Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. júní 2011 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ábendingar til nefndar um endurskoðun laga um skógrækt

Jón Geir Pétursson, Valgerður Jónsdóttir, Þröstur Ólafsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Glóey Finnsdóttir, Jón Loftsson og Svandís Svavarsdóttir.
Nefnd um endurskoðun skógræktarlaga.

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, skipaði í vor nefnd til að undirbúa gagngera endurskoðun laga um skógrækt (sjá frétt umhverfsráðuneytisins).  Í erindisbréfi nefndarinnar er verkefni hennar skilgreint eftirfarandi:

„Hlutverk nefndarinnar er að fara yfir núgildandi lög er varða málefni skógræktar og framkvæmd þeirra og vinna greinargerð (hvítbók) um hvert skuli vera inntak og áherslur nýrrar löggjafar um skógrækt og skila til ráðherra eigi síðar en 15. desember 2011.  Á grundvelli hennar mun ráðuneytið í samráði við nefndina vinna drög að frumvarpi til nýrra skógræktarlaga eigi síðar en fyrir árslok 2012“.

Í erindisbréfi nefndarinnar leggur ráðuneytið áherslu á að við endurskoðunina verði m.a. skýrð betur eftirfarandi ákvæði:

  • verndun skóga
  • leiðir til nýrækunar skóga
  • meðferð og sjálfbæra nýtingu skógarauðlinda

Í erindisbréfi nefndarinnar er jafnframt lögð rík áhersla að haft verði samráð við hagsmunaaðila. 

Nefndin hefur hafið störf og vill í upphafi vinnu sinnar leita eftir viðhorfum sem flestra til endurskoðunar laga um skógrækt.  Hefur hópi hagsmunaðila verið sent bréf þess efnis. Hér á vefsíðunni er fólki jafnframt boðið að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum til nefndarinnar um endurskoðun laga um skógrækt.    

Hér með er óskað eftir ábendingum sem nýst gætu nefndinni við vinnu að greinargerðinni, ekki síst í ljósi áherslupunktanna hér að ofan

Óskað er eftir að ábendingar berist til: Umhverfsráðuneytið, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík eða á netfangið [email protected] fyrir 1. júlí n.k.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum