Hoppa yfir valmynd

Frétt

17. mars 2011 Utanríkisráðuneytið

Ræða Katrínar Jakobsdóttur samstarfsráðherra á Alþingi 17. mars s.l. vegna skýrslu samstarfsráðherra um störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2010

Katrín Jakobsdóttir samstarfsráðherra
mælir fyrir skýrslu samstarfsráðherra Norðurlanda um störf Norrænu
ráðherranefndarinnar 2010

Alþingi 17. mars 2011

Frú forseti,

Ég mæli fyrir skýrslu samstarfsráðherra Norðurlanda um störf Norrænu ráðherranefndarinnar á árinu 2010.

Norrænt samstarf fer fram í 10 fagráðherranefndum og embættismannanefndum, í 25 norrænum stofnunum, þar með talið skrifstofum ráðherranefndarinnar í Eystrasaltsríkjunum og Rússlandi. Samstarfinu er í meginatriðum stýrt með samstarfsáætlunum til lengri eða skemmri tíma og á hverju ári er skipulagður fjöldinn allur af norrænum viðburðum á öllum fagsviðum þess. Skýrslan sem hér hefur verið lögð fram getur því aldrei orðið tæmandi en hún gefur engu að síður góða mynd af því helsta sem unnið var að á umliðnu ári. Skýrslunni hefur þegar verið dreift til þingmanna, en ég vil í stuttu máli fylgja henni úr hlaði með því að draga fram nokkur atriði sem ég tel athygliverð án þess þó að kasta rýrð á það sem ekki vinnst tími til að nefna.

---------

Í upphafi ársins 2010 tóku Danir við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni af okkur Íslendingum – yfirskrift þeirra formennskuáætlunar var ,,Norðurlönd í sókn” og lykilhugtökin voru hnattvæðing, loftslagsmál og efnahagskreppan. Formennskuáætlunin gefur innsýn í áherslur ársins en með henni getur viðkomandi land varpað kastljósi á ýmis mál sem það telur ástæðu til að huga betur að í norrænu samstarfi.

Undanfarin ár hafa svokölluð hnattvæðingarverkefni mjög einkennt norrænt samstarf, en í ár er ætlunin að verja 72 milljónum danskra króna til slíkra verkefna. Allar fagráðherranefndirnar taka þátt í hnattvæðingarverkefnum en þau miða í raun að því að gera Norðurlönd að fyrirmyndarsvæði á heimsvísu sem sé þess megnugt að mæta vaxandi samkeppni í hnattvæddum heimi. Mikilvæg forsenda þess í að ná árangri í þessum málum er að ryðja úr vegi óþarfa stjórnsýsluhindrunum milli landanna og koma því svo fyrir að Norðurlandabúar geti óhindrað lagt stund á nám, rannsóknir, viðskipti eða búið hvar sem er innan svæðisins. Af hálfu Dana var því rík áhersla lögð á að ötullega yrði unnið að þessum málum á árinu og voru þau til umfjöllunar á öllum fundum samstarfsráðherranna.

Nefnd á vegum samstarfsráðherranna norrænu um afnám stjórnsýsluhindrana, svokallað Gränshinderforum, hélt áfram störfum á árinu, en umboð hennar hefur nú verið framlengt til 2013. Á borði nefndarinnar voru ýmis mál sem meðal annars vörðuðu hagsmuni íslenskra námsmanna með einum eða öðrum hætti.

Ég vil í stuttu máli minnast á tvö dæmi sem eru um leið lýsandi fyrir það hversu mikilvægt er að vaka vel yfir þeim ávinningi sem norrænt samstarf hefur fært okkur gegnum tíðina og taka ekki þeim dýrmætu réttindum sem hafa náðst með norrænum samningum sem gefnum hlut.

Hið fyrra dæmi er að í Svíþjóð komu til framkvæmda haustið 2010 nýjar innritunarreglur í háskóla sem gerðu það að verkum að aðrir Norðurlandabúar geta nú ekki keppt við heimamenn á jafnréttisgrundvelli um inntöku í grunnnám í sænskum háskólum þar sem erlend stúdentspróf eru ekki metin á sama hátt og stúdentspróf tekin í Svíþjóð samkvæmt hinum nýju reglum. Sænskir nemendur njóta samkvæmt nýju reglunum forgangs umfram aðra umsækjendur og einkunnir nemenda annarra Norðurlanda eru settar og metnar í öðrum flokki en einkunnir sænskra nemenda.

Eru dæmi um frá síðastliðnu hausti að íslenskir nemendur og nemendur frá öðrum norrænum ríkjum hafi fengið synjun um tiltekið nám þrátt fyrir háar einkunnir sem eðlilega hefðu átt að veita þeim inngang að slíku námi.

Gränshinderforum, eða samstarfsvettvangur um afnám stjórnsýsluhindrana, gerði alvarlegar athugasemdir við nýju reglurnar þar sem þær stangast á við samning norrænu menntamálaráðherranna um aðgang að æðri menntun. Sá samningur á að tryggja jafnan rétt norrænna stúdenta til náms í háskólum og æðri menntastofnunum hvar sem er innan Norðurlanda.

Þessi andstaða hefur skilað ákveðnum árangri því sænsk stjórnvöld hafa nú viðurkennt að nýju reglurnar stangist á við norræna samninga og hafa lýst því yfir að nýjar innritunarreglur verði unnar þar sem tekið verði tillit til norrænna samninga þegar kemur að innritun í háskóla haustið 2012, og er það fagnaðarefni.

Annað dæmi sem mig langar að nefna um stjórnsýsluhindranir er mál sem kom líka til kasta nefndarinnar um afnám stjórnsýsluhindrana. Það er tryggingamál íslenskra námsmanna í Svíþjóð. Samkvæmt nýrri ESB-reglugerð sem tók gildi um mitt árið er það nú túlkun sænskra almannatrygginga að íslenskir námsmenn, sem taka íslensk námslán, eigi ekki bótarétt úr sænska tryggingakerfinu, heldur skuli þeir fá bætur þaðan sem þeir hafa tekjur sínar. Íslensk tryggingayfirvöld hafa bent á að Norðurlandasamningurinn um almannatryggingar, sem á að tryggja fólki félagsleg réttindi og bætur óháð búsetu innan Norðurlanda, sé í fullu gildi. Því er haldið fram á móti að ESB-reglugerðin gangi honum framar.

Mál þetta er enn óleyst en ég hef kynnt það í ríkisstjórn og það er nú til skoðunar í velferðarráðuneytinu auk þess sem unnið er að því á norrænum vettvangi.

Þetta sýnir að stjórnsýsluhindranir eru verkefni sem eru í sífelldri skoðun og mjög mikilvægt að við séum á vaktinni gagnvart þeim hindrunum sem geta komið upp í samskiptum norrænu ríkjanna.

---------

Eins og kunnugt er var sérstökum stuðningi við Ísland fram haldið á árinu, en samstarfsráðherrarnir norrænu ákváðu í kjölfar efnahagshrunsins að styrkja Ísland til þátttöku í norrænu samstarfi á árunum 2009 og 2010. Líkt og á árinu 2009 var framlagið 7,2 milljónir danskra króna sem skiptist þannig að 5,5 milljónir fóru í að styrkja íslenska námsmenn á Norðurlöndum, 700 þúsund danskar krónur fóru í tímabundið kynningarverkefni um norræna styrkjamöguleika og loks rann 1 milljón danskra króna til ráðuneytanna til þess að niðurgreiða þátttöku starfsmanna í störfum norrænu embættismannanefndanna og starfshópa á þeirra vegum. Þessi sérstöku framlög hafa komið að góðum notum og ég vil nefna sem dæmi að 572 umsóknir bárust um námsmannastyrki, sem er nær 43% aukning frá árinu áður. Heildarúthlutun styrkja til námsmanna nam ríflega 155 milljónum íslenskra króna og hefur skipt miklu um að fólk geti haldið áfram námi sínu á Norðurlöndum. Kynningarátak um norræna styrkjamöguleika hefur einnig tekist mjög vel en verkefnið heldur úti íslenskri heimasíðu þar sem hægt er að fá mjög greinargóðar upplýsingar um alla þá fjölbreyttu styrki sem hægt er að sækja um í norræna styrkjakerfinu.

Eins og kunnugt er var þetta hugsað sem tímabundið átak til að styrkja Íslendinga í gegnum verstu efnahagsörðugleikana. Dregið verður úr sérstöku framlagi til Íslands í norrænu fjárhagsáætluninni fyrir 2011 en það eru þó ennþá inni ákveðnir fjarmunir eyrnamerktir til þessarar aðstoðar.

---------

Menningarsamstarfið hefur löngum verið kjölfestan í norrænu samstarfi, en það tekur til sín um 18 prósent þeirra fjármuna sem norrænar ríkisstjórnir verja til samstarfsins og er þannig næst-stærsta einstaka samstarfssviðið. Norrænt menningarsamstarf er bæði fjölskrúðugt og blómlegt og hefur efnahagskreppan síst dregið úr áhuganum. Norræni menningarsjóðurinn, sem var stofnað til árið 1966, er mjög mikilvægur þegar kemur að norrænu menningarsamstarfi, en á síðastliðnu ári bárust sjóðnum rúmlega 1200 umsóknir sem er nýtt met í umsóknafjölda. Sjóðurinn veitti styrki til 269 norrænna menningarverkefna og þar af voru 14 íslensk verkefni. Styrkupphæðir til þeirra voru á bilinu 25-250 þúsund danskra króna.

---------

Það svið sem hefur hins vegar yfir mestum fjármunum að ráða er mennta- og vísindasviðið en um fjórðungur norrænna fjárframlaga rennur til þess. Fjárfrekast verkefna innan mennta- og vísindasamstarfsins er samnorræna rannsókna- og nýsköpunaráætlunin á sviði umhverfis, loftslags og orku en fyrstu verkefnum innan hennar var hleypt af stokkunum á árinu. Áætlunin er langstærsta verkefnið sem Norðurlönd hafa hingað til komið sér saman um. Samtals verða um 400 milljónir danskra króna (eða um 8,5 milljarðar íslenskra króna) til ráðstöfunar á fimm ára tímabili. Þá er átt við framlög ráðherranefndarinnar, bein framlög frá rannsóknaráðum landanna og frá atvinnulífinu. Annað stórt og mikilvægt verkefni sem náði mikilvægum undirbúningsáfanga á árinu er um rafræn vísindi, svokallað e-Science, en stefnt er að því að verkefnið geti farið formlega af stað síðar á þessu ári. Lykilstofnanir í vísindasamstarfi Norðurlanda eru Norræna rannsóknaráðið, Norræna nýsköpunarmiðstöðin og Norrænar orkurannsóknir en einnig skiptir gott tengslanet háskólasamfélagsins, rannsóknastofnana og fyrirtækja afar miklu máli.

---------

Frú forseti,

Ég hef stiklað á stóru um þá skýrslu sem hér liggur fyrir en það þýðir óhjákvæmilega að ekki er mögulegt að nefna allt það góða og dýrmæta samstarf sem við Íslendingar tökum þátt í á vettvangi norrænu ráðherranefndarinnar. Ég vísa því í skýrsluna sjálfa, sem eins og undanfarin ár, var tekin saman í samstarfi við embættismenn fagráðuneytanna og aðra þá sem sinna samstarfinu fyrir okkar hönd.

Ég vil að lokum þakka Norðurlandaráði, og sérstaklega Íslandsdeild Norðurlandaráðs, fyrir samstarfið á árinu sem leið, ekki hvað síst varðandi undirbúning norrænu fjárhagsáætlunarinnar fyrir þetta ár. Um hana tókst góð sátt milli ráðherranefndarinnar og ráðsins og vænti ég hins sama um þá áætlun sem nú er í undirbúningi. Að lokum vil ég nefna þing Norðurlandaráðs sem var haldið hér í Reykjavík síðastliðið haust. Það er mál manna að allur undirbúningur og framkvæmd þess hafi verið til mikillar fyrirmyndar og að sú pólitíska umræða sem þar hafi farið fram hafi verið einkar áhugaverð og gefandi.

Ég lýk þá máli mínu um skýrsluna og vísa til hennar um frekari efni í þessum málum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum