Árangur og bjartsýni haldast í hendur.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ávarpaði ársfund Samtaka atvinnulífsins í dag.
Í ræðu sinni vék forsætisráðherra meðal annars að samkeppnisstöðu, Íslands afnámi fjármagnshafta, jákvæðum árangri sem þegar gefur náðst og þeirri efnahagsstefnu sem fylgja þurfi til að áfram megi byggja á honum.
„Hið stóra efnahagslega plan felst í því að trúa á Ísland, í því að virkja þann kraft sem býr í fólkinu, landinu og miðunum, trúa á okkur sjálf og þau tækifæri sem okkur bjóðast, hafa aga til að takast á við góða sem slæma tíma og ráða sjálf yfir okkar auðlindum. Stóra planið byggist á tveimur grunnstoðum; annars vegar virkum alþjóðasamskiptum og hins vegar agaðri hagstjórn.“
Forsætisráðherra sagði tímabært að segja skilið við hugarfar afturhalds, neikvæðni og niðurrifs. Hann benti á að horfa yrði til stöðunnar eins og hún væri í raun og veru nú þegar áhrifin af breyttri stefnu við stjórn landsins eru farin að koma fram. Forsætisráðherra nefndi meðal annars að:
- Hagvöxtur tók óvæntan kipp á síðasta ársfjórðungi 2013 og nú er útlit fyrir mikinn áframhaldandi hagvöxt, jafnvel þann mesta í Evrópu.
- Hagvöxturinn er fyrst og fremst knúinn áfram af öflugum útflutningi en ekki af einkaneyslu. Útflutningur sem hlutfall af landsframleiðslu hefur aldrei mælst hærri síðan mælingar hófust en nú.
- Afgangur af viðskiptajöfnuði er mikill sem gefur þjóðarbúinu færi á að grynnka á skuldum sínum.
- Fjárfesting er að aukast eftir að hafa verið í sögulegu lágmarki í nokkur ár.
- Slakinn í þjóðarbúskapnum er óðum að hverfa sem þýðir að hagkerfið er að framleiða verðmæti í samræmi við getu.
- Vöxtur í einstökum atvinnugreinum er gríðarlega mikill, svo sem ferðaþjónustu.
- Jákvæðar breytingar eru að eiga sér stað í hefðbundnum frumframleiðslugreinum. Þannig er bylting að eiga sér stað í fullvinnslu sjávarafurða og margar nýjungar í annarri matvælaframleiðslu.
- Tugir fjárfestingarverkefna, stór sem smá, eru til skoðunar í iðnaði.
- Erlendir bankar eru farnir að sækja til landsins í leit að nýjum verkefnum í stað þess að krefjast uppgreiðslu á hinum gömlu.
- Nýsköpun og þróun í skapandi greinum ber frumkvöðlahugsun Íslendinga gott vitni.
- Atvinnuleysi fer minnkandi og 4.000 ný störf hafa orðið til, nettó, frá því að ný ríkisstjórn tók við.
- Kjarasamningar sem gerðir hafa verið gefa fyrirheit um aukinn stöðugleika á næstu árum og aukinn kaupmátt.
- Skuldaleiðréttingar munu lækka húsnæðisskuldir landsmanna og auka ráðstöfunarfé heimilanna.
- Verðbólga er undir viðmiðunarmörkum Seðlabankans og ekkert í farvatninu sem bendir til að verðbólga muni aukast á næstunni.
- Gert er ráð fyrir afgangi á fjárlögum í fyrsta skipti í mörg ár.
- Bjartsýni bæði almennings og stjórnenda fyrirtækja er að aukast, og skyldi engan undra.
Forsætisráðherra benti á að þrátt fyrir jákvæðan árangur blasi við mörg verkefni á sviði hagstjórnar. Gæta þurfi þess að hagkerfið ofhitni ekki við þessar aðstæður. „Losun fjármagnshafta er þó engu að síður stærsta viðfangsefni ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. ... Í gær kynnti sérfræðihópur sem unnið hefur að því að meta stöðuna og möguleikana á afléttingu hafta niðurstöður sínar fyrir forsætis og fjármálaráðherra. Hópurinn skilaði afar góðu verki og ég er bjartsýnn á að við munum sjá hreyfingu á þessum málum áður en langt um líður.“