Fundir forsætisráðherra með formanni utanríkismálanefndar Kína og fyrrverandi forsætisráðherra Kína
Fundur með formanni utanríkismálanefndar kínverska alþýðuþingsins, frú Fu Ying
Á öðrum degi opinberrar heimsóknar sinnar í Kína tók Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á móti Fu Ying, sem er fyrsta konan sem gegnir stöðu formanns utanríkismálanefndar kínverska alþýðuþingsins og jafnframt einn af varautanríkisráðherrum í kínverska utanríkisráðuneytinu. Hún og sendinefnd hennar komu til fundar við ráðherra og ræddu þær um stöðu kvenna í Kína, jafnréttismál og alþjóðlegar skuldbindingar, svo og það samstarf í jafnréttismálum sem nú hefur hafist milli Íslands og Kína. Fu Ying er fyrirmynd margra kvenna í Kína, en hún var áður sendiherra Kína í Bretlandi og þar áður í Ástralíu og á Filippseyjum.
Kurteisisheimsókn til fyrrverandi forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao
Forsætisráðherra átti einnig stuttan fund með fyrrverandi forsætisráðherra, Wen Jiabao, sem kom til Íslands í opinbera heimsókn á síðasta ári, en hann lét af störfum í mars. Þakkaði forsætisráðherra sérstaklega stuðning hans við að ljúka viðræðum um fríverslunarsamninginn, sem nú hefði verið undirritaður.
Wen Jiabao lýsti góðum minningum sínum frá heimsókninni til Íslands og áhuga sínum á landinu, jarðfræði þess og mikilvægi samstarfsins um jarðhitanýtingu, sem hefði nýst báðum aðilum vel. Loks minntust forsætisráðherrarnir umræðna sinna á síðasta ári um aukið samstarf á sviði skáklistarinnar, en það hefur meðal annars haft mjög jákvæð áhrif á samskipti kínverskra og íslenskra skákmanna og leitt til gagnkvæmra heimsókna og móta undanfarin ár.
Forsætisráðherra er nú komin til Sjanghæ þar sem hún heldur áfram dagskrá opinberrar heimsóknar sinnar á morgun.