Samræmingarnefnd sett á fót
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun, að tillögu forsætisráðherra, að sett verði á fót ráðherranefnd, samræmingarnefnd, er fjalli m.a. um stjórnarfrumvörp sem fyrirhugað er að leggja fyrir Alþingi og varða eða geta haft áhrif á málefnasvið fleiri en eins ráðherra. Jafnframt skal nefndin fjalla um önnur mikilvæg úrlausnarefni í ráðuneytum þar sem samhæfingar er þörf, en mörg dæmi eru um verkefni og löggjöf sem varða málefnasvið fleiri en eins ráðuneytis Slíkar samræmingarnefndir ráðherra hafa lengi verið starfræktar í öðrum löndum s.s. „koordinationsudvalget“ í Danmörku.
Í nefndinni eiga fast sæti forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra og aðrir ráðherrar sitja fundi nefndarinnar í samræmi við umfjöllunarefni hverju sinni. Kveðið er á um hlutverk forsætisráðherra og forsætisráðuneytisins við samhæfingu innan Stjórnarráðsins í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands nr. 71/2013 og lögum um Stjórnarráð Íslands nr. 115/2011. Í 8. gr. laganna segir að forsætisráðherra beri að gæta þess að verkaskipting á milli ráðherra sé eins skýr og kostur er og að ráðherrar skuli leitast við að samhæfa stefnu og aðgerðir ráðuneyta þegar málefni og málefnasvið skarast. Þá segir í ákvæðinu að forsætisráðherra skuli beita sér fyrir því að stefna og aðgerðir ráðherra á einstökum sviðum séu samhæfðar ef á þurfi að halda.
Samþykkt var að samræmingarnefndin starfi sem ráðherranefnd samkvæmt 9. – 10. gr. laga nr. 115/2011 um Stjórnarráð Íslands.