Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 530/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 15. desember 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 530/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22110078

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

  1. Málsatvik

    Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 128/2022, dags. 17. mars 2022, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. janúar 2022, um að taka ekki umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 21. mars 2022.

    Kærandi lagði fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 21. nóvember 2020 og var umsókn hans synjað um efnismeðferð af hálfu Útlendingastofnunar og honum vísað frá landinu. Kærunefnd útlendingamála staðfesti ákvörðun Útlendingastofnunar með úrskurði nr. 220/2021, dags. 20. maí 2021. Hinn 31. maí 2021 lagði kærandi fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar. Beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa var synjað af kærunefnd 18. júní 2021. Í kjölfarið fór kærandi til Grikklands 4. ágúst 2021. Hinn 21. nóvember 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins. Var þeirri beiðni synjað af kærunefnd 16. desember 2021. Kærandi lagði í annað sinn fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 25. nóvember 2021. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. janúar 2022, var honum synjað um efnismeðferð og honum vísað frá landinu. Með úrskurði kærunefndar nr. 128/2022, dags. 17. mars 2022, var ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 21. mars 2022. Hinn 28. mars 2022 lagði kærandi fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar. Beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa var synjað af kærunefnd 20. apríl 2022. Hinn 18. október 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Var þeirri beiðni kæranda hafnað 27. október 2022. Kærandi lagði fram beiðni um endurupptöku að nýju 28. nóvember 2022.

    Af beiðni kæranda um endurupptöku má ráða að hún byggi á 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

     

  2. Málsástæður og rök kæranda

    Kærandi byggir beiðni sína um endurupptöku á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir síðan hann sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en tafir á afgreiðslu málsins séu ekki á hans ábyrgð.

    Sé litið til stjórnsýsluframkvæmdar hafi afgreiðsla umsóknar í skilningi framangreinds ákvæðis miðast við umsóknardag annars vegar og hins vegar þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis. Þar sem þessir 12 mánuðir séu nú liðnir og kærandi sé enn á Íslandi telur hann að stjórnvöldum sé nú skylt samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar.

  3. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum en ekki við komu til landsins. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 25. nóvember 2021 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti 25. nóvember 2022. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Hinn 28. nóvember 2022 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun. Sneri fyrirspurn nefndarinnar að því hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort tafir væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í svari Útlendingastofnunar, sem barst þann sama dag, kemur fram að samkvæmt upplýsingum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra hafi kærandi farið af landi brott 14. maí 2022.

Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 29. nóvember 2022, var kærandi upplýstur um afstöðu Útlendingastofnunar og gefinn frestur til að koma að andmælum í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga. Engin andmæli bárust frá kæranda.

Líkt og að framan greinir hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að 12 mánaða tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur. Í ljósi þess að kærandi er farinn af landi brott er það mat kærunefndar að afgreiðslu máls hans hér á landi sé lokið og hann eigi því ekki rétt á efnismeðferð vegna tafa á afgreiðslu þess, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að synja beiðni kæranda um endurupptöku.

Líkt og áður hefur komið fram lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi í annað sinn 25. nóvember 2021. Með úrskurði kærunefndar, dags. 27. október 2022, í máli kæranda var komist að þeirri niðurstöðu að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga fyrir því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar væru ekki uppfyllt. Tók kærunefnd jafnframt fram að samkvæmt gögnum málsins hefði kærandi farið frá Íslandi til viðtökuríkis vegna fyrri umsóknar sinnar um alþjóðlega vernd áður en 12 mánaða tímabilinu lauk auk þess sem að samkvæmt upplýsingum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra hafi kærandi farið af landi brott vegna síðari umsóknarinnar 14. maí 2022. Taldi því kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku, dags. 18. október 2022, vera bersýnilega tilhæfulausa. Að mati kærunefndar hefði talsmanni kæranda mátt vera framangreint ljóst og gerir kærunefnd því athugasemd við vinnubrögð talsmanns að þessu leyti.

Í ljósi framangreinds er því ekki fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Endurupptöku á máli hans er þar með hafnað.


 

Úrskurðarorð:

Kröfu kæranda er hafnað.

The appellant‘s request is denied.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                           Sandra Hlíf Ocares


 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum