Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 112/2022 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 112/2022

Fimmtudaginn 19. maí 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 17. febrúar 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. janúar 2022, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans og að innheimta ofgreiddar bætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 9. júní 2021 og var umsóknin samþykkt þann 7. júlí 2021 með 93% bótarétti. Við reglubundið eftirlit kom í ljós að kærandi var skráður í 30 eininga nám við B á haustönn 2021. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 8. desember 2021, var óskað eftir að kærandi legði fram skólavottorð og skýringar á því hvers vegna hann hafi ekki upplýst stofnunina um nám sitt. Skýringar bárust ekki frá kæranda. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. janúar 2022, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar með vísan til 52. gr. laga nr. 54/2006 og að honum bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. september til 2. nóvember 2021 að fjárhæð 578.266 kr., að meðtöldu álagi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 17. febúar 2022. Með bréfi, dags. 28. febrúar 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 20. apríl 2022, og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 26. apríl 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að samkvæmt 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé leyfilegt að stunda nám samhliða bótum, allt að fimm einingum á framhaldsskólastigi, ef námið aðstoði einstakling við atvinnuleit. Rökstuðningur kæranda fyrir lækkun skuldar sé sú að vinna hans að því að ljúka stúdentsprófi gefi honum sterkari stöðu á vinnumarkaði. Framhaldsskólanám sé ekki lánshæft samkvæmt Menntasjóði. Kærandi hafi tekið umræddar einingar alfarið í fjarnámi og hafi aðeins lokið 20 einingum þá önn, þrátt fyrir að hafa verið skráður í 30 einingar.

Kærandi fari fram á endurupptöku á niðurstöðu Vinnumálastofnunar. Ef ekki verði fallist á að fella niður skuld kæranda fari hann fram á að skuldin verði lækkuð samhliða lækkun atvinnuleysisbóta með tilliti til náms.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun með umsókn, dags. 9. júní 2021. Með erindi, dags. 7. júlí 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 93%. Þann 2. nóvember 2021 hafi kærandi upplýst stofnunina um að hann væri kominn í vinnu og hafi því afskráð sig af atvinnuleysisskrá.

Við reglubundið eftirlit hafi komið í ljós að kærandi væri skráður í 30 eininga nám á haustönn 2021 við B samhliða því að þiggja greiðslu atvinnuleysistrygginga. Með erindi, dags. 8. desember 2021, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir frekari upplýsingum frá kæranda vegna náms. Í erindi til kæranda hafi athygli verið vakin á því að samkvæmt 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar séu námsmenn ekki tryggðir á grundvelli laganna á sama tímabili og þeir stundi nám, enda sé námið ekki hluti vinnumarkaðsúrræða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn námssamningur lægi fyrir á milli kæranda og Vinnumálastofnunar hafi verið óskað eftir því að kærandi færði fram skólavottorð þar sem umfang náms væri tilgreint ásamt skýringum á því hvers vegna hann hafi ekki upplýst stofnunina um að hann stundaði nám. Í erindi til kæranda hafi athygli verið vakin á viðurlögum á grundvelli 59. og 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi hvorki skilað skýringum né skólavottorði. Með erindi, dags. 25. janúar 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að honum bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslu atvinnuleysistrygginga til kæranda þar sem hann hafi stundað nám samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta, án þess að fyrir hafi legið námssamningur við stofnunina.

Í 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur. Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitanda sem tryggður sé samkvæmt lögunum að upplýsa stofnunina um það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem upplýsingar um námsþátttöku. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Kærandi hafi hvorki skilað skólavottorði né skýringum vegna náms á haustmisseri 2021.

Í c. lið 3. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé að finna eftirfarandi skilgreiningu á námi:

,,Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Í athugasemdum með 52. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segi að 52. gr. kveði á um þá meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum samhliða námi sem stundað sé á venjulegum dagvinnutíma. Gildi það einu hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Í 1. mgr. 52 gr. segi orðrétt:

,,Hver sá sem stundar nám, sbr. c. lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.“

Fyrir liggi að kærandi hafi stundað 30 eininga nám við B á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga. Undanþágur frá framangreindri meginreglu sem mælt sé fyrir um í 2.-5. mgr. 52. gr. laganna eigi ekki við í máli kæranda. Kærandi hafi því fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 1. september 2021 til 2. nóvember 2021. Í 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé fjallað um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Í 2. mgr. 39. gr. segi orðrétt:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Hver sé ástæða þess að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur.

Með vísan til framangreinds beri kæranda að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann hafi fengið greiddar fyrir tímabilið 1. september til 2. nóvember, samtals 502.840 kr., enda liggi fyrir að hann hafi ekki uppfyllt skilyrði laganna á umræddu tímabili, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Heildarskuld kæranda hafi numið 578.267 kr., þar af sé álag að fjárhæð 75.427 kr. Eins og kveðið sé á um í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. skuli fella niður álagið ef hinn tryggði færi rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka sem hafi leitt til skuldamyndunar. Í því samhengi vísi Vinnumálastofnun til þess að það sé á ábyrgð þess sem fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist nauðsynlegar upplýsingar sem geti haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta. Fyrir liggi að kærandi hafi hvorki skilað skýringum né skólavottorði til Vinnumálastofnunar vegna náms samhliða greiðslum atvinnuleysistrygginga á haustmisseri 2021. Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum þeirra, sé það mat Vinnumálastofnunar að með því að hafa hvorki tilkynnt um nám sitt né óskað eftir námssamningi við stofnunina hafi kærandi brugðist skyldum sínum. Þá ítreki stofnunin jafnframt að öllum atvinnuleitendum sé vísað á upplýsingar á vef stofnunarinnar um réttindi sín og skyldur á meðan þeir þiggi greiðslur atvinnuleysistrygginga. Þar sé meðal annars tiltekið að almennt sé ekki heimilt að stunda nám samhliða greiðslum atvinnuleysistrygginga, en atvinnuleitendum kunni þó mögulega að standa til boða að gera námssamning við stofnunina.

Með vísan til framangreinds beri kæranda að greiða umrædda skuld, auk álags, enda hafi kærandi að mati Vinnumálastofnunar ekki fært rök fyrir því að fella skuli niður álag. Skuld kæranda standi nú í 504.076 kr., en hluta af greiðslum atvinnuleysisbóta til hans hafi verið skuldajafnað við útistandandi skuld í mars 2022.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar bætur.

Í IX. kafla laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tilvik er leiða til takmörkunar á atvinnuleysistryggingum. Í 52. gr. laganna er fjallað um nám en þar segir:

„Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.

Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.

Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.

Þrátt fyrir 1.–4. mgr. skal hinum tryggða ávallt heimilt að ljúka þeirri önn sem er yfirstandandi við starfslok hans eða þegar hann missir starf sitt að hluta, sbr. 17. gr., án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga.“

Í c-lið 3. gr. laganna er að finna skilgreiningu á námi samkvæmt lögunum en þar segir:

„Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“

Í athugasemdum við ákvæði 52. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Þá kemur fram að það kunni að vera að nám sé nauðsynlegur hluti af starfshæfingu atvinnuleitanda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, en í slíkum tilvikum geti atvinnuleitandi talist tryggður samhliða námi.

Þegar sótt er um atvinnuleysisbætur er umsækjandi spurður hvort hann sé skráður í nám á umsóknardegi. Upplýst er að almennt sé ekki heimilt að vera í námi samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Þó séu undantekningar á þeirri meginreglu. Tekið er fram að það sé því mjög mikilvægt að hafa samband sem fyrst við ráðgjafa Vinnumálastofnunar til að kanna hvort viðkomandi eigi rétt á námssamningi.

Óumdeilt er að kærandi var skráður í 30 eininga nám við B á haustönn 2021 samhliða því að fá greiddar atvinnuleyistryggingar. Kærandi upplýsti Vinnumálastofnun ekki um námið og því lá ekki fyrir námssamningur á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Í kæru til úrskurðarnefndar vísaði kærandi til þess að námið væri til þess fallið að styrkja stöðu hans á vinnumarkaði. Þá vísaði kærandi jafnframt til þess að hann hafi einungis lokið 20 einingum á haustönn 2021, þrátt fyrir að hafa verið skráður í 30 einingar.

Fyrir liggur að nám kæranda var ekki hluti af vinnumarkaðsaðgerð samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar. Ljóst er að meginregla 1. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 átti við um kæranda, þ.e. hann stundaði nám í skilningi laganna. Úrskurðarnefndin bendir á að undanþáguheimildir 2. og 3. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 eiga ekki við í máli kæranda þar sem kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um nám sitt og enginn námssamningur lá fyrir. Að því virtu uppfyllti kærandi ekki skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum á þeim tíma sem hann var skráður í námið og átti því ekki rétt á greiðslum frá Vinnumálastofnun á tímabilinu 1. september 2021 til 2. nóvember 2021.

Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum, beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur fyrir tímabil sem skilyrði laganna er ekki uppfyllt. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Þar sem kærandi tilkynnti ekki Vinnumálastofnun að hann stundaði nám á haustönn 2021 er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki sé tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. janúar 2022, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum