Hoppa yfir valmynd

Frétt

28. september 2001 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar starfsmanna á ferðalögum innanlands nr. 5/2001

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

1.

Gisting og fæði í einn sólarhring

kr.

12.000

2.

Gisting í einn sólarhring

"

7.000

3.

Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag

"

5.000

4.

Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag

"

2.500

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2001. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2001 dags. 7. júní 2001.

Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.

Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins.

Reykjavík, 27. september 2001

Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum