Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. október 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 5/2007

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 15.300
  2. Gisting í einn sólarhring kr. 9.300
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 6.000
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 3.000

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2007. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2007 dags. 23. maí  2007.

Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar  þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.

Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html.


Reykjavík, 28. september 2007
Ferðakostnaðarnefnd



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum