Hoppa yfir valmynd

Frétt

6. janúar 2006 Heilbrigðisráðuneytið

Fjörður - ný heilsugæslustöð í Hafnarfirði

Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, tók formlega í notkun nýja heilsugæslustöð í Hafnarfirði síðdegis. Heilsugæslustöðin nefnist Fjörður og er til húsa í miðbæ Hafnarfjarðar, að Fjarðargötu 13 til 15. Á heilsugæslustöðinni Firði verður veitt almenn læknis- og hjúkrunarþjónusta, slysa og bráðaþjónusta og síðdegisvakt verður alla virka daga til kl 18:00. Þar er ennfremur veitt meðgönguvernd, ungbarnavernd, rannsóknarþjónusta, bólusetningar og skólaheilsugæsla og heimahjúkrun verður einnig sinnt frá þessari nýju stöð. Sex heilsugæslulæknar starfa á stöðinni, fjórir frá fyrsta degi stöðina, fjórir þegar við opnun, þrír þeirra flytjast frá Heilsugæslunni Sólvangi og tveir læknar bætast við innan nokkurra mánaða. Yfirlæknir Heilsugæslunnar Fjörður er Guðrún Gunnarsdóttir og hjúkrunarforstjóri er Ingibjörg Ásgeirsdóttir. Heilsugæslustöðin Fjörður er um 1000 fermetra húsnæði á þriðju og fjórðu hæð í norðurturni verslunarmiðstöðvarinnar í miðbæ Hafnarfjarðar. Húsið er byggt árið 1995 en heilsugæslan er að hluta í nýrri viðbyggingu sem tengir þriðju og fjórðu hæðirnar saman með stiga. Húsið er teiknað af Erling G. Pedersen, arkitekt, hjá ERUM Arkitektar, sem einnig hönnuðu innréttingar. Húsnæðið er í eigu fasteignafyrirtækisins Fjarðareignir ehf og hefur heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið gert langtímaleigusamning við félagið fyrir hönd heilsugæslunnar.

Sjá nánar ávarp ráðherra: Ávarp í Firði Hafnarfirði



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum