Hoppa yfir valmynd
12. apríl 2024 Utanríkisráðuneytið

Netöryggisráðstefna Atlantshafsbandalagsins haldin á Íslandi

Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, ávarpar ráðstefnugesti. - mynd

Um 200 sérfræðingar í netöryggismálum frá bandalagsríkjum Atlantshafsbandalagsins tóku þátt í ráðstefnu sem fram fór í Reykjavík dagana 9.-11. apríl. Þar voru til umræðu helstu áskoranir og ógnir sem stafa að netöryggi ríkjanna, en viðburðurinn var haldinn á vegum Atlantshafsbandalagsins í samstarfi við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, CERT-IS. 

„Netöryggismál hafa að undanförnu fengið aukið vægi hér heima, sem og innan Atlantshafsbandalagsins, og það er afar mikilvægt að Ísland taki áfram virkan þátt í samtali og samstarfi á því sviði. Þarna höfum við tækifæri til að leggja meira af mörkum til bandalagsins samhliða því að efla eigin varnir og getu,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.   

Fulltrúar frá herstjórnum, greiningardeilum, netöryggissveitum og einkafyrirtækjum á sviði netöryggismála tóku þátt í ráðstefnunni þar sem sjónum var beint að óvinveittum aðgerðum ríkja og hópa sem ógnað geta öryggi bandalagsríkja. Netöryggismál eru í brennidepli hvað varðar viðbúnað og varnir bandalagsins og hefur Ísland  tekið virkari þátt í samstarfi bandalagsríkja á þessu sviði á síðustu árum, svo sem í æfingum, upplýsingaskiptum og viðbúnaðaráætlunum.  

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum