Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. apríl 2006 Heilbrigðisráðuneytið

Tímamót í geðheilbrigðisþjónustu við aldraða

- Við erum að stíga stórt skref framá við í geðheilbrigðisþjónustunni við aldraða, sem þurfa sérstaka þjónustu og greiningu, annars konar þjónustu og sérhæfðari en aðrir hópar, sagði ráðherra á blaðamannafundinum þar sem hún boðaði breyttar áherslur í málaflokknum. Sagði hún að tillögurnar og ákvörðun um sérstaka geðheilbrigðisþjónustu við aldraða mörkuðu tímamót.

Ráðherra kynnti meðal annars að starfrækt verði sérhæfð hjúkrunardeild fyrir aldraða, sem glíma við geðkvilla á hjúkrunarheimilinu í Sogamýri, en það heimili verður tekið í notkun á næsta ári. Þá hefur ráðherra ákveðið að undirbúa rekstur sérstakrar geðdeildar fyrir aldraða á Landakoti, en auk þess leggur ráðherra áherslu á að komið verði á fót ráðgjafarþjónustu á landsvísu fyrir heilsugæslu, spítaladeildir og hjúkrunarheimili. Markmiðið yrði að tryggja öldruðum um land allt sérhæfða geðheilbrigðisþjónustu eftir þörfum.

 

Sjá nánar:

Fréttatilkynning - geðheilbrigðisþjónusta við aldraða

Ábendingar faghóps um bætta geðheilbrigðisþjónustu við aldraða

Helstu áherslur - kynning

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum