Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A9lags%C3%BEj%C3%B3nusta%20og%20h%C3%BAsn%C3%A6%C3%B0ism%C3%A1l

Mál nr. 457/2019 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 457/2019

Fimmtudaginn 19. mars 2020

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 1. nóvember 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 16. október 2019, á umsókn hennar um styrk að fjárhæð 264.000 kr. á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 19. september 2019, sótti kærandi um styrk hjá Reykjavíkurborg á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg að fjárhæð 264.000 kr. til greiðslu sálfræðimeðferðar. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dagsettu sama dag, með þeim rökum að hún uppfyllti ekki skilyrði 24. gr. reglnanna. Kærandi áfrýjaði niðurstöðunni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi þann 16. október 2019 og staðfesti synjunina.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 1. nóvember 2019. Með bréfi, dags. 25. nóvember 2019, óskaði úrskurðarnefndin eftir afriti af hinni kærðu ákvörðun. Sú beiðni var ítrekuð með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. desember 2019. Kærandi brást ekki við beiðni nefndarinnar og með bréfi, dags. 10. janúar 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir hinni kærðu ákvörðun frá Reykjavíkurborg. Hin kærða ákvörðun barst úrskurðarnefndinni 27. janúar 2020 og með bréfi nefndarinnar, dagsettu sama dag, var óskað eftir greinargerð Reykjavíkurborgar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 24. febrúar 2020, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. mars 2020. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi áfrýi staðfestingu áfrýjunarnefndar velferðarráðs um synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar um 264.000 kr. styrk vegna sálfræðiaðstoðar. Þá óski kærandi eftir því að áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjavíkurborgar rökstyðji nánar ákvörðun sína.

III.  Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda. Tekið er fram að kærandi hafi verið í meðferð við líkamsröskun hjá sálfræðingi á einkastofu og sótt um styrk til að greiða fyrir fjögurra mánaða meðferð hjá honum.

Núgildandi reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg með áorðnum breytingum hafi tekið gildi 1. janúar 2011 og verið samþykktar á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar þann 17. nóvember 2010 og á fundi borgarráðs þann 25. nóvember 2010. Umræddar reglur séu settar á grundvelli 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg, en öll skilyrði ákvæðisins þurfi að vera uppfyllt svo að heimilt sé að veita aðstoð vegna sérstakra erfiðleika. Kærandi uppfylli ekki skilyrði a-liðar þar sem hún hafi ekki verið með fjárhagsaðstoð til framfærslu undanfarna sex mánuði eða lengur, en kærandi fái greiddar örorkubætur frá Tryggingastofnun ríkisins. Ekki liggi fyrir hvort kærandi njóti aðgangs að lánafyrirgreiðslu hjá banka, sparisjóðum eða öðrum lánastofnunum og ekki hafi verið framvísað staðfestingu þess efnis, sbr. b-lið 24. gr. reglnanna. Ekki liggi fyrir hvernig styrkur gæti breytt skuldastöðu kæranda til hins betra þegar til lengri tíma sé litið, sbr. d-lið 24. gr. reglnanna. Þá hafi kærandi ekki sótt um ráðgjöf hjá fjármálaráðgjafa þjónustumiðstöðvar, sbr. e-lið 24. gr. reglnanna.

Með hliðsjón af öllu framansögðu hafi það verið mat velferðarráðs að skilyrði 24. gr. væru ekki uppfyllt og því hafi velferðarráð staðfest synjun þjónustumiðstöðvar um styrk að fjárhæð 264.000 kr. Ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar hafi hvorki brotið gegn fyrrgreindum reglum um fjárhagsaðstoð, sbr. 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga né öðrum ákvæðum laga nr. 40/1991.

IV.  Niðurstaða

Í máli þessu er ágreiningur um hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um styrk að fjárhæð 264.000 kr. á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um aðstoð vegna sérstakra erfiðleika. Samkvæmt því er heimilt að veita einstaklingum, hjónum eða sambúðarfólki lán eða styrk vegna mikilla fjárhagslegra og félagslegra erfiðleika, að uppfylltum öllum neðangreindum skilyrðum:

  1. umsækjandi hafi fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum undanfarna sex mánuði eða lengur,
  2. staðfest sé að umsækjandi hafi ekki aðgang að lánafyrirgreiðslu banka, sparisjóða eða annarra lánastofnana,
  3. fyrir liggi yfirlit starfsmanns þjónustumiðstöðvar eða Umboðsmanns skuldara um fjárhagsstöðu umsækjanda og tillögur að úrbótum þegar við á,
  4. fyrir liggi á hvern hátt lán eða styrkur muni breyta skuldastöðu umsækjanda til hins betra þegar til lengri tíma er litið,
  5. fyrir liggi samkomulag um félagslega ráðgjöf og/eða fjármálaráðgjöf þegar það á við.

Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki notið fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu frá Reykjavíkurborg síðastliðna sex mánuði eða lengur þegar umsókn um styrk vegna sérstakra erfiðleika barst Reykjavíkurborg. Þegar af þeirri ástæðu uppfyllti kærandi ekki skilyrði 24. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 16. október 2019, um synjun á umsókn A, um styrk að fjárhæð 264.000 kr. á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum