Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Grei%C3%B0slua%C3%B0l%C3%B6gunarm%C3%A1l

Nr. 241/2019 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 241/2019
Mánudaginn 9. september 2019

A

gegn

umboðsmanni skuldara

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Þann 12. júní 2019 barst úrskurðarnefnd velferðarmála kæra S. Kærð var ákvörðun umboðsmanns skuldara sem tilkynnt var með bréfi 31. maí 2019 þar sem umsókn kæranda um greiðsluaðlögun var synjað.

Með bréfi 13. júní 2019 óskaði úrskurðarnefnd velferðarmála eftir greinargerð umboðsmanns skuldara sem barst með bréfi 6. ágúst 2019.

Greinargerð umboðsmanns skuldara var send kæranda til kynningar með bréfi 8. ágúst 2019 og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Engar athugasemdir bárust.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi er X ára X barna faðir. Hann býr í [...] leiguhúsnæði og fær greitt meðlag með einu barni.

Heildarskuldir kæranda samkvæmt skuldayfirliti umboðsmanns skuldara 31. maí 2019 eru X krónur. Skuldir hans eru meðal annars vegna yfirdráttar, trygginga, opinberra gjalda og [...].

Að sögn kæranda má rekja fjárhagsvanda hans til veikinda og leigumarkaðar.

Kærandi lagði fram umsókn um greiðsluaðlögun 6. febrúar 2019, en með ákvörðun umboðsmanns skuldara 31. maí 2019 var umsókn hans synjað þar sem fyrirliggjandi gögn voru ekki talin gefa nægilega glögga mynd af fjárhag, sbr. b-lið 1. mgr. 6. gr. laga um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010 (lge.).

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir ekki kröfur í málinu en skilja verður kæru hans svo að hann krefjist þess að ákvörðun umboðsmanns skuldara um að synja honum um heimild til að leita greiðsluaðlögunar verði felld úr gildi.

Kærandi bendir á að ef umsókn hans sé skoðuð þá sjáist vel að hann sé vel undir árstekjum 2018. Það sem umboðsmaður skuldara sé ekki að skoða sé að hann hafi fengið aðstoð hjá [...] til að halda lífi í sér og [...] barni hans. Hann sé einstæður faðir og hafi aldrei tekið smálán eða neitt lán yfirhöfuð.

Kærandi hafnar því að hann sé með X krónur í laun á mánuði. Þá kveðst kærandi hafa fengið meðlag að fjárhæð X krónur en ekki X krónur. Kærandi telur að skoða verði málið betur.

III. Sjónarmið umboðsmanns skuldara

Í hinni kærðu ákvörðun vísar umboðsmaður skuldara til þess að í b-lið 1. mgr. 6. gr. lge. sé kveðið á um að synja skuli um heimild til að leita greiðsluaðlögunar, gefi fyrirliggjandi gögn ekki nægilega glögga mynd af fjárhag skuldara eða væntanlegri þróun fjárhags hans á tímabili greiðsluaðlögunar.

Við vinnslu umsóknar kæranda hafi komið fram misræmi á milli tekna hans og veltu á bankareikningum hans á árunum 2018 og 2019. Tekjur kæranda á árinu 2018 hafi numið samtals X krónum samkvæmt upplýsingum úr skattframtali 2019 og álagningarseðli 2018. Samkvæmt upplýsingum frá [banka] hafi velta á tveimur bankareikningum kæranda numið alls X krónum. Mismunur á þeirri veltu og ofangreindum tekjum kæranda hafi því alls numið X krónum árið 2018. Samkvæmt upplýsingum sem hafi legið fyrir við vinnslu málsins hafi tekjur kæranda það sem af er árinu 2019 numið alls X krónu samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK og álagningarseðli 2019. Samkvæmt upplýsingum frá [banka] hafi velta á bankareikningum kæranda numið alls X krónum á tímabilinu X 2019 til X 2019. Mismunur á þeirri veltu og ofangreindum tekjum kæranda samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi því numið X krónum á tímabilinu. Ekki hafi legið fyrir skýringar frá kæranda á tekjum hans samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og veltu á bankareikningum hans á árunum 2018 og 2019.

Þá hafi mánaðarlegur framfærslukostnaður kæranda samkvæmt umsókn hans um greiðsluaðlögun verið X krónur vegna húsaleigu, X krónur vegna rafmagns, hita og hússjóðs, X krónur vegna trygginga, annarra en bifreiðatrygginga, og X krónur vegna skóla/dagvistunar. Engin gögn hafi legið fyrir sem hafi sýnt fram á framangreind gjöld kæranda.

Kæranda hafi verið sent bréf, bæði í tölvupóst og í ábyrgðarpósti, þann 10. maí 2019 þar sem honum hafi verið gerð grein fyrir mikilvægi þess að skýra þar til greind álitaefni og leggja fram gögn innan 14 daga frá móttöku bréfsins. Engin viðbrögð hafi borist frá kæranda.

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að velta á bankareikningum kæranda á árunum 2018 og 2019 hafi ekki endurspeglað tekjur hans samkvæmt fyrirliggjandi gögnum. Ekki hafi því legið fyrir hverjar væru ráðstöfunartekjur kæranda. Þá hafi framfærslukostnaður kæranda ekki legið nægilega ljós fyrir. Þar sem um mikilvægar upplýsingar um fjárhag kæranda hafi ekki legið fyrir hafi umboðsmanni skuldara ekki verið mögulegt að meta hvort unnt væri að veita kæranda heimild til að leita greiðsluaðlögunar. Með vísan til b-liðar 1. mgr. 6. gr. lge. hafi umboðsmanni skuldara borið að synja umsókn kæranda um greiðsluaðlögun.

Umboðsmaður skuldara fer fram á að hin kærða ákvörðun verði staðfest með vísan til forsendna sem fram komi í henni.

IV. Niðurstaða

Ákvörðun umboðsmanns skuldara byggist á b-lið 1. mgr. 6. gr. lge.

Samkvæmt b-lið 1. mgr. 6. gr. skal synja um heimild til greiðsluaðlögunar gefi fyrirliggjandi gögn ekki nægilega glögga mynd af fjárhag skuldara eða væntanlegri þróun fjárhags hans á tímabili greiðsluaðlögunar.

Við mat á því hvað teljist vera nægjanlega glögg mynd af fjárhag skuldara í skilningi b-liðar 1. mgr. 6. gr. lge. telur úrskurðarnefndin meðal annars rétt að líta til 4. og 5. gr. lge.

Í 4. gr. lge. er gerð grein fyrir því hvernig umsókn um greiðsluaðlögun skuli vera úr garði gerð. Í 1. mgr. 4. gr. er upptalning í 11 töluliðum á því sem koma skal fram í umsókninni. Í 4. tölul. lagaákvæðisins segir að í umsókn um greiðsluaðlögun skuli koma fram hverjar tekjur skuldara séu, hvort sem er af vinnu eða öðrum sökum, og upplýsingar um af hvaða samningum eða öðru tekjurnar ráðist, svo og hvort horfur séu á að breytingar verði á tekjum eða atvinnuhögum. Í 6. tölul. segir að fram skuli koma í umsókn: Mat skuldara á meðaltali mánaðarlegra útgjalda sinna, þar á meðal vegna framfærslu, opinberra gjalda, húsnæðis og afborgana af skuldum. Samkvæmt 3. mgr. 4. gr. skulu umsókn fylgja gögn til staðfestingar þeim upplýsingum sem hún hefur að geyma, vottorð um hjúskaparstöðu og fjölskyldu og síðustu fjögur skattframtöl skuldara.

Í athugasemdum með 4. gr. í frumvarpi til lge. kemur fram að gert sé ráð fyrir að skuldari, eftir atvikum með aðstoð umboðsmanns skuldara, leggi mat á hversu háa fjárhæð hann geti greitt mánaðarlega til að standa skil á skuldbindingum sínum. Upptalning í 1. mgr. sé ekki tæmandi, enda gert ráð fyrir að umboðsmaður skuldara geti krafist þess að skuldari afli frekari upplýsinga en tilgreindar séu í ákvæðinu.

Í 5. gr. lge. er kveðið á um að umboðsmaður skuldara skuli ganga úr skugga um að í umsókn komi fram allar nauðsynlegar upplýsingar og getur embættið krafist þess að skuldari staðfesti upplýsingarnar með gögnum. Rannsókn á fjárhagsstöðu skuldara hefur bæði þýðingu við mat á því hvort tilefni sé til að synja umsókn á grundvelli 2. mgr. 6. gr. lge. og varpar jafnframt ljósi á núverandi fjárhagsstöðu skuldara og væntanlega þróun hennar til framtíðar.

Í skýringum við frumvarp til lge. er fjallað um inntak b-liðar 1. mgr. 6. gr. Þar segir að umboðsmanni sé skylt að hafna umsókn gefi fyrirliggjandi gögn ekki nægilega glögga mynd af fjárhag skuldara eða væntanlegri þróun hans á tímabili greiðsluaðlögunar, enda mikilvægt að skuldari veiti fullnægjandi upplýsingar um fjárhagsleg málefni sín. Hér sé einungis um það að ræða að skuldari hafi ekki orðið við áskorunum umboðsmanns skuldara um öflun gagna eða upplýsingagjöf sem honum einum er unnt að afla eða gefa. Áréttað er að skuldari skuli taka virkan þátt í og sýna viðleitni til að varpa sem skýrustu ljósi á skuldastöðu sína og félagslegar aðstæður.

Hver sá sem leitar greiðsluaðlögunar skal þannig veita umboðsmanni skuldara ítarlegar upplýsingar og gögn. Í þessu felst skylda til að veita allar þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að greina fjárhagsstöðu viðkomandi til fulls. Með öðru móti verður ekki lagt efnislegt mat á hvort heimilt eða hæfilegt sé að veita skuldara greiðsluaðlögun. Rannsóknarskylda stjórnvalda leysir umsækjanda um greiðsluaðlögun ekki undan þeirri skyldu.

Í málinu hefur komið fram að kærandi fékk hærri greiðslur inn á bankareikning sinn á árinu 2018 en hann gaf upp til skatts sem tekjur. Einnig fékk kærandi hærri greiðslur inn á bankareikning sinn á tímabilinu X 2019 til X2019 en hann gaf upp til skatts sem tekjur. Kærandi bendir á að mismunur tekna og veltu á bankareikningum sé vegna þess að hann hafi fengið aðstoð frá [...]. Kærandi hefur engin gögn lagt fram til stuðnings þessum skýringum. Þá hefur kærandi ekki lagt fram viðhlítandi gögn sem sýna fram á kostnað við framfærslu hans, s.s. vegna leigu, húsnæðiskostnaðar, trygginga, dagvistunar o.fl.

Þannig liggja ekki fyrir viðhlítandi gögn um hverjar tekjur kæranda eru og af því leiðir að óvíst er hvaða fjármuni hann hefur sér til framfærslu og til greiðslu skulda. Einnig liggja ekki fyrir viðhlítandi gögn um framfærslukostnað kæranda. Verður fjárhagur hans því að teljast óljós að þessu leyti.

Það er markmið lge. að gera einstaklingum kleift að endurskipuleggja fjárhag sinn með samningum við kröfuhafa, eftir atvikum með niðurfellingu skulda að einhverju eða öllu leyti. Samkvæmt reglum lge. er skuldara gert að greiða eins hátt hlutfall af kröfum og sanngjarnt er þar sem í greiðsluaðlögun felst að jafnaði eftirgjöf af kröfum með tilheyrandi afskriftum í lok greiðsluaðlögunartímabils. Hér verður að hafa í huga að skuldari hefur sjálfur óskað þess að fá heimild til greiðsluaðlögunarsamnings við kröfuhafa.

Að mati úrskurðarnefndarinnar eru þær upplýsingar sem tilgreindar eru í ákvæði 4. og 6. tölul. 1. mgr. 4. gr. lge. grundvallarupplýsingar til þess að unnt sé að taka umsókn um greiðsluaðlögun til afgreiðslu, enda er ómögulegt án þeirra upplýsinga að átta sig á greiðslugetu skuldara þegar gerður er samningur um greiðsluaðlögun.

Eins og rakið er hér að framan liggur ekki fyrir með fullnægjandi hætti hverjar ráðstöfunartekjur kæranda voru árið 2018 og hluta árs 2019. Þá er enn fremur óljóst hvaða tekjur kærandi kemur til með að hafa á tímabili greiðsluaðlögunar. Þá liggja ekki fyrir fullnægjandi gögn um framfærslukostnað kæranda. Af þeim sökum er ekki unnt að leggja mat á fjárhag kæranda að því marki sem nauðsynlegt er samkvæmt ákvæðum lge. Með vísan til þess er það mat úrskurðarnefndarinnar að fjárhagur kæranda sé óljós í skilningi b-liðar 1. mgr. 6. gr. lge. og því hafi verið rétt að synja honum um heimild til að leita greiðsluaðlögunar af þeirri ástæðu.

Með vísan til alls þess sem hér hefur verið rakið bar að synja umsókn kæranda um heimild til að leita greiðsluaðlögunar á grundvelli b-liðar 1. mgr. 6. gr. lge. Ákvörðun umboðsmanns skuldara er samkvæmt því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun umboðsmanns skuldara um að synja umsókn A,  um heimild til að leita greiðsluaðlögunar, er staðfest.

 

 

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum