Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Mál nr. 287/2020 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 287/2020

Fimmtudaginn 10. september 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 11. júní 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála afgreiðslu Vinnumálastofnunar vegna umsóknar hennar um atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 11. júní 2020. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. júní 2020, var óskað eftir afriti af hinni kærðu ákvörðun. Sú beiðni var ítrekuð með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 14. ágúst 2020, og kæranda greint frá því að bærist ekki afrit af hinni kærðu ákvörðun innan 14 daga frá dagsetningu bréfsins mætti hún búast við því að kærunni yrði vísað frá úrskurðarnefndinni. Ekkert svar barst frá kæranda.

Með erindi úrskurðarnefndar til Vinnumálastofnunar 4. september 2020 var óskað eftir upplýsingum um hvort stofnunin hefði tekið ákvörðun í máli kæranda. Svar barst samdægurs þar sem fram kemur að umsókn kæranda hafi verið samþykkt 22. júní 2020.

II.  Niðurstaða

Kærð er afgreiðsla Vinnumálastofnunar vegna umsóknar kæranda um atvinnuleysisbætur. Af kæru má ráða að kærandi hafi verið ósátt við þá töf sem varð á afgreiðslu umsóknarinnar. Eftir að kærandi lagði inn kæru hjá úrskurðarnefndinni var umsókn hennar samþykkt.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Þar sem Vinnumálastofnun hefur samþykkt umsókn kæranda verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum