Opnun nýsköpunartorgs Samtaka iðnaðarins
Kæru vinir
Kærar þakkir fyrir að bjóða mér að ávarpa ykkur hér í dag og opna nýsköpunartorgið. Það er fallegur dagur. Þó að sólin skíni ekki í augnablikinu þá er vorið með sinni auknu birtu og gróanda komið og það hefur eflt með okkur lífsorkuna. Á svona dögum fyllist maður krafti og vellíðan í stíganda nýs upphafs.
Á þessu ári eiga Samtök Iðnaðarins 20 ára afmæli. Ég vil óska ykkur til hamingju. Samtök íslenskra líftæknifyrirtækja eiga einnig afmæli og eru 10 ára á þessu ári. Tíu ár eru frá því samtök sprotafyrirtækja á Íslandi urðu til og Samtök leikjafyrirtækja á Íslandi eru 5 ára. Ég vil óska þessum aðilum öllum hjartanlega til hamingju með afmælið.
Það eru fleiri afmælisbörn sem ég vil minnast á því Tækniþróunarsjóður Íslands er 10 ára á þessu ári. Það var því einstaklega ánægulegt á þessu afmælisári sjóðsins að ríkisstjórnin samþykkti nú fyrr í vikunni að efla sjóðinn en hann er einn af samkeppnissjóðunum sem heyra undir Vísinda- og tækniráð.
Sú aðgerð var hluti af aðgerðaáætlun Vísinda og tækniráðs fyrir árin 2014 til 2016 sem hefur verið í vinnslu nú um all nokkurt skeið og var samþykkt á fundi ráðsins í gær.
Samþykkt ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir því að samkeppnissjóðirnir verði efldir um 800 milljónir króna á næsta ári og stefnt að enn frekari aukningu 2016 með hliðsjón af fjárhagsstöðu ríkissjóðs eða um 2 milljarða króna. Á sama tíma er gert ráð fyrir, meðal annars með skattahvötum, að atvinnulífið auki hlut sinn í rannsóknar- og nýsköpunarstarfi. Markmiðið með þessum aðgerðum er að í heildina verði fjárfestingar til vísinda og nýsköpunar á Íslandi auknar úr áætluðum tæpum 2,7% af vergri þjóðarframleiðslu árið 2014 í 3% árið 2016.
Helstu markmið áætlunarinnar eru snúa að atvinnulífinu eru m.a.:
- að nýta skattkerfið markvisst til að hvetja til fjárframlaga fyrirtækja og einstaklinga til vísinda og nýsköpunar,
- að innleiða skattalega hvata til að auka fjárfestingu í nýsköpunarfyrirtækjum,
- að skapa umhverfi fyrir virk viðskipti með hlutabréf í nýsköpunarfyrirtækjum,
- að efla sókn í samkeppnissjóði og markaði á alþjólegum vettvangi,
- að auka stuðning og ráðgjöf við nýsköpunarfyrirtæki sem stefna á alþjóðlegan markað,
- að efla samstarf háskóla og atvinnulífs við grunn- og framhaldsskóla,
- að fjölga útskrifuðum nemendum í raun-, tækni-, og iðngreinum,
- að hvetja til aukinnar samvinnu háskóla, rannsóknarstofnana og fyrirtækja um rannsóknartengt framhaldsnám,
- að styrkja fjármögnun doktorsnáms,
- að endurskoða skipulag og umgjörð vísinda- og nýsköpunarkerfisins m.a. með því að setja ný rammalög um rannsóknastofnanir
- að þróa heildstætt upplýsingakerfi um afrakstur vísinda- og nýsköpunarstafs,
- að meta gæði og afrasktur vísinda- og nýsköpunarstarfs í samræmi við alþjóðleg viðmið,
og
- að bæta hagtölugerð um íslenskt atvinnulíf m.t.t. rannsókna, verðmætasköpunar, útflutnings og nýsköpunar.
Aðgerðaráætlun Vísinda- og tækniráðs er raunhæf og metnaðarfull og erum við í ríkisstjórninni afar ánægð með vinnuna, en þetta er í fyrsta skiptið sem slík aðgerðaáætlun er unnin á grundvelli stefnu Vísinda- og tækniráðs.
Hér í dag er að fara af stað tveggja daga nýsköpunartorg og afmælishátíð. Ætlunin er að beina kastljósinu að þeirri nýsköpun sem hefur átt sér stað í atvinnulífinu undanfarin. Ræða starfsumhverfið, verkefnin, áskoranirnar, árangurinn og framtíðina. Um leið og ég set afmælishátiðina og segi nýsköpunartorgið sett þá vil ég þakka ykkur fyrir gott aðhald á fyrsta ári ríkisstjórnarinnar og vonast eftir góðu samráði um framtíðina næstu þrjú árin.
Ég segi nýsköpunartorgið sett.
(talað orð gildir)