9. ágúst 2022, þ.e. áður en stofnunin hafi miðlað kæranda í umrætt starf, hafi stofnunin leitað upplýsinga frá atvinnurekanda um hvort hann gerði kröfu um að viðkomandi aðili væri menntaður húsasmiður. Í tölvupósti frá atvinnurekanda þann 10. ágúst 2022 komi fram að reynsla og áhugi sé meira en nóg. Auk þess komi fram að liðtæk manneskja með vinnusemi gæti orðið þeim að liði og að atvinnurekandi væri með menntaða smiði sem gætu leiðbeint öðrum. Með vísan til þessa og skýringa frá atvinnurekanda telji Vinnumálastofnun skýringar kæranda ekki réttlæta höfnun á starfi samkvæmt 57. grein laganna.

Líkt og áður hafi verið rakið hvíli rík skylda á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Að mati Vinnumálastofnunar séu skýringar kæranda ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnutilboði. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að þær skýringar sem kærandi hafi fært fram í máli þessu geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun telji því að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Samkvæmt gögnum málsins var ferilskrá kæranda send B þann 10. ágúst 2022. Fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun þann 12. ágúst 2022 að kæranda hefði ekki verið boðið starfið þar sem hann hefði ekki viljað vinna. Kærandi hefur vísað til þess að hann hafi ekki fengið neitt atvinnutilboð og að fyrirtækið hafi verið að leita að smiði sem hann sé ekki. Af hálfu Vinnumálastofnunar hefur komið fram að áður en kæranda hafi verið miðlað í umrætt starf, eða 9. ágúst 2022, hafi stofnunin leitað upplýsinga frá atvinnurekanda um hvort gerð væri krafa um að viðkomandi væri menntaður húsasmiður. Í tölvupósti frá atvinnurekanda þann 10. ágúst 2022 komi fram að reynsla og áhugi sé meira en nóg. Auk þess komi fram að liðtæk manneskja með vinnusemi gæti orðið að liði en atvinnurekandi væri með menntaða smiði sem gætu leiðbeint öðrum.

Úrskurðarnefndin telur að framkomin gögn bendi til þess að kærandi hafi í raun hafnað starfi hjá B. Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir, sbr. c. lið 1. mgr. ákvæðisins. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að þær skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. október 2022, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum