Hoppa yfir valmynd

Frétt

20. apríl 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Líflegar umræður um Ríó+20

Líflegar umræður urðu að loknum framsöguerindum.
Frá pallborðsumræðum á fundinum.

Góður rómur var gerður að opnum fundi um Ríó+20 ráðstefnuna um sjálfbæra þróun sem haldinn var í vikunni en ráðstefnan fer fram í Ríó de Janeiro í júní n.k. Yfirskrift fundarins var: „Leiðin til Ríó: Sjálfbær þróun og tækifæri græns hagkerfis“. Græna hagkerfið sem leið að sjálfbærri þróun var áberandi í umræðum, enda er það eitt af meginþemum Ríó+20 ráðstefnunnar.

Einnig bar hið svokallaða bláa hagkerfi mikið á góma en það vísar til efnahagslegs mikilvægis hafsins. Málefni hafsins eru eitt af fjórum áhersluatriðum Íslands fyrir Ríó+20 en nánar má lesa um þau áhersluatriði hér. Búast má við að hafið gegni stóru hlutverki í Ríó enda mikið um það fjallað í drögum að niðurstöðu ráðstefnunnar. Eins og fram kom á fundinum í gær fær mannkyn um sjötta hluta fæðu sinnar úr hafinu en fæðuöryggi og minnkun fátæktar eru lykilatriði í sjálfbærri þróun. Á fundinum kom einnig fram að höfin binda um fjórðung koltvísýrings sem við losum út í andrúmsloftið og hægja þar með á hlýnun vegna gróðurhúsaáhrifa þótt afleiðingar þessa á lífríki hafsins séu ófyrirséðar.

Fundinum lauk með líflegum pallborðsumræðum milli umhverfisráðherra og fulltrúa stjórnmálaflokka en endurnýjun pólitískra heita er meðal þess sem vænst er að komi út úr Ríó+20. Mikið þarf enn til ef markmið sjálfbærrar þróunar eiga að nást fyrr en síðar.

Að fundinum stóðu utanríkisráðuneyti, umhverfisráðuneyti, Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og þverfræðilegar rannsóknir, Alþjóðamálastofnun og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum