Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Nr. 40/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 25. janúar 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 40/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU22110064

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 23. nóvember 2022 kærði […], fd. […], ríkisborgari Rússlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 7. nóvember 2022, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa henni frá landinu. Hinn 7. nóvember 2022 var ákvörðun Útlendingastofnunar birt fyrir kæranda.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Ákvörðun Útlendingastofnunar var birt kæranda 7. nóvember 2022. Kærandi kærði ákvörðunina 23. nóvember 2022. Ljóst er að kærufresturinn, sem var til 22. nóvember 2022, var liðinn þegar kæran barst.

Með tölvubréfi til kæranda, dags. 16. janúar 2023, óskaði kærunefnd eftir skýringum á því hvers vegna kæra hafi borist utan frests. Í tölvubréfi kæranda, dags. sama dag, kemur fram að kærandi hafi talið að kærufrestur byrji að líða næsta dag eftir að ákvörðun sé birt, enda hafi slíkt tíðkast í málum fyrir kærunefnd útlendingamála og Útlendingastofnun. Umræddur frestur hafi byrjað að líða 8. nóvember í stað 7. nóvember 2022 og hafi kæra því borist innan frests hinn 23. nóvember 2022.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér getur t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar skal m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Ákvörðun Útlendingastofnunar var sem fyrr segir birt kæranda 7. nóvember 2022. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var, í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga, gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert kærandi skyldi beina kæru. Ekki verður séð að þær upplýsingar sem kæranda voru veittar í ákvörðun Útlendingastofnunar varðandi kæru til kærunefndar útlendingamála hafi verið ófullnægjandi eða að leiðbeiningarskyldu hafi ekki verið gætt. Í 7. gr. laga um útlendinga kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar er heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Kveðið er á um útreikning frests í 1. mgr. 8. gr. stjórnsýslulaga á eftirfarandi hátt: ,,Þar sem kveðið er á um frest í lögum telst sá dagur, sem fresturinn er talinn frá, ekki með í frestinum.“ Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til stjórnsýslulaga segir: ,,Í 8. gr. er að finna skýringarreglu á því hvernig reikna beri út fresti í lögum er varða stjórnsýsluna, en stundum kemur upp ágreiningur um þetta atriði í framkvæmd. Samkvæmt reglunni skal sá dagur, sem frestur er talinn frá, ekki teljast með innan frestsins.“  Samkvæmt þessu var fyrsti dagur kærufrests í máli kæranda 8. nóvember 2022 og var síðasti dagur 15 daga frestsins því 22. nóvember 2022, en ekki 23. nóvember eins og kærandi hefur haldið fram. Var kærufrestur því liðinn er kæran barst kærunefnd útlendingamála 23. nóvember 2022.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að afsakanlegt hafi verið að kæra hafi borist of seint. Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að ekki beri að taka kæruna til meðferðar á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Þá hefur kærunefnd farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Við það mat er horft til þess að Spánn hefur samþykkt að bera ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd í skilningi c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þess að kærunefnd hefur í fyrri úrskurðum sínum talið endursendingu til Spánar tæka í tilvikum líkt og í máli kæranda og þess að ekki sé að sjá að neinir ágallar hafi verið á vinnslu málsins hjá Útlendingastofnun. Kærunefnd áréttar að kærandi getur óskað eftir endurupptöku hjá Útlendingastofnun, telji hún að aðstæður hafi breyst verulega frá því ákvörðun í máli hennar var tekin eða að ákvörðun sé byggð á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum, í samræmi við 24. gr. stjórnsýslulaga.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni.


 

Úrskurðarorð:

 

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá.

 

The applicants appeal of the decision of the Directorate of Immigration is dismissed.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                               Sandra Hlíf Ocares


 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum