Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. júní 2000 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Um akstursgjald ríkisstarfsmanna, auglýsing nr. 5/2000


Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald

Fyrstu 10.000 km

kr.

44,85

pr. km.

Frá 10.000 til 20.000 km

"

40,40

- -

Umfram 20.000 km

"

35,90

- -


Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. júlí 2000. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2000 dagsett 22. mars 2000.

Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga.


Reykjavík, 23. júní 2000.

Ferðakostnaðarnefnd



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum