Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 157/2020 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 157/2020

Þriðjudaginn 23. júní 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 31. mars 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. mars 2020, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 13. mars 2020. Meðfylgjandi umsókn kæranda var vottorð frá fyrrverandi vinnuveitanda þar sem fram kemur að kærandi hafi sjálf sagt starfi sínu lausu. Með umsókn kæranda barst einnig yfirlýsing hennar vegna starfsloka. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 30. mars 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hennar hjá síðasta vinnuveitanda væri réttur til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 31. mars 2020. Með bréfi, dags. 2. apríl 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 14. maí 2020, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 19. maí 2020, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

 

 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að réttur hennar til atvinnuleysisbóta hafi verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi telji að um gilda ástæðu hafi verið að ræða þar sem forsendubrestur hafi orðið á samningi. Vinnuveitandi geti staðfest það en kærandi hafi ekki sagt upp vinnu vegna launakjara sem kæranda gruni að ákvörðun byggist á. Forsendubresturinn feli í sér að kærandi hafi skrifað undir samning þess efnis að sinna X en þegar á hólminn hafi komið hafi það ekki verið raunin og kærandi sinnt ritarastörfum með loforð um að fá þá stöðu sem ráðið hafi verið í. Eftir 13 mánuði í starfi hafi stjórnarformenn B staðfest að þau loforð yrðu ekki efnd. Kærandi hafi því sagt starfi sínu endanlega lausu þegar niðurstaða stjórnar hafi legið fyrir.

Kærandi tekur fram að hún hafi ekki sótt um atvinnuleysisbætur þann 1. febrúar 2020, fyrsta dag atvinnuleysis, þar sem hún hafi haft um nokkur störf að velja. Hins vegar hafi orðið breyting á því starfi vegna Covid-19 faraldursins þar sem það hafi falið í sér ferðalög til Bretlands. Starfið sé á vegum C og D en báðum stofnunum hafi verið að mestu lokað og farbann sé í gildi á milli landanna. Vegna þessa leiti kærandi eftir atvinnuleysisbótum hjá Vinnumálastofnun á meðan á faraldri standi.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að lög nr. 54/2006 gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Mál þetta varði þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf sé ekki í boði. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar segi meðal annars að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður, sem liggi að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum, séu gildar þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan sé matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysistryggingar skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim, sem tryggðir séu og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Ljóst sé að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá B ehf. Ágreiningur snúist um hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis. Orðalagið „gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik hafi verið talin falla þar undir. Í málinu hafi komið fram að kærandi telji að forsendubrestur hafi orðið á ráðningarsamningi á milli hennar og vinnuveitanda. Hún hafi skrifað undir samning um að sinna tilteknu starfi hjá fyrirtækinu en ekki hafi verið staðið við það samkomulag. Í þeim tilvikum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur hafi sagt upp starfi sínum sökum óánægju með ráðningarsamband sitt, vinnuumhverfi eða framgöngu í starfi telji Vinnumálastofnun jafnan að ákvæði 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eigi við. Lög um atvinnuleysistryggingar geri þá kröfu að launamenn sem telji sig ekki geta gegnt starfi sínu áfram fullreyni úrræði til úrbóta eða tryggi sér annað starf áður en þeir segi starfi sínu lausu.

Ástæður starfsloka í máli þessu varði óánægju kæranda með verkefni sín á vinnustað og að ekki hafi verið staðið við þau loforð sem henni voru gefin við upphaf ráðningar. Það sé afstaða Vinnumálastofnunar að þær ástæður sem fram hafa komið í máli þessu geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar, enda hafi kærandi sótt um atvinnuleysisbætur eftir að hún hafi sagt starfi sínu lausu.

Með vísan til framangreinds telji Vinnumálastofnun að kærandi skuli sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kærandi sagði upp starfi sínu hjá tilteknu fyrirtæki en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögninni hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Að sögn kæranda voru ástæður starfsloka hennar hjá fyrirtækinu forsendubrestur í ráðningarsamningi. Kærandi hafi skrifað undir samning um að sinna X en síðan hafi henni verið falið að sinna ritarastörfum. Eftir 13 mánuði í starfi hafi verið staðfest að þau loforð yrðu ekki efnd og því hafi kærandi sagt starfi sínu lausu. Ástæður kæranda lúta þannig að stöðu hennar á vinnustaðnum. Í framkvæmd hefur verið gerð sú krafa til launamanna að þeir nýti sér öll tiltæk úrræði til úrbóta, svo sem að leita til síns stéttarfélags eða tryggja sér annað starf, áður en þeir ákveða að segja starfi sínu lausu. Af gögnum málsins verður ekki séð að kærandi hafi leitað eftir úrbótum áður en hún sagði starfi sínu lausu. Það er því mat úrskurðarnefndar velferðarmála að tilgreindar ástæður kæranda fyrir starfslokum hennar séu ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Kærandi átti því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Með vísan til þess er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til greiðslu atvinnuleysisbóta í tvo mánuði staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. mars 2020, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum