Hoppa yfir valmynd

Frétt

22. ágúst 2005 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Tímabundin takmörkun á innflutningi á fersku og frosnu grænmeti frá Taílandi

Umhverfisráðuneytið hefur í dag gefið út auglýsingu um takmörkun innflutnings á tilteknu fersku og frosnu grænmeti frá Taílandi. Um er að ræða nokkrar ferskar kryddjurtir, bananalauf, bambuslauf, rætur, og asparagus. Auglýsingin er gefin út í framhaldi af rannsóknum á umræddum vörum þar sem að undanförnu hefur verið staðfest tilvist örverumengunar, m.a. salmonella í þessum vörum.

Í auglýsingu ráðuneytisins eru upp taldir þeir tollflokkar sem um ræðir í þessu sambandi. Innflutningur á þessum vörum er þó heimill ef innflytjandi framvísar vottorði frá faggiltri rannsóknastofu til Umhverfisstofnunar um að varan innihaldi ekki Salmonella og að örveruástand hennar sé að öðru leyti ásættanlegt. Þau matvæli sem um ræðir og eru á markaði við gildistöku auglýsingarinnar skulu tekin af markaði geti innflytjandi ekki lagt fram rannsóknavottorð frá faggiltri rannsóknastofu um ásættanlegt örveruástand.

Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hvert á sínum stað mun, undir yfirumsjón Umhverfisstofnunar, hafa eftirlit með því að farið sé að ákvæðum þessarar auglýsingar.

Fréttatilkynning nr. 25/2005

Umhverfisráðuneytið



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum