Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 457/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 17. nóvember 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 457/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22110009

 

Beiðni um frestun framkvæmdar í máli [...]

 

  1. Málsatvik

    Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 398/2021, dags. 26. ágúst 2021, staðfesti nefndin ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. apríl 2021, um að taka umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og vísa honum frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda 30. ágúst 2021. Hinn 6. september 2021 lagði kærandi fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar og endurupptöku málsins. Beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa og endurupptöku var synjað af kærunefnd 4. nóvember 2021. Hinn 9. desember 2021 lagði kærandi fram beiðni um endurupptöku að nýju. Var þeirri beiðni synjað af kærunefnd 3. febrúar 2022. Hinn 2. nóvember 2022 barst kærunefnd beiðni kæranda um frestun framkvæmdar. Kærandi sótti um alþjóðlega vernd ásamt móður sinni og þremur systkinum. Úrskurður kæranda varðandi beiðni hans um frestun framkvæmdar var unnin samhliða fjölskyldu hans og kveðnir upp samdægurs, sbr. úrskurð nr. 458/2022. Samkvæmt gögnum málsins var kæranda vísað frá landinu í fylgd lögreglu 3. nóvember 2022.

    Beiðni kæranda um frestun á framkvæmd á máli hans er reist á grundvelli 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

  2. Málsástæður og rök kæranda

    Í beiðni kæranda kemur fram að stoðdeild ríkislögreglustjóra hafi komið að heimili hans og tilkynnt honum fyrirvaralaust að hann væri handtekinn vegna flutnings til Grikklands. Kærandi hafi stefnt máli sínu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og aðalmeðferð verði um miðjan mánuðinn. Kærandi óskar þess að kærunefnd útlendingamála fresti framkvæmd svo hann geti gefið þar aðilaskýrslu, sbr. lokamálsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

  3. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um frestun framkvæmdar stjórnsýslumála

Eins og áður hefur komið fram kvað kærunefnd upp úrskurð í máli kæranda 26. ágúst 2021. Með úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi og frávísun frá landinu bryti ekki gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Þá var ekki talið að kærandi hefði slík tengsl við landið að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrir liggur að kærandi var fluttur úr landi af stoðdeild ríkislögreglustjóra 3. nóvember 2022. Þar sem flutningur kæranda hefur þegar verið framkvæmdur er kröfu kæranda um frestun á framkvæmd vísað frá.

 

 

Úrskurðarorð:

Kröfu kæranda um frestun framkvæmdar er vísað frá.

 

The appellant’s request to suspend the implementation of the decision of Immigration Appeals Board is dismissed.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                     Sandra Hlíf Ocares

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum