Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. maí 2011 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Endurskoðun á skógræktarlögum

Jón Geir Pétursson, Valgerður Jónsdóttir, Þröstur Ólafsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Glóey Finnsdóttir, Jón Loftsson og Svandís Svavarsdóttir.
Nefnd um endurskoðun skógræktarlaga.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur ákveðið að hefja vinnu við endurskoðun á lögum um skógrækt, með það að markmiði að efla og styrkja stöðu skógræktar í landinu.

Telur ráðuneytið mikilvægt að fram fari heildarendurskoðun á lögum um skógrækt, enda aðstæður í samfélaginu gjörbreyttar síðan núverandi lög voru sett fyrir rúmlega hálfri öld. Leggur ráðuneytið áherslu á að við endurskoðunina verði m.a. skýrð betur ákvæði um verndun skóga, leiðir til nýræktunar skóga og meðferð og sjálfbæra nýtingu skógarauðlinda landsins. Jafnframt er lagt til að nefndin kynni sér löggjöf nágrannaríkja um málefni skóga eftir því sem við á.

Hlutverk nefndarinnar er að fara yfir núgildandi lög er varða málefni skógræktar og framkvæmd þeirra og vinna greinargerð (hvítbók) um hvert skuli vera inntak og áherslur nýrrar löggjafar um skógrækt og skila til ráðherra eigi síðar en 15. desember 2011.

Á grundvelli þeirrar greinargerðar mun umhverfisráðuneytið að höfðu samráði við nefndina, vinna drög að frumvarpi til nýrra skógræktarlaga. Stefnt er að því að umhverfiráðherra leggi fram frumvarp til nýrra laga um skógrækt á árinu 2012.

Leggur umhverfisráðuneytið sérstaka áherslu á að nefndin hafi samráð og samstarf við þá aðila sem málið varðar við gerð greinargerðarinnar.

Nefnd um endurskoðun laga um skógrækt er skipuð eftirfarandi:

· Valgerður Jónsdóttir, framkvæmdastjóri, formaður.

· Brynhildur Davíðsdóttir, dósent við Háskóla Íslands.

· Jón Loftsson, skógræktarstjóri.

· Þröstur Ólafsson fyrrv. framkvæmdastjóri

· Jón Geir Pétursson, sérfræðingur í umhverfisráðuneyti

· Glóey Finnsdóttir, lögfræðingur í umhverfisráðuneyti

Með nefndinni starfar Þröstur Eysteinsson sviðsstjóri hjá Skógrækt ríkisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum