Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Almannatryggingar

Mál nr. 495/2020 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 495/2020

Miðvikudaginn 20. janúar 2021

A

gegn

Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu

Ú R S K U R Ð U R

 

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Anna Rut Kristjánsdóttir lögfræðingur.

Með rafrænni kæru 7. október 2020, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 2. október 2020, um að vísa frá beiðni kæranda um úrskurð um sérstakt framlag vegna tannréttinga dóttur hennar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með beiðni, dags. 8. september 2020, óskaði kærandi eftir úrskurði Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um sérstakt framlag vegna tannréttinga dóttur sinnar samkvæmt 20. gr. a laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Með bréfi, dags. 2. október 2020, vísaði Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu beiðni kæranda frá með þeim rökum að þriggja mánaða frestur til að senda inn beiðni hafi verið liðinn.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 7. október 2020. Með bréfi, dags. 22. október 2020, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 27. október 2020, bárust gögn málsins frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu en ekki var óskað eftir að koma að athugasemdum vegna kærunnar. Bréfið var sent kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 30. október 2020. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að í úrskurði Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu sé áætlað að tannréttingameðferð hafi lokið 12. maí 2020 en það sé rangt. Meðferðinni hafi lokið 19. ágúst 2020 og því hafi þrír mánuðir ekki verið liðnir þegar kærandi hafi sótt um 8. september 2020. Kærandi vísar til tölvupósts frá tannréttingastofunni sem staðfesti það. Skýringin sé sú að kærandi hafi ekki greitt neinn kostnað þegar hún hafi farið með dóttur sína í skoðun 19. ágúst 2020. Þá hafi verið ákveðið að meðferðinni væri lokið og dóttir hennar hafi losnað við góminn.

III.  Sjónarmið Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hafi þann 8. september 2020 borist beiðni kæranda um að úrskurðað yrði um framlag á grundvelli 20. gr. a laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, sbr. breytingalög nr. 127/2018. Nánar tiltekið hafi verið óskað úrskurðar um kröfu að fjárhæð 39.361 kr. vegna fortannréttinga dóttur kæranda.

Með lögum nr. 127/2018 hafi verið gerð sú breyting á lögum nr. 100/2007 um almannatryggingar að Tryggingastofnun ríkisins hafi verið heimilað að ákveða sérstakt framlag vegna útgjalda við skírn barns, fermingu, gleraugnakaup, vegna sjúkdóms, greftrunar eða af öðru sérstöku tilefni. Framlagið sé einungis ákveðið ef sýslumaður hafi úrskurðað um slíkt framlag samkvæmt beiðni sem honum hafi verið send innan þriggja mánaða frá því að svara varð til útgjalda nema eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með slíka kröfu. Að mati sýslumanns eigi við sömu sjónarmið við hvað þetta varði og gildi um sérstakt framlag á grundvelli 60. gr. barnalaga nr. 76/2003. Í greinargerð sem hafi fylgt frumvarpi til barnalaga segi meðal annars um þetta:

„Að því er 2. mgr. varðar er rétt að taka fram að ef meira en þrír mánuðir eru liðnir frá því að svarað var til útgjalda metur sýslumaður hvort eðlilegt hafi verið að bíða með að setja fram kröfu um framlag. Í þessu sambandi má sérstaklega nefna að ekki verður talið skylt að setja fram kröfu um framlag vegna tannréttinga, sem iðulega stendur yfir í nokkurn tíma, innan þriggja mánaða frá því að hver einstök greiðsla var innt af hendi, a.m.k. ekki ef um samfellda meðferð hefur verið að ræða, heldur getur verið eðlilegt að bíða með kröfu vegna slíkra aðgerða, allt þar til innan þriggja mánaða frá því að meðferð lýkur. Með lokum meðferðar er hér átt við það tímamark þegar föst tæki hafa verið fjarlægð af tönnum samkvæmt staðfestingu réttingatannlæknis, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 2. gr. reglna tryggingaráðs um þátttöku Tryggingastofnunar ríkisins í kostnaði við tannréttingar barna og ungmenna, er gildi tóku 1. maí 2002.“

Samkvæmt þeim gögnum sem hafi fylgt beiðninni hafi síðast verið svarað til útgjalda 12. maí 2020 og fortannréttingameðferðinni hafi lokið þá. Þegar beiðni hafi borist embættinu 8. september 2020 hafi fyrrnefndur þriggja mánaða frestur verið liðinn og því séu ekki lagaskilyrði til að úrskurða í málinu.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu frá 2. október 2020 um að vísa frá beiðni kæranda um úrskurð um sérstakt framlag vegna tannréttinga dóttur hennar.

 

Um sérstakt framlag er fjallað í 20. gr. a laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Ákvæðið hljóðar svo:

„Tryggingastofnun ríkisins getur ákveðið sérstakt framlag vegna útgjalda við skírn barns, fermingu, gleraugnakaup, tannréttingar, vegna sjúkdóms, greftrunar eða af öðru sérstöku tilefni. 

Framlag skv. 1. mgr. er einungis heimilt að greiða vegna barna sem greiddur er barnalífeyrir með skv. 20. gr. og annað hvort foreldra er látið, barn ófeðrað eða móður nýtur ekki við vegna sérstakra eða óvenjulegra aðstæðna.

Framlag skv. 1. mgr. verður aðeins ákveðið ef sýslumaður hefur úrskurðað um slíkt framlag samkvæmt beiðni sem honum skal send innan þriggja mánaða frá því að svara varð til útgjalda nema eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með slíka kröfu.

Um viðmiðunarfjárhæðir vegna krafna um sérstök framlög gilda sömu reglur og um úrskurði vegna sérstakra útgjalda skv. 60. gr. barnalaga.“

Ágreiningur máls þessa lýtur að því hvort beiðni kæranda úrskurð um sérstakt framlag hafi borist innan þeirra tímamarka sem fjallað er um í 3. mgr. 20. gr. a laga um almannatryggingar. Sambærilegt tímamark er í 2. mgr. 60. gr. barnalaga nr. 76/2003 sem hljóðar svo:

„Framlag skv. 1. mgr. verður því aðeins úrskurðað að krafa um það sé uppi höfð við sýslumann innan þriggja mánaða frá því að svara varð til útgjalda nema eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með slíka kröfu.“

Þar sem um sambærilegt ákvæði er að ræða, og sérstaklega er vísað til ákvæðis 60. gr. barnalaga í 4. mgr. 20. gr. a laga um almannatryggingar, telur úrskurðarnefndin rétt, við túlkun á 3. mgr. 20. gr. a laga um almannatryggingar, að líta til 2. mgr. 60. gr. barnalaga. Í athugasemdum með 60. gr. í frumvarpi til barnalaga segir meðal annars svo:

„Að því er 2. mgr. varðar er rétt að taka fram að ef meira en þrír mánuðir eru liðnir frá því að svarað var til útgjalda metur sýslumaður hvort eðlilegt hafi verið að bíða með að setja fram kröfu um framlag. Í þessu sambandi má sérstaklega nefna að ekki verður talið skylt að setja fram kröfu um framlag vegna tannréttinga, sem iðulega stendur yfir í nokkurn tíma, innan þriggja mánaða frá því að hver einstök greiðsla var innt af hendi, a.m.k. ekki ef um samfellda meðferð hefur verið að ræða, heldur getur verið eðlilegt að bíða með kröfu vegna slíkra aðgerða, allt þar til innan þriggja mánaða frá því að meðferð lýkur. Með lokum meðferðar er hér átt við það tímamark þegar föst tæki hafa verið fjarlægð af tönnum samkvæmt staðfestingu réttingatannlæknis, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 2. gr. reglna tryggingaráðs um þátttöku Tryggingastofnunar ríkisins í kostnaði við tannréttingar barna og ungmenna, er gildi tóku 1. maí 2002.“

Samkvæmt gögnum málsins barst Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu þann 8. september 2020 beiðni kæranda um úrskurð um sérstakt framlag vegna tannréttinga dóttur hennar. Með tölvupósti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu til kæranda 22. september 2020 óskaði sýslumaður eftir afriti af öllum reikningum sem þegar höfðu verið greiddir og staðfestingu á greiðslu með þeim öllum frá upphafi meðferðar. Kærandi sendi sýslumanni umbeðna reikninga. Í elsta reikningnum er greint frá fyrstu skoðun 15. mars 2019 og í þeim yngsta er greint frá áfangaeftirliti 12. maí 2020. Þá fylgdu með kæru til úrskurðarnefndarinnar tölvupóstssamskipti á milli kæranda og starfsmanns tannréttingastofu dóttur kæranda. Í tölvupósti frá 6. október 2020 óskar kærandi eftir staðfestingu á því hvenær meðferð á gómi var hætt, þ.e. dagsetningu á hvenær fortannréttingameðferðinni hafi lokið. Í svari starfsmanns tannréttingastofunnar frá 7. október 2020 segir að dóttir kæranda hafi lokið meðferð 19. ágúst 2020.

Með hliðsjón af gögnum málsins telur úrskurðarnefnd velferðarmála ljóst að kærandi greiddi síðasta reikning vegna tannréttingameðferðar dóttur sinnar 12. maí 2020. Í ljósi þess er það mat úrskurðarnefndar að beiðni um úrskurð Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um sérstakt framlag var ekki send innan þriggja mánaða frá því að svara varð til útgjalda í skilningi 3. mgr. 20. gr. a laga um almannatryggingar.

Kemur því til skoðunar hvort eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með slíka kröfu. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af gögnum málsins að tannréttingameðferð dóttur kæranda hafi ekki lokið fyrr en 19. ágúst 2020. Í fyrrgreindum athugasemdum með frumvarpi til barnalaga kemur meðal annars fram að eðlilegt geti verið að bíða með kröfu vegna tannréttinga allt þar til innan við þriggja mánaða frá því að meðferð ljúki. Úrskurðarnefndin telur að framangreindar athugasemdir gefi til kynna að það geti þótt eðlileg ástæða til að bíða með kröfu að tannréttingameðferð sé ekki lokið. Eins og áður hefur komið fram telur úrskurðarnefndin að ráða megi af gögnum málsins að tannréttingameðferð dóttur kæranda hafi ekki lokið fyrr en 19. ágúst 2020. Þá liggur fyrir að kærandi óskaði eftir úrskurði Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu skömmu síðar, eða 8. september 2020. Með hliðsjón af framangreindu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að eðlileg ástæða hafi verið til að bíða með kröfu kæranda í skilningi 3. mgr. 20. gr. a laga um almannatryggingar. Úrskurðarnefnd telur því að Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki verið heimilt að vísa frá beiðni kæranda um úrskurð um sérstakt framlag vegna tannréttinga dóttur hennar.

Að framangreindu virtu er ákvörðun Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að vísa frá beiðni kæranda um úrskurð um sérstakt framlag vegna tannréttinga dóttur hennar felld úr gildi og málinu heimvísað til efnislegrar úrlausnar. 

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að vísa frá beiðni A um úrskurð um sérstakt framlag vegna tannréttinga dóttur hennar, er felld úr gildi og málinu heimvísað til efnislegrar úrlausnar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

 

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum